Lóló
fararstjóri
    Komdu með til fallegu Tenerife og upplifðu náttúrufegurðina. Boðið er upp á sérsniðna dagskrá fyrir Úrvalsfólk. Happy hour, létt hreyfing, samverustundir og njóta þess að vera til.

    Lóló er einn af okkar reynslumestu fararstjórum og heldur vel utan um hópinn. Lóló tekur fagnandi á móti þér af alúð og gleði.

    Verð og dagsetningar

    Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

    Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

    Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 14 nætur á La Siesta 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, og dagskrá sérsniðin fyrir hópinn.
    Ekki innifalið í verði: City tax, skoðunarferðir, sætiskostnaður, eða annað sem ekki er talið upp hér að ofan.

    Ferðalýsing

    Við bjóðum upp vorferð til Tenerife á  Amerísku ströndina með vinsæla fararstjóranum okkar Lóló. 

    Lóló heldur úti mjög fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá, leikfimi, félagsvist, nærandi samverum, göngutúrum ásamt mörgum skemmtilegum uppákomum á meðan á dvöl stendur. Farþegar snúa heim endurnærðir eftir skemmtilega dvöl í góðum félagsskap.  Það koma allir brosandi og fullir af jákvæðri orku úr þessum ferðum og sterk vinabönd myndast eftir samveruna enda margir sem fara með í þessar ferðir ár eftir ár.

    Komdu og upplifðu náttúrufegurðina. Þar njótum við samvista við jafnaldra, vini og kunningja í yndislegu loftslagi á Tenerife.  Gist er á vinsæla hótelinu Hotel La Siesta sem er þekkt á meðal Íslendinga og er mjög vel staðsett á Amerísku ströndinni. Stutt er að ganga á „Laugarveginn“ en þar er að finna úrval veitingastaða, kaffihúsa og verslana. Á hótelinu er fjölbreytt þjónusta fyrir unga sem aldna. La Siesta er huggulegt hótel fjögurra stjörnu hótel sem hefur verið endurnýjað reglulega í gegnum árin. Hér er fallegur garður með sólbekkjum, bar, sundlaug og barnalaug. Hér er hlaðborðsveitingastaður, snarlbar og píanóbar og eitthvað við allra hæfi til að njóta. 

    Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, innilaug og pottur og lítil heilsulind þar sem hægt er að komast í nudd og aðrar heilsumeðferðir. Öll herbergi eru með svölum eða verönd, loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi og mini-bar. Ef bókað er Alexander herbergi fylgir aðgangur að heilsulind (fyrir 16 ára og eldri) og einnig hafa þau öll garðsýni.

    2 skoðunarferðir eru í boði í ferðinni

    ATH Ef lágmarks þátttaka næst.

    La Gomera

    Lengd: u.þ.b. 9-10 klst. Innifalið: Íslenskur fararstjóri. Loftkæld rúta. Hádegisverður

    Dagsferð um náttúruperluna La Gomera. Farþegar eru sóttir á hótel,með fararstjóra og ekið að skipi.

    Þetta er 25.000. tonna skip frá Armas og tekur siglingin 50 mín. Frá höfnini í San Sebastian,er ekið upp San Sebastian dalinn. Við gerum stuttan stans efst í dalnum,þar sem útsýni er mjög fallegt.

    Þaðan er ekið gegnum Hermiguia dalinn,sem er kallaður aldingarður La Gomera,en þar er mikil ávaxtarækt.Við heimsækjum Aloavera búgarð og fáum þar fróðleik um þessa einstöku jurt.Næst liggur leið okkar til bæjarins Agulo og þar borðum við góðan hádegismat,og þaðan förum við í ferðamannamiðstöðina en þar er margt að sjá.

    Við ökum svo inn í Þjóðgarðinn Garajonay,sem er á heimsminjaskrá UNESCO og í umsjón starfsmanna UNESCO,þar er að finna 1000 ára gamlan regnskóg og yfir 160 tegundir af trjám.Við gerum stuttan stans á nokkrum fallegum útsýnisstöðum á leið okkar til San Sebastian,þar,sem má sjá minjar frá tíma Kristofers Columbusar,en hann bjó á La Gomera um árabil,

    Í þessari dagsferð um nátturuperluna La Gomera geri ég mér far um að vera bæði með fróðleik og léttmeti á bland,og gera því góð skil.

    MUNA AÐ TAKA MEÐ VEGABRÉF

    Hringferð un Tenerife

    Lengd: u.þ.b. 8-9 klst. Innifalið: Íslenskur fararstjóri. Loftkæld rúta.

