Gréta S. Guðjónsdóttir
fararstjóri
    Madeira er gjarnan kölluð Eyja hins eilífa vors eða hinn fljótandi skrautgarður, sem segir margt um milt veðurfarið og gróðursældina á þessari eldfjallaeyju. Einstakur staður þar sem náttúrufegurð og milt veður skapa frábæra aðstöðu til göngu og útiveru.

    Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.

    Verð frá 299.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 16. – 22. apríl

    Verð og dagsetningar

    16. – 22. apríl  7 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    599.800 kr.
    Verð frá 299.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 6 nætur á Pestana Carlton 5★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, ferðir frá hóteli að upphafsstað gönguleiða, og gönguleiðsögn á ensku.
    Ekki innifalið í verði: Ferðir til og frá flugvelli, máltíðir, vatn og nesti, ferðatryggingar, eða annað en það sem kemur fram að ofan.

    Ferðalýsing

    Lega Madeira í Atlantshafinu tryggir að veðurfarið er þægilegt, milt og stöðugt árið um kring en meðalhiti í maí er um 25°. Enda er hún einn frjósamasti kriki heims og sagt að ef gróður og plöntur lifa ekki villtar á Madeira eigi tegundin sér ekki viðreisnar von. Landslagið er ægifagurt, tignarleg fjöll (hæsti tindur er 1851 m.y.s.) , klettar, djúpir dalir, hásléttur og fjölskrúðugur gróður milli fjalls og fjöru. Gamalt áveitukerfi er enn gulls í gildi og mikil völundarsmíð og margar gönguleiðirnar liggja með fram áveitu-rennum og -skurðum. Gönguleiðirnar eru fyrir alla í ágætu formi, flestar eru leiðirnar taldar auðveldar og oftast er gengið í 2,5 klst allt upp í 6 km. Munið að hitastig er lægra í fjalllendinu. Auk skipulagðra gönguferða gætu frídagarnir nýst til þátttöku í skipulögðum skoðunarferðum okkar í rútum. Hér er á ferðinni einstakt gönguævintýri!

    Dagskrá

    Dagur 1, fimmtudagur, 16. apríl 2026

    Brottför frá Keflavík 09:00 og lent í Funchal klukkan 14:45.

    Rútuferð eftir lendingu á hótel Pestana Calton Madeira sem er 5 stjörnu hótel.

        Dagur 2, föstudagur, 17. apríl 2026 — Hálfdags gönguferð um Paradísardalinn.

        Auðveld ganga með stórkostlegu útsýni þar sem hægt er að anda að sér menningu og hefðum eyjaskeggja. Gengið er um land sem ræktað hefur verið um aldir alda af bændum með natni og ást og sýnir rótgróinn landbúnaðinn sem hefur haldið eyjunni uppi í gegnum árin. Komið er að stað sem er með víðáttumikið útsýni yfir hið rómaða þorp Camacha. Camacha er frægt fyrir að halda í fornar hefðir í handverki. þessi auðvelda ganga er fyrst og fremst til að njóta útsýnis og hita upp fyrir fegurð Madeira sem er einstök og á eftir að sjást betur í næstu gönguferðum .

          • Erfiðleikastig: Auðvelt
          • Göngutími: 2:30 klst.
          • Vegalengd: 5,5 km

          Dagur 3, laugardagur, 18. apríl 2026 — Frídagur sem er tilvalinn til að skoða höfuðborgina Funchal og skella sér á markaðinn

          Frjáls dagur.

          Dagur 4, sunnudagur, 19. apríl 2026 — Mímósudalurinn

          Hálfdags gönguferð um Mímósudalinn. Róleg og falleg ganga um Levada dos Marocos þar sem hægt er auðveldlega að sökkva sér í hið fallega útsýni eyjarinnar með grænar fjallshlíðar og finna angan af mímósublómum. Ótrúlega falleg ganga með útsýni og náttúrufegurð sem kallar fram innri ró göngumannsins og endurnærandi fyrir líkama og skilningarvit.

            • Erfiðleikastig: Auðvelt
            • Göngutími: 2:30 klst.
            • Vegalengd: 6 km

            Dagur 5, mánudagur, 20. apríl 2026 — Serra D Aqua

            Hálfdags gönguferð um Serra D Aqua dalinn. Þegar menn héldu að þeir væru búnir að finna allar perlur eyjarinnar fannst þessi ósnerta paradís með útsýni og fegurð sem fær hjartað til að slá. Einn fallegasti staður Madeira með sýn yfir suðurströndina og Encumeada, Ribeira Brava og Campanário. Á þessarri 65 km gönguleið höfum við valið þá 5 km sem bjóða upp á það besta á leiðinni, þegar kemur að gróðri og dýralífi og bíður upp eitt flottasta landslag Madeira. Gönguferð sem enginn má missa af.

              • Erfiðleikastig: Auðvelt
              • Göngutími: 2:30 klst.
              • Vegalengd: 5 km
              • Athugið að þessi ganga gæti ekki verið fyrir lofthrædda.

              Dagur 6, þriðjudagur, 21. apríl 2026 — Raferta-Castelejo

              Hálfdags gönguferð. Heillandi ganga eftir aldagömlum göngustíg sem lagður var af heimamönnum sem þurftu á árum áður að ganga í gegnum harðgert landslag. Þarna sjáum við stórfenglegt útsýni yfir norðurströndina þar sem sjá má þorp í hæðum og freyðandi atlantshafið við ströndina. Þarna er saga og hefðir heimamanna á hverju strái og dugnaður þeirra að rækta land í hæðóttu og grýttu landslagi. Þessi ganga er ekki síst ferðalag um sögu heimafólks og ekki skemmir útsýnið fyrir.

