Gréta S. Guðjónsdóttir
fararstjóri
    Gist verður í 1 nótt á góðu 4* miðsvæðis í Barcelona. Vikulöng sigling um Miðjarðarhafið sem hefst og endar í Barcelona. Að siglingu lokinni verður einnig gist í Barcelona í 3 nætur. Heilsdagsskoðunarferð um borgina er innifalin í verði og morgunverður alla daga á hótelinu.

    Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.

    Verð frá 489.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 20. sept. – 1. okt.

    Verð og dagsetningar

    20. sept. – 1. okt.  12 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    979.800 kr.
    Verð frá 489.900 kr.
    per farþega
    20. sept. – 1. okt.  12 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    629.900 kr.
    Verð frá 629.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, Skoðunarferð um Barcelona, vikusigling um Miðjarðarhafið með Costa Cruise, fullt fæði, og hafnargjöld og þjónustugjöld um borð.
    Ekki innifalið í verði: Þjórfé og ferðamannaskattur í Barcelona, drykkjarpakki um borð í siglingu en hægt er að kaupa hann aukalega, eða annað sem ekki er talið upp í lýsingu.

    Ferðalýsing

    Dagskrá

    Dagur 1, laugardagur, 20. september 2025

    Beint flug með Icelandair til Barcelona. Brottför frá Keflavík kl.08:25 með FI596, lending í kl.14:40 að staðartíma. Rúta keyrir hópinn á gott 4 stjörnu hótel miðsvæðis í Barcelona. Frjáls tími um kvöldið.

        Dagur 2, sunnudagur, 21. september 2025

        Að morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. Rúta flytur hópinn frá hóteli niður á höfn þaðan sem skemmtiferðaskipið Costa Smeralda siglir, en mælt er með því að vera kominn þremur tímum fyrir brottför. Skipið siglir af stað kl.18:00. Nánari upplýsingar um tímasetningar rútu og þ.h. koma síðar.

            Dagur 3, mánudagur, 22. september 2025

            Frjáls dagur.

            Dagur 4, þriðjudagur, 23. september 2025 — Sardinía

            Kl.07:30 er komið til Cagliari á Sardiníu.

            Sögulegur miðbærinn með fögrum kirkjum og litríkum húsum, langar strendurnar, þúsund ára löng sagan… Alls staðar er eitthvað áhugavert að finna. Borgin er byggð á 7 hæðum eins og Róm, staðsett milli hvítra kalksteinskletta og hafsins. Þar má finna urmull góðra veitingastaða ásamt fornu hringleikahúsi. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu.

                Dagur 5, miðvikudagur, 24. september 2025 — Napólí

                Hér verður að til kl.19:00 og um að gera að nota daginn vel. Hægt er að skoða borgina og smakka á ítalskri pizzu eins og þær gerast bestar. Einnig er hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu.

                Passið að vera komin tímanlega aftur um borð fyrir brottför kl.20:00.

                    Dagur 6, fimmtudagur, 25. september 2025 — Civitavecchia / Róm

                    Komið til Civitavecchia kl. 08:00 að morgni og heill dagur í Rómarborg er framundan. Meðal þess sem hægt er að skoða eru Spænsku þrepin; breiðustu tröppur Evrópu, en breska ljóðskáldið John Keats bjó og lést í einu húsanna við þessi þrep. Húsið er safn í dag. Næst má ganga að Trevi gosbrunninum í hjarta Rómarborgar sem er einn sögufrægasti gosbrunnur í heimi, rómaður fyrir fegurð og frábæra stemningu, og til hins fræga Pantheon hofs en súlurnar sextán sem styðja við þakið koma alla leið frá Egyptalandi en þaðan voru þær fluttar með erfiðismunum á sleðum, fluttar yfir hafið og dregnar inn í Rómaborg. Hver súla vegur um 60 tonn. Ekki þykir síður merkilegt að undir þykkum marmaranum liggja tveir konungar Ítalíu og ítalski málarinn og listamaðurinn Raphael. Mælum mað að enda göngunni á torginu fögru, Piazza Navona sem hefur allt til að bera, þrjá dýrðlega gosbrunna, Bernini skúlptúra og fjölmörg kaffihús þar sem hægt er að setjast niður og njóta mannlífsins.

                    Brottför frá Civitavecchia kl. 18:30.

                        Dagur 7, föstudagur, 26. september 2025 — Genova

                        Skipið leggur að höfn í Genoa, við ítölsku rivíeruna, kl.08:30 að morgni.