    EKKI INNIFALIÐ: Hádegisverður.

    Þessi skoðunarferð gefur þér tækifæri til að upplifa kjarna Tenerife á einum degi. Þegar allir hafa verið sóttir á hótelin, verður förinni haldið til La Laguna, sem var fyrsta borgin sem stofnuð var eftir yfirtöku Spánverja á Tenerife, 1496 og er gamla höfuðborg eyjarinnar.  Þessi sögufrægi gimsteinn er á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 1999. Við keyrum í gegnum gamla bæinn og stoppum á stóru torgi þar sem m.a. er finna landbúnaðarmarkað bæjarbúa. Þar er frjáls tími í ca. 40 mín.

    Svo heldur ferð okkar áfram til bæjarins Villa de La Orotava þar sem farið verður í gönguferð um gamla bæinn.  Þar eru göturnar fullar af sögu og fegurð og munu leiða þig m.a. til La Casa de Los Balcones (Svalahúsið), byggt árið 1632, sögufræg bygging La Oratava og útsaums- og búningamiðstöð Kanaríeyja.  Þá munum við keyra í nokkrar mínútur niður til strandabæjarins Puerto de la Cruz sem er elsti ferðamannastaður Kanarí eyjanna en þar opnaði fyrsta starfrækta hótelið fyrir árið 1900. Þar munum við labba í gegnum bæinn og setjast svo niður á aðaltorginu og fá okkur að borða. Athugið að þegar við setjumst að snæðingi getur klukkan verið orðin kringum 13-13:30.

    Næsta stopp okkar er í Garachico, bæ sem eyðilagðist að hluta til í eldgosi árið 1706 og var síðar endurbyggður.  Þar er að finna ríkulega og vel varðveitta byggingararfleið frá 16. og 17. öld, ástæða þess að gamli bærinn var útnefndur sem menningarmiðstöð árið 1994. Þar er að finna m.a. fallegar náttúrulegar hraunlaugar sem mynduðust í eldgosinu.Þaðan liggur svo leiðin aftur á suðurhlutann, keyrum upp fjallgarð og sjáum gífurlega fallegt útsýni m.a. yfir til Garachico bæjarins. Keyrslan til baka á ferðamannasvæðið tekur u.þ.b. klukkustund.

    ATH að taka með ykkur vatn og einhverja yfirhöfn þar sem veðrið getur verið öðruvísi á norður hluta eyjarinnar en á ferðamannasvæðinu. Athugið einnig að þar sem við stoppum í hádegisverð, Í Puerto de la Cruz, þá getur klukkan verið orðin 13-14 svo það þarf að taka tillit til þess. Við stoppum á góðum veitingastað en auðvitað er öllum frjálst að fara eitthvað annað að borða.

    Tenerife

    Tenerife hefur allt það að bjóða sem bestu sólarstaðir státa af. Eyjan er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa.

    Fjölskyldur geta notið alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða og í boði er fjöldi gististaða fyrir allar fjölskyldustærðir – allt frá íbúðum upp í stórglæsileg hótel. Bókaðu í tíma til að tryggja gistingu sem hentar þér og þinni fjölskyldustærð.

    Ekki má gleyma að á Tenerife er flottasti vatnsrennibrautagarður heims, „Siam Park“, ásamt hinum stórglæsilega dýragarði „Loro Parque“.

    Það skemmta sér allir vel á paradísareyjunni Tenerife!

    Skemmtigarðar

    • Siam Park
    • Aqualand
    • Loro Park
    • Bubble Soccer

    Verslunarmiðstöðvar:

    • Siam Mall 
    • Parque Santiago
    • Safari Center
    • Bahaia del Duque
    • Oasis

    Afþreying:

    • Vatnasport
    • Gönguferðir
    • Verslanir
    • Frábærir veitingastaðir
    • Leikhús
    Tenerife

    TENERIFE SUR – SUÐURHLUTINN

    Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Úrval Útsýn býður upp á gistingu á suðurhlutanum í Playa de las Américas, Los Cristianos og Costa Adeje. Allir þessir staðir hafa sinn sjarma og sitt einstaka andrúmsloft. Í Los Cristianos slær hjarta suðurhlutans þar sem ferðamannaiðnaðurinn byrjaði. Á því svæði búa eyjaskeggjar Tenerife en gamli bærinn er afar sjarmerandi með litlum þröngum göngugötum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana. Playa de Las Americas hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” en þar er frábært úrval verslana og veitingastaða á heimsmælikvarða. Costa Adeje svæðið er svo yndislegt og rólegt, með fallegum ströndum og stórglæsilegum gistingum.

