Allar ferðir

Úrval Útsýn býður nú upp á Costa Brava ströndina á Spáni, nánar tiltekið sólarstaðina Lloret de Mar og Tossa de Mar. Skemmtilegur valkostur þar sem hægt er að sameina strönd og borg!

Costa Brava

Enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.

Flogið er til Barcelona þar sem enskumælandi fulltrúi Úrval Útsýnar tekur á móti farþegum og fylgir í rúturnar sem keyrir farþega heim á hótel á Costa Brava svæðinu. Svæðið er í um 70 km fjarlægð frá Barcelona og tekur aksturinn rúmlega klukkustund. Á 7 km löngu svæði eru 5 strendur sem tilheyrir Costa Brava og hefur löng og góð baðströndin hlotið viðurkenningu fyrir snyrtimennsku.

Costa Brava

Sólarströnd og spennandi heimsborg í einni ferð! 

Vegna nálægðar við Costa Brava svæðið (Lloret de Mar og Tossa de Mar) er spennandi tækifæri að blanda saman sólarlandaferð við spennandi heimsborg. Hafðu samband við söluskrifstofu okkar og við setjum ferðina upp eftir þínum hentugleika!

Costa Brava

Lloret de Mar 

Costa Brava er nyrst spænsku Miðjarðarhafsstrandanna, með um 40 þúsund íbúa. Ströndin er klettótt og falleg, enda er hún meðal vinsælustu ferðamannastaða Spánar. Bærinn Lloret de Mar er fallegur og heillandi strandbær og hefur hann til fjölda ára verið eftirsóttur ferðamannastaður. Þar er að finna fjölda veitingahúsa og skemmtistaða ásamt fjölbreyttu úrvali verslana. Fjölbreytt mannlíf er í Lloret de Mar en þangað sækja m.a. gestir frá Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi og Bretlandi. Bærinn er fjölskylduvænn og er þar gott aðgengi fyrir barnafólk en til að mynda er að finna starfandi barnaklúbb á ströndinni. Fyrir þá sem vilja komast í köfun er Lloret de Mar frábær kostur, bæði fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Costa Brava

Tossa de Mar

Bærinn Tossa de Mar er lítill og rólegur bær staðsettur í næstu vík við Lloret de Mar. Fjarlægðin milli þessar tveggja bæja er um það bil 10 kílómetrar. Tossa de Mar er gamalt fiskimannaþorp með fallegri strönd og góð hótel. Við ströndina stendur tignarlegur kastali sem bærinn er þekktur fyrir. Mikil uppbygging í þjónustu við ferðamenn hefur átt sér stað undanfarin ár og víða er að finna góða veitingastaði. Tossa de Mar er tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja gera vel við sig í gistingu og aðbúnaði, og jafnframt vera staðsettir stutt frá lífinu í Lloret de mar og Barcelona.

Spánskir réttir og rómverskar fornminjar 

Costa Brava

Á Lloret del Mar er að finna fjöldan allan af góðum veitingahúsum og eru hefðbundnir spánskir réttir vinsælastir þar sem mikið og glæsilegt úrval fiskrétta ræður ríkjum. Einnig er að finna fjölbreytt úrval af hefðbundnum veitingahúsum fyrir ferðamenn.
Í Katalóníu eru margar minjar frá tímum Rómverja, svo sem kastalar, brýr og aðrar reisulegar byggingar. Af nógu er því að taka fyrir þá sem vilja skoða sig um á svæðinu.

Costa Brava

Úrvals skemmtigarðar

Á svæðinu eru skemmtigarðar og má þar einna helst nefna vatnsrennibrautagarðinn Water World í Lloret de Mar og Aquaparc í Plaja d´Aro, en í báðum þessum görðum er að finna fjöldan allan af rennibrautum sem hæfa öllum aldurhópum. Í garðinum er einnig ein stærsta öldusundlaug í Evrópu, sem og veitingastaðir og sérstök barnaleiksvæði.

Costa Brava

Sunnan við Barcelona, í Costa Dorada, er fjölskyldu- og skemmtigarðurinn PortAventura, einn glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Þar er fjöldinn allur af leiktækjum, stórir rússíbanar, vatnsrennibrautir, leiktæki fyrir börn og fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa.
Auðveldlega er hægt að eyða heilum degi, og jafnvel fleiri, í þessum frábæru skemmtigörðum.

Gistingar í boði á Costa Brava

Sæki gistingar...