Borgin er í grunninn gullfalleg gömul, spænsk strandborg með heillandi miðbæ sem iðar af mannlífi. Þar ríkir mikil og rík matar- og vínmenning sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingastaða borgarinnar.
    Verð frá 119.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 9. – 12. apríl

    Verð og dagsetningar

    9. – 12. apríl  4 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    239.800 kr.
    Verð frá 119.900 kr.
    per farþega
    9. – 12. apríl  4 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    157.900 kr.
    Verð frá 157.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, og gisting.
    Ekki innifalið í verði: Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn.

    Gistingar í boði

    4
    4
    Afmarka út frá stjörnufjölda

    Alicante

    Beint flug til Alicante 1 x í viku til páska.

    Beint flug til Alicante 2 x í viku eftir páska.

    Borgin Alicante er staðsett í hjarta Costa Blanca á Spáni og er höfuðborg héraðsins. Borgin er gullfalleg gömul, spænsk borg með heillandi miðbæ sem iðar af mannlífi. Þar ríkir mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingastaða borgarinnar.

    Í Alicante er að finna fjölda áhugaverðra safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Næturlíf borgarinnar er alþekkt og geta skemmtanaþyrstir ferðalangar valið á milli aragrúa af börum, öldurhúsum og diskótekum.

    Ekki spillir fyrir að við borgina er frábær 7 km löng strönd og hótelin okkar eru staðsett nálægt ströndinni. Ferð til Alicante borgar sameinar því sólar- og borgarferð sem inniheldur strandlíf og slökun ásamt því að njóta alls þess er borgin hefur upp á að bjóða.

    Alicante

    GAMALL SJARMERANDI BÆR

    Svæðið í kringum Alicante hefur verið heimili mannsins í yfir 7000 ár. Leifar af elstu byggðum er m.a. að finna í hlíðum Mount Benacantil en kastalinn Santa Barbara stendur í hlíðum fjallsins. Kastalinn er upprunalega frá 9. öld en honum hefur verið viðhaldið og endurbyggður í aldanna rás. Árið 1963 var kastalinn opnaður almenningi og í dag er hægt að taka lyftu upp í 166 m hæð, skoða kastalann og njóta útsýnisins.

    FORNMINJAR OG SPENNANDI MARKAÐIR

    Í Alicanteborg gefst tækifæri til að skoða margar fallegar minjar frá tímum máranna en Dómkirkjan San Nicolas er mjög falleg og vel þess virði að leggja leið sína þangað meðan á dvölinni stendur. Einnig eru forvitnilegir handverksmarkaðir í borginni og rétt við höfnina er mikið um götusala.

    FALLEGAR STRENDUR

    Strendur Alicante eru fallegar og þar er mannlífið litríkt. Við höfnina er fjöldi bara og veitingastaðir í röðum.

    Alicante

    VERSLUNARMÖGULEIKAR

    Mikið úrval verslana er að finna á göngugötunni, Rambla, til dæmis El Corte Ingles, Zara og H&M. Einnig er þar mikið úrval veitingastaða, s.s. tapas sem og spænskir, kínverskir og mexíkanskir staðir.

    SKEMMTILEGT SVÆÐI Í KRING

    Ef farþegar ákveða að taka bílaleigubíl eru margir fallegir staðir í kringum Alicante sem vert er að skoða. Má þar nefna bæinn Alcoy sem er mjög fallegur. Þar er hátíð mára og kristinna haldin í apríl ár hvert. Einnig er bærinn Altea mjög fallegur og algjörlega þess virði að gera sér ferð þangað.

    ATH enginn fararstjóri er á staðnum en farþegar hafa aðgang að þjónustu og neyðarnúmeri.

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.