Allar ferðir

Í vetur bjóðum við golfpakka á Kanarí - Gran Canaria. Innifalið: Flug, gisting með morgunmat, flutningur á golfsetti, ferðataska 20kg og handfarangur 8kg og 5 x 18 holur í vikuferð. Teigtímar eru staðfestir við bókun.

Golf á Gran Canaria – tveir vellir í boði

Salobre Golf býður upp á krefjandi og eftirminnilega golfupplifun í fallegu landslagi Gran Canaria, þar sem breiðar brautir, dramatískur hæðarmunur og stórkostlegt útsýni setja svip á leikinn. Á Salobre – er gist á golfhóteli með meiri  fókus á golfið sjálft.

Meloneras Golf sameinar glæsileika, þægindi og stórbrotið sjávarútsýni. Völlurinn liggur meðfram Atlantshafinu og býður upp á eftirminnilegar holur við ströndina. Meloneras er aðgengilegur og vel skipulagður, staðsettur nálægt lúxushótelum, veitingastöðum og þjónustu – fullkominn fyrir þá sem vilja sameina golf og afslappað frí.

Skoðaðu verð og dagsetningar í bókunarvélinni okkar hér að ofan. Við getum sérsniðið ferðina að þínum þörfum – hafðu samband við golf@uu.is.

Gran Canaria

Golf á Gran Canaria er frábært allt árið með sól, mildu loftslagi og fjölbreyttum völlum í fallegu landslagi. Vellirnir eru vel hannaðir, aðgengilegir og vinsælir meðal bæði byrjenda og reyndra kylfinga.

Innifalið í verði er:

  • Flug, ferðataska 20kg og handfarangur 8k
  • Gisting með morgunmat
  • Flutningur á golfsetti
  • 5 x 18 holur í vikuferð
  • Teigtímar eru staðfestir við bókun.