Il Picciolo Etna Golf Resort er einstakur dvalarstaður staðsettur við rætur eldfjallsins Etna á Sikiley, umvafinn náttúrufegurð og ró.
Þetta er fyrsti 18 holu golfvöllurinn sem opnaður var á eyjunni, og hann liggur í stórbrotnu landslagi þar sem vínekrur, kastaníutrjágarðar og hraunmyndaðar hæðir skapa töfrandi umhverfi.
Hótelið býður upp á rúmgóð og hlýleg herbergi, með klassískri hönnun og útsýni yfir náttúruna. Þar er einnig glæsileg heilsulind með innilaug, gufu, sauna og fjölbreyttu úrvali meðferða sem stuðla að vellíðan og slökun.
Á veitingastað hótelsins má njóta hefðbundinnar sikileyskrar matargerðar, sem byggir á ferskum, staðbundnum hráefnum. Þar að auki er vínekra í nágrenninu kjörin fyrir vínsmakkanir og matarupplifanir.
Margeir Vilhjálmsson PGA golfkennari hóf golfiðkun árið 1985, þá 13 ára gamall. Margeir nam golfvallafræði í Skotlandi og er framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Öndverðarness. Margeir lauk PGA golfkennaranámi árið 2021 og hefur starfað sem golfkennari frá árinu 2020. Á þeim tíma hefur Margeir hjálpað fjölda golfara við að bæta leikinn og kennt mörgum fyrstu skrefin bæði í golfskólum hérlendis og erlendis.
Verð og dagsetningar
12. – 22. okt.
11 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
992.000 kr. |
Verð frá
496.000 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 10 nætur á 4 stjörnu gistingu með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, 9 golfhringir, flutningur á golfsetti, akstur til og frá flugvelli, Drykkur við komu, Aðgangur að heilsulind tvisvar per mann, og 9 x Vallargjald.
Ekki innifalið í verði:
Ekki spilað golf á komu eða brottfara degi, eða golfbíll.
Athugið
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.




