Komdu með til Lecce í Puglia héraði sem gjarnan er kölluð Flórens suðursins með sinni sólkysstu barokkfegurð, þröngum götum sem líta út eins og þær séu úr kvikmynd og úrvali frábærra veitingastaða og áhugaverðra verslana. Það er auðvelt að gleyma sér á göngu um sögulegar gersemar borgarinnar og í nágrenni við Lecce má finna nokkrar af fallegustu og mest aðlaðandi ströndum Puglia.
    Sæki dagsetningar...

    Verð og dagsetningar

    Sæki verð...
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, og íslensk fararstjórn.
    Ekki innifalið í verði: Flugvallarakstur (valkvæður), matur annar en morgunverður, eða skoðunarferðir (valkvæðar).

    Ferðalýsing

    Gistingar í ferð

    Skoðunarferðir

    Athugið

    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
    • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.