Kristján Steinsson
fararstjóri
    Veðurblíða Máritíus er annáluð og því eiga þessi fallegu orð Kjarvals vel við; „þar sem heyra má fiðrildi prumpa“ því svo ljúft er veðrið á þessari fjarlægu og fallegu eyju. Ekki er vitað hvort Kjarval hafi komið til Máritíus en þó gæti það alveg verið því hann var siglingagarpur og uppátækjasamur náungi.

    Dódófuglinn var skrítinn fugl og bjó bara á Máritíus. Honum mættu sömu örlög og Geirfuglinum en þó er enn að finna einstaka náttúru á Máritíus. Risaskjaldbökur sem verða tæplega 200 ára gamlar, gæfir höfrungar, skrautlegar eðlur og hressir páfagaukar. Máritíus er suðupottur margskonar menningar þar sem þróast hefur frábær matargerð, kraumandi mannlíf og einstök menning.
    Í þessari ferð gefst ferðalöngum gott tækifæri til að njóta sólar og blíðu við Indlandshaf, bragð nýja og framandi rétti og upplifa umhverfi sem er engu líkt.
    Dvalið 12 nætur á dásamlegu strandhóteli með hálfu fæði.

    Kristján er einn af reyndustu og vinsælustu fararstjórum Úrval Útsýnar og hefur hann unnið í ferðabransanum í yfir 30 ár. Hann hefur víðtæka reynslu og leysir öll vandmál eins og hendi sé veifað. Kristján er bæði með leiðsögumenntun og háskólamenntaður í ferðamálafræði.

    Verð og dagsetningar

    Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

    Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

    Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, gisting í tvíbýli með morgunmat í tilgreindum hótelum, hálft fæði, allur akstur á milli flugvalla og gististaða, og þjónusta innlendra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Ekki þjórfé persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan, kostnaður við vegabréfsáritun, ferðaskilríki og afgreiðslu á landamærum, eða ekki framlengd vist á hóteli(late check out) eða snemm-innritun (early check-in).

    Ferðalýsing

    Framundan er áfangastaður sem fáir íslendingar hafa sótt. Afskekkt eyja suður í Indlandshafi sm býr að skemmtilegri og framandi menningu, fjölskrúðugri náttúru og einhverjum flottustu sandströndum í heimi. Þarna finna ferðalangar girnilegan og spennandi mat, sumst sem hvergi er annarsstaðar í boði og suðupott menningar sem ber keim af Indlandi í norðri, gömlum herraþjóðum frá þeim tíma er Máritíus var nýlenda Frakklands og síðar Bretlands og svo kraumar undir trumbusláttur og heitir straumar frá Afríku. 

    En áður en frakkar og englendingar réðu eyjunni höfðu bæði portúgalir og hollendingar numið land á eyjunni. Saga eyjunnar er mögnuð, þegar fyrstu landkönnuðurnir komu þangað um eittþúsund eftir Kristsburð þá bjuggu engir menn á eyjunni en náttúran var fjölskrúðug og einstök og hélst þannig áfram og er í raun enn þó svo að Dódófuglinn sé horfinn og mannfólkið hafi víða brotið landið undir sig. 

    Eyjan var lengi kölluð Dina Arobi eftir aröbum þeim sem fyrsti sögðu af þessari afskekktu paradís. Heimamenn kalla eyjuna Moris á sinni kreólamállýsku sem dregið er af upphaflega franska nafninu Ile Maurice.

    Flogið er að morgni sunnudagsins 1. desember með Icelandair til Osló þar sem lent er um hádegi (07:50-11:35). Flogið áfram til Dúbaí með Emirates flugfélaginu kl 14:10. Emirates er þekkt fyrir að vera eitt flottasta og traustasta flugfélag í heimi. Eftir stutt stopp í Dúbaí er svo lent á Máritíus að morgni 2. desember. 12 nætur á dásamlegu hótel við austurströnd með hálfu fæði og þjónustu íslensks fararstjóra.

    Eftir 12 nætur og 12 daga á Máritíus er flogið heim og sem fyrr í gegnum Dúbaí og Osló. Flogið er að kvöldi laugardagsins 14. desember frá Port Louis og eru þéttar tengingar í Dúbaí og Osló að skila farþegum heim til Íslands rétt um klukkan 3 síðdegis á Íslandi sunnudaginn 15. desember eftir góða daga í Indlandshafi.

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.