                  Dagur 7, miðvikudagur, 22. apríl 2026 — Heimferð

                  Madeiradvölinni lýkur þennan dag og heimferð með flugi frá Madeira til Íslands.

                      Madeira

                      Beint flug til Madeira er í boði 8. og 16. apríl 2026.

                      Lega eyjunnar í Atlantshafinu tryggir að veðurfarið er þægilegt, milt og stöðugt árið um kring. Landslagið er ægifagurt, tignarleg fjöll, klettar, djúpir dalir  og fjölskrúðugur gróður milli fjalls og fjöru. Sykurreyr, vín- og bananaekrur setja svip sinn á landið auk fjölda skrúðgarða. Gamalt áveitukerfi er enn gulls ígildi og mikil völundarsmíð. Um alla eyju eru afar skemmtilegar gönguleiðir.

                      Athugið að akstur til og frá flugvelli er ekki í boði á vegum Úrval Útsýn.

                      Madeira

                      Madeira tilheyrir Portúgal en er með sjálfstjórn og eigið þing.  Eyjan er um 740 ferkílómetrar að stærð og íbúar um 300 þúsund. Fólkið er einstaklega vingjarnlegt og auk portúgölsku tala mjög margir ensku. Ekki er mikið um stórar sandstrendur á eyjunni, víðast hvar eru klettastrendur og fallegar víkur. Þó má finna manngerðar sandstrendur með gullnum sandi.

                      Höfuðborgin Funchal

                      Við suðurströndina er höfuðborgin Funchal, heillandi bær í nýlendustíl með ríka menningarsögu. Gamli bærinn er einstaklega fallegur. Þar eru ódýr og góð portúgölsk veitingahús, fjölbreyttir markaðir, glæsilegar handverksbúðir og fjöldi kaffihúsa. Höfnin er sjarmerandi og gaman að rölta meðfram sjónum og fylgjast m.a. með hinum mörgu skemmtiferðarskipum sem þangað koma. Fallegir garðar prýða bæinn eins og alla eyjuna. 

                      Madeira

                      Lido ferðamannasvæðið

                      Fyrir vestan Funchal hefur byggst upp heilmikið ferðamannasvæði, Lido, þar sem eru fjölmörg hótel, veitingastaðir, verslanir og önnur þjónusta fyrir ferðamenn.  Meðfram sjónum er göngustígur og á stöku stað hafa verið búnar til litlar sandstrendur eða önnur baðaðstaða fyrir unnendur sjávar. Einnig er alls konar sjávarsport í boði. Til að komast inn í Funchal, má ganga eftir  fallegum stíg eða taka strætó frá hóteli.
                      Við bjóðum upp á úrval gististaða, 3,  4 og 5 stjörnur, bæði í Lido hverfinu og inni í borg. 

                      Madeira

                      Gaman að skoða

                      Fjölbreyttar kynnisferðir verða í boði, s.s. um höfuðborgina Funchal, í sjávarþorp, bændabýli, upp á Pico do Arieiro sem er hæsti tindur eyjarinnar (1818 m), um gömul eldfjöll og djúpa dali, gönguferðir og náttúruskoðun, þjóðleg kvöldskemmtun og fleira. Möguleikarnir eru óþrjótandi á þessari fallegu eyju með áhugaverða sögu og einstaka náttúru.  

                      Athugið

                      • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                      • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                      • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                      • Vegabréf þurfa að hafa gildistíma fram yfir 6 mánuði áætlaðs heimafarardags.
                      • Minnum á ferðaskilmála Úrvals-Útsýnar (sjá uu.is) og skilmála göngferða að neðan.
                      • Vinsamlega lesið neðangreinda skilmála gönguferða okkar. Með greiðslu staðfestingagjalds staðfestir þú að hafa lesið þennan texta og fallist á að hlíta ákvæðum hans í hvívetna.
                      • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar beinar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi, hafi lágmarks reynslu af léttum gönguferðum og stríði ekki við veikindi eða aðra líkamlega kvilla.
                      • Gönguleiðir í þessari ferð eru allar með erfiðeikastig Auðveld eða Miðlungs-erfið og lengstu göngurnar eru um 11 km. Gera má ráð fyrir að í flestum göngunum sé gengið upp og niður í mót og upp og niður tröppur.
                      • Ef þið eruð í vafa um líkamlegt atgervi mælum með heimsókn til heimilslæknis og fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.
                      • Ábyrgð á þátttöku í ferðunum liggur hjá þátttakendum. Ferðirnar eru lokaðar börnum undir 16 ára aldri en 16-17 ára þátttakendur verða að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni.
                      • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi og þau smátæki og tól sem vilji er til. Sérstaklega skal minna á góðan skóbúnað, hlý föt, léttan regn-/vindjakka og myndavél.
                      • Gönguleiðsögumaður hefur meðferðis fyrstu-hjálpar sett.
                      • Engin endurgreiðsla ferðakostanaðar kemur til ef þátttakendurr sleppa sumum gönguferðum eða víkja þarf frá skipulagðri dagskrá og leiðum af öryggisástæðum (t.d. vegna veðurlags eða þess að hópurinn hefur ekki getu til að fylgja skipulagðri áætlun).
                      • Við mælum sterklega með því að þátttakendur hafi góða ferðatryggingu.
                      • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
                      • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
                      • Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.