Apríl Harpa Smáradóttir
fararstjóri
    Ef paradís er til, þá finnst hún á Balí. Úrval Útsýn býður einstaka 15 daga haustferð með íslenskri fararstjórn til þessarar dásamlegu eyju. Í boði er úrval hótela í nokkrum verðflokkum í strandbænum Seminyak, þar sem slökun og munaður eru í fyrirrúmi. Upplifðu töfra eyjunnar í skipulögðum skoðunarferðum um tignarleg hof, iðagræna hrísgrjónastalla og heillandi menningu sem á sér enga líka.

    Enginn þekkir Balí betur en Apríl Harpa sem bjó á eyjunni fögru til fjölda ára. Á Balí stundaði hún Háskólanám í mannfræði með áherslu á Balíska menningu og kenndi þar jóga og hugleiðslu í mörgum af glæsilegustu jógastöðum á eyjunni. Auk þess stofnaði hún þar ýmiss fyrirtæki og fæddi þar stúlku sem hún ól upp á Balí til þriggja ára aldurs. Apríl hefur verið fararstjóri á Balí í rúman áratug og er hvergi hætt, enda hefur hún ómælda ástríðu gagnvart þessari framandi eyju og stórkostlegu þjóð.

    Verð frá 467.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 1. – 15. okt.

    Verð og dagsetningar

    1. – 15. okt.  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    935.800 kr.
    Verð frá 467.900 kr.
    per farþega
    1. – 15. okt.  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    577.900 kr.
    Verð frá 577.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, gisting með morgunverði, akstur á milli flughafnar og hótels, og aðstoð innlendra þjónustuaðila.
    Ekki innifalið í verði: Valfrjálsar skoðunarferðir með fararstjóra, Ferðatryggingar, Vegabréfsáritun við komu (Visa on Arrival), eða Einkaneysla og þjórfé.

    Ferðalýsing

    Komdu með okkur yfir hálfan hnöttinn í þá dásemd sem Balí sannarlega er. Þín bíður paradísarvist í strandbænum Seminyak dagana 1. til 15. október 2026. Þarna ertu kominn í annan heim þar sem þú gætir jafnvel efast um að vera enn á plánetunni Jörðu, því þú hefur gengið inn í framandleika og fegurð sem hvergi annars staðar er að finna.

    Á Balí blandast trúarlíf heimamanna daglegum athöfnum og allt í kringum þig finnur þú ilm af reykelsi frá næsta altari hindúa á meðan galdur eyjunnar umvefur þig. 

    Balí: Þar sem draumar og veruleiki mætast

    Er Balí paradís á jörðu?

    Balí er í rauninni orðið samheiti fyrir paradís á jörðu. 

    Eyjan er aðeins agnarsmátt hérað í stórríkinu Indónesíu en hefur haldið öllum sínum einstaka einkennum: menningin er einstök, náttúran mögnuð og fólkið á enga sína líka. Flestir láta sér nægja lystisemdirnar við hafið og leyfa heitum geislum sólarinnar að verma kroppinn á ströndum Seminyak, þar sem dvalið er í vellystingum á gæðahótelum á borð við The HavenMontigoCourtyard by Marriott eða Hotel Indigo

    Balí er sannkallað gósenland þar sem trjágreinarnar svigna undan ávöxtum og sjórinn iðar af fiski. Dagarnir renna saman í eina stóra veislu ferskra framandi rétta og guðdómmergra veiga. 

    Frá Seminyak er auðvelt að fara um þessa litlu en mögnuðu eyju, sem er aðeins um þriðjungur af stærð Vatnajökulsþjóðgarðs, en geymir endalaus ævintýri. 

    Menning og ævintýri

    Þótt dagarnir á ströndinni renni saman í eina stóra veislu ávaxta, ferskra framandi rétta og guðdómlegra veiga, þá er margt fleira að uppgötva. Ef gestir vilja kynnast meiru af eyjunni bjóðum við upp á fjölda valfrjálsra ferða sem leiða fólk til fjalla þar sem bærinn Úbúd bíður fólks með einstöku andrúmslofti í þeim hippalega og ójarðneska bæ. Svo eru margar ferðir um hof og hallir, í dansskóla þar sem legong- og barongdansar eru æfðir af börnum og fagfólki, í þorp handverksfólks eða um kyrrláta dali og fjallasali á reiðhjóli eða tveimur jafnfljótum.

    Frá Seminyak er auðvelt að fara um þessa litlu en mögnuðu eyju, sem er aðeins um 6000 km2, eða svipaður landmassi og Snæfellsnes. Seminyak er norðan við hina frægu Kutaströnd og er bæði elegant og huggulegur með fjölda veitingastaða, nuddstofa og verslana.

    Það fyrsta sem gestir uppgötva þegar leitað er út fyrir strandlífið er að íbúar Balí lifa og hrærast í tveimur heimum: annars vegar er það jarðneski heimurinn og hins vegar heimur hindúismans. Guðir, vættir og galdrar eru hluti af daglegu lífi heimamanna. Trúin er tekin fram yfir það veraldlega og gestir á eyjunni ættu ekki að láta það koma sér á óvart ef samfélagið stöðvast um miðjan dag út af trúarlegri skrúðgöngu eða bálför. Fjöldi valfrjálsra ferða er í boði og eru þær kynntar nánar af fararstjóra við komuna til eyjarinnar.

    Balí: Þar sem draumar og veruleiki mætast

    Flugleiðin til Balí og heim aftur

    Við höfum valið sérlega þægilegt flug með Icelandair og Emirates í einum flugmiða, sem tryggir að farangur sé innritaður alla leið. 

    • Brottför: Flogið er frá Keflavík 1. október kl. 07:40. Millilent er í Kaupmannahöfn og Dúbaí með næturflugi og lent er á Balí kl. 22:25 daginn eftir. 
    • Dvalið á Balí: Ekið er beint á hótelið í Seminyak þar sem dvalið er í 12 nætur. 
    • Heimferð: Síðasti dagurinn (14. október) er nýttur vel þar til hótelið er yfirgefið á hádegi og flogið heim á miðnætti. 
    • Koma: Eftir millilendingar í Dúbaí og Kaupmannahöfn lýkur þessu magnaða ævintýri þegar lent er í Keflavík kl. 18:10 þann 15. október.

    Hafðu samband við asiaferdir@uu.is til að fá nánari upplýsingar og bóka þína draumaferð! 

    Gistingar í boði

    3
    5
    Afmarka út frá stjörnufjölda

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.