    Tenerife

    SANTA CRUZ – HÖFUÐBORGIN

    Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett við sjávarsíðuna á norð-austur hluta eyjunnar, undir fjöllum Anaga tangans. Þetta er glaðleg heimsborg, full af orku, og litast af persónuleika eyjaskeggja. Í borginni, sem er samvaxin La Laguna, er ótal margt að skoða en samanlagt búa þar yfir 400 þúsund manns sem gerir þær að stærsta þéttbýlissvæði Kanaríeyja. Borgin hentar sérstaklega vel til gönguferða. Hún er þakin fallegum görðum, flottum verslunargötum og býður upp á alla þá kosti sem stórar heimsborgir státa af. Hér er að finna mjög áhugaverðan byggingarstíl gömlu tímanna, samofinn nýjum stefnum og straumum arkítektúrs 21. aldarinnar. Santa Cruz er sú borg Spánar sem státar af flestum nútíma byggingum á litlu svæði. 

    Tenerife

    Menningarlíf borgarinnar er talið einstakt enda mikið af áhugaverðum söfnum og listsýningum á heimsmælikvarða. Fyrir tónlistarunnendur er sinfóníuhljómsveit borgarinnar í fremstu röð Evrópuþjóða. Borgin er byggð upp við fallegar breiðgötur, svo kallaðar „Ramblas“. Í borginni er skemmtilegt andrúmsloft, sem er bæði róandi og seiðandi, án þess að missa hið skemmtilega yfirbragð lítillar heimsborgar. Hér eru frábærar verslanir, verslunarmiðstöðar, veitingastaðir og kaffihús. Í næsta nágrenni er einnig stærsta og glæsilegasta strönd eyjunnar „Las Teresitas“. Í einungis 15 mínútna ferð með sporvagni er komið til hinnar þekktu 500 ára gömlu fyrrverandi höfuðborgar Tenerife, La Laguna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstaka sögu og fallegar byggingar. 

    Tenerife

    PUERTO DE LA CRUZ – NORÐURHLUTINN

    Puerto de la Cruz er staðsett á norðurhluta eyjunnar og er einna þekktust fyrir að hýsa einn glæsilegasta dýragarð Evrópu, Loro Parque. Ferðalangar hafa heimsótt þessa einstöku borg frá Evrópu síðan um miðja 19. öld og er fyrsti eiginlegi sumarleyfisdvalarstaður Kanaríeyja. Borgin hefur yfir sér rólegt yfirbragð þar sem gamli og nýi tíminn mætast á mjög sjarmerandi máta.

    Tenerife

    Gamli bærinn státar af afar fallegum gömlum byggingum og höfnin sem er í lykilhlutverki þjónaði vínútflutningi frá La Orotava dalnum í nokkur hundruð ár. Bærinn La Orotava er verðugur áningastaður þar sem eru stórglæsileg hús og hallir ásamt kirkjum sem skreyta bæinn. Við sjávarsíðuna er svo að finna afar fallegan sundlauga- og lystigarð, Lago Martiánes, sem þjónar borginni sem einskonar strandgarður, því fáar baðstrendur eru við borgina.

    Í Puerto de la Cruz er einnig að finna mikið af skemmtilegum verslunum, en til að mynda er þar stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar, La Villa sem er staðsett rétt fyrir utan bæinn. Einnig er þar elsti skrúðgarður (Botanical Garden) Tenerife. Fallegar göngugötur, torg og garðar toppa svo þessa fallegu borg. Hér er mikið úrval af glæsilegum veitingastöðum, börum og kaffihúsum, bæði í gamla bænum sem og í næsta nágrenni hans. 

    Puerto De La Cruz er klárlega staður sem vert að skoða!

    AFÞREYING Á TENERIFE

    Tenerife

    Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast enda nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Gaman er að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park, þar sem þú getur meðal annars rennt þér niður 28 metra rennibraut nánast í frjálsu falli sem endar með ferð í gegnum hákarlabúr! Eða farið á stærstu go-kart braut Evrópu.

    Við nánast hverja strönd á Tenerife er mikið úrval vatnaíþrótta -> sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun svo eitthvað sé nefnt.

    Athugið

    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
    • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • ATH dagskrá getur breyst án fyrirvara