Ingi Bærings
fararstjóri
    Hér er létt og ljúf en þó innihaldsrík lúxusreisa um strandbæinn Hua Hin og höfuðborgina Bangkok 8 dagar í vellystingum í Hua Hin og 3 dagar í einni ævintýralegustu borg heims
    Þægilegt flug sem færir ykkur 7 tímabelti austar yfir álfur og höf á meginland Suð-Austur Asíu. Flogið með Icelandair og Emirates flugfélaginu á tryggan máta á einum flugmiða sem gefur kost á innritun alla leið frá Keflavík til Bangkok – og til baka

    Síðastliðna vetur hefur Ingi búið nyrst í Taílandi þar sem hann vinnur að umhverfisvænni vinnslu á timbri og ýmsum skógarafurðum í fjallendinu í kringum Chiang Mai upp við landamæri Búrma. Ingi býr yfir ríkri þekkingu á taílensku samfélagi og er sífellt leitandi í nálgun sinni við sögu, arfleifð og nútímann í lífi taílendinga. Ingi hefur unnið í fjölda ára sem meðferðarfulltrúi og við kennslu.

    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 5. – 19. júní

    Verð og dagsetningar

    5. – 19. júní  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    799.800 kr.
    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    5. – 19. júní  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    499.800 kr.
    Verð frá 499.800 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, morgunmatur, allur akstur á milli flugvalla og gististaða einsog tilgreint er í ferðalýsingunni, kynningarferð um Hua Hin og Bangkok við komu á staðina, og þjónusta erlendra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, "late/early check-in/out" - snemm-innritun eða síð-útskráning af hótelum, eða þjórfé, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan.

    Ferðalýsing

    Lent er á hádegi eftir næturflug með Emirates og millilendingu í Osló og Dúbaí. Farþegar eru sóttir út á flugvöll og ekið til strandbæjarins Hua Hin. Við komu er bærinn kynntur í stuttri ferð um helstu staði, svo farþegum gefist kostur á að ná áttum og kynnast því sem í boði er.

    Næstu dagar eru í ljúfri sæld við ströndina.

    Sökum langrar sögu sem strandstaður og afdrep Bangkokbúa er Hua Hin ólíkur öðrum strandstöðum Taílands.

    Þetta er myndarlegur bær með gömlum bæjarkjarna auk dæmigerðar strandgötu þar sem veitingastaðir og barir standa. Sjávarréttarstaðirnir niður við hafnarsvæðið eru jafnt vinsælir af heimamönnum sem ferðafólki. Frá gömlu höfninni hlykkjast götur þar sem barir, næturklúbbar, götusalar, markaðir og veitingastaðir standa hver við annan. Við ströndina er alltaf eitthvað við að vera og boðið upp á úrval afþreyingar s.s. hestaferðir, skútusiglingar og bátaleigu. Margir af bestu golfvöllum landsins eru í næsta nágrenni, inn á milli lítilla fiskibæja og sveitaaþorpa.

    Fyrir náttúruunnendur eru tveir spennandi þjóðgarðar skammt undan. Kaeng Krachan þjóðgarðurinn með sitt fjölskrúðuga fuglalíf og Khao Sam Roi Yot sem státar t.d. af glæsilegum kalksteinsklettum.

    Þegar vistinni í Hua Hin lýkur er ekið til Bangkok þar sem önnur ævintýri bíða farþega í þessum skrautlegu og skemmtilegu borg þar sem veitingar, skemmtun og verslunarmöguleikar eru óþrjótandi.

    Bangkok er algjör andstæða Hua Hin, hér er ys og þys og borgin sefur aldrei enda alvöru asísk megaborg. Maturinn er eitthvað sem enginn má missa af en það er varla þverfótað fyrir litlum götuveitingastöðum þar sem hugsanlega finnast bestu máltíðir ferðarinnar.

    Síðasti dagurinn í Taílandi er drjúgur því ekki er flogið fyrr en eftir miðnætti og því hægt að nýta daginn í ýmiss erindi og skemmtun í Bangkok. Flogið eftir miðnætti og farin sama leið, um Dúbaí og Ósló og lent síðdegis sama dag. Flogið er með Icelandair og Emirates og farþegar bókaðir alla leið til Keflavíkur sem þýðir að ekki þarf að hafa áhyggjur af innritun farangurs við millilendingu.

    Á meðan á ferðinni stendur er íslenskur fararstjóri Úrval Útsýn ávallt til taks með ráðleggingar og aðstoð við farþega auk þess sem innlendur leiðsögumaður er til aðstoðar.

    Fjöldi valfrjálsra ferða er í boði bæði í Hua Hin og Bangkok sem fararstjóri kynnir farþegum og aðstoðar við bókun.

    Undirbúningur
    Undirbúningur fyrir ferðina er einfaldur. Helst þarf að gæta að þrennu tímanlega:

    • Vegabréfum
    • Ferðatryggingum
    • Bólusetningum

    Vegabréf þurfa að gilda minnst 6 mánuðum umfram áætlaða heimkomu og íslendingar fá 30 daga landvistarleyfi í Taílandi við komu án nokkurra formála. 

    Farþegar þurfa að gæta að því að vera með gildar ferðatryggingar sem flestir hafa innifaldar í greiðslukortatryggingum eða heimilistryggingum.

    Farþegum er bent á að hafa samband við næstu heilsugæslu eða leita til Ferðaverndar (ferdavernd.is) og kanna hvaða bólusetningar eru gildar og fá ráð um hvort þörf sé á frekari bólusetningum m.v. áfangastaðinn.

    Flugupplýsingar

    Eftirfarandi upplýsingar eiga við um allar Vetrarsólarferðirnar með Icelandair og Emirates.
    Heimflugið leggur af stað uppúr miðnætti þegar flogið er til Dúbaí þar sem áð er snemma morguns áður en flogið er til Osló og lent þar á hádegi. Síðasti leggurinn með Icelandair er floginn eftir hádegi og lenda allar ferðirnar um klukkan þrjú síðdegis.

    Gistingar í boði

    4
    4
    Afmarka út frá stjörnufjölda

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Flug með Icelandair og Emirates
    • Dagskrá geti breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna eða góðra ástæðna/hugmynda.
    • Almennir skilmálar Ferðaskrifstofu Íslands ehf / Úrval Útsýn gilda
    • Gætið tímanlega að bólusetningum, gildistíma vegabréfs og ferðatryggingum