                        Þessi fallega borg hefur af nógu að taka, þar má meðal annars finna byggingar frá 17.öld, heillandi þröng húsasund troðfull af ævagömlum verslunum, sjarmerandi gömlu höfnina, stærsta fiskabúr Ítalíu og listaverkið Kúlan á hafinu eftir Renzo Piano. Genoa er borg sem kemur skemmtilega á óvart! Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu. Munið að vera komin tímanlega tilbaka um boð í skipið,

                        Lagt er úr höfn frá Genoa kl.17:00.

                            Dagur 8, laugardagur, 27. september 2025 — Marseille

                            Komið er til Marseille kl.09 að morgni og verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að skoða borgina á eigin vegum. Munið bara að vera komin tímanlega tilbaka um borð þegar skipið fer úr höfn kl.18.

                            Marseille er elsta borg Frakklands, stofnuð af Grikkjum árið 600 f.Kr. Frábær staðsetning borgarinnar við Miðjarðarhafið hefur frá upphafi stofnunar hennar gert hana að vinsælum áningarstað og má þar sjá greinileg áhrif frá jafnvel mjög fjarlægum menningarheimum. Marseille, stundum kölluð “Napólí Frakklands”, er litrík og glaðleg borg en í henni er mikil matarmenning og margt áhugavert að sjá.

                                Dagur 9, sunnudagur, 28. september 2025

                                Komið er til Barcelona kl.08:00 og bíður þá rúta eftir hópnum sem flytur okkur á hótelið. Frjáls tími í borginni það sem eftir er af deginum.

                                    Dagur 10, mánudagur, 29. september 2025 — Barcelona

                                    Að morgunverði loknum verður farið í heilsdagsskoðunarferð um borgina en Barcelona er full af list og sögu, mannlífi og gleði. Þar er margt að sjá og er borgin fyrir marga hluti, t.d. töfrandi arkítektúr svo sem Sagrada Familia kirkjuna stórkostlegu, dýrindis matargerð, frábært knattspyrnulið, svakalega fínar strendur, stórbrotin söfn, góðar verslanir og margt margt fleira.

                                        Dagur 11, þriðjudagur, 30. september 2025 — frjáls dagur í Barcelona

                                        Fátt jafnast á við að rölta um forn stræti Gotneska hverfisins, rölta um Barceloneta hverfið við sjóinn eða jafnvel fara á ströndina.
                                        Í borginni er bæði Picasso safnið og hið nýstárlega samtímalistasafn Macba. Ennfremur eru margar litríkar og stórmerkilegar byggingar eftir Antoní Gaudí sem og dómkirkjan fræga Sagrada Familia sem enn er ekki búið að klára, en bygging hennar hófst árið 1882.
                                        Hvort heldur sem valið er að rölta um þröngar götur í Barrio Gothico, þræða tapasbari og rölta um Römbluna, versla í tískuverslunum eða kíkja á listasafn, þá er Barcelona borgin fyrir þetta allt saman og miklu meira!

                                            Dagur 12, miðvikudagur, 1. október 2025 — Heimferð

                                            Um hádegisbil sækir rúta hópinn og keyrir út á flugvöll.

                                            Brottför kl.15:45 með Icelandair flugi FI597, lending í Keflavík kl.18:20 að staðartíma.

                                                Gistingar í boði

                                                Mikil skemmtun og fjör er um borð í Costa Smeralda ásamt alls konar afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Má þar nefna 13 sundlaugar og heita potta, bíó, heilsulind, verslanir, íþróttasvæði, vatnagarð, 11 veitingastaði og margt fleira.  Nítján barir og setustofur eru á skipinu og hvarvetna má finna falleg svæði þar sem er hægt að sitja og njóta eða flatmaga í sólbaði. Skemmtanir og uppistand eru á dagskrá á kvöldin og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. 

                                                Athugið

                                                • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                                                • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                • • Hægt er að kaupa drykkjarpakka sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, gosi, bjór, víni og fleiru. Í drykkjarpakkanum er innifalið: VERGNANO teas and herbal teas, coffee and cappuccino, UNLIMITED SAN BENEDETTO 0.5 l water bottles, AN UNLIMITED selection of wines by the glass, Pepsi and 7UP soft drinks and LOOZA fruit juices, HEINEKEN, CORONA and BECK'S draught beers, APEROL SPRITZ and CRODINO aperitifs, as well as mocktails, Any cocktail available at the bar, as well as molecular cocktails, Bitter liqueurs and spirits such as AMARO DEL CAPO, AVERNA, DISARONNO, SAMBUCA, as well as a PREMIUM selection of spirits