Ingi Bærings
fararstjóri
    Hver kannast ekki við loforðið um að „næstu jól verðum við í sól og sælu langt frá stressinu“? Hér er komið frábært tækifæri til að efna það loforð og koma með okkur til Taílands þar sem nokkrar ljúfar vikur í strandbænum Hua Hin bíða ferðalanga og tækifæri til að byrja nýtt ár í Bangkok, einhverri skemmtilegustu og stærstu borg í heimi. Það spillir ekki fyrir þessu jólaplani að verðið er á pari við jafnlangar jólaferðir til Tenerife í sambærilegum gististöðum. Og fyrst við erum að vikta budduna þá er rétt að benda á að veitingar og skemmtun kosta brot af því sem sambærilegt kostar í evrulöndunum...og hvað þá ýmiss verslunarvarningur. Þægilegt flug sem færir ykkur 7 tímabelti austar yfir álfur og höf á meginland Suð-Austur Asíu. Flogið með Icelandair og Emirates flugfélaginu á tryggan máta á einum flugmiða sem gefur kost á innritun alla leið frá Keflavík til Bangkok – og til baka

    Síðastliðna vetur hefur Ingi búið nyrst í Taílandi þar sem hann vinnur að umhverfisvænni vinnslu á timbri og ýmsum skógarafurðum í fjallendinu í kringum Chiang Mai upp við landamæri Búrma. Ingi býr yfir ríkri þekkingu á taílensku samfélagi og er sífellt leitandi í nálgun sinni við sögu, arfleifð og nútímann í lífi taílendinga. Ingi hefur unnið í fjölda ára sem meðferðarfulltrúi og við kennslu.

    Verð frá 589.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 13. des. – 9. jan.
    • 15. des. – 5. jan.
    • 18. des. – 2. jan.

    Verð og dagsetningar

    13. des. – 9. jan.  28 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.599.800 kr.
    Verð frá 799.900 kr.
    per farþega
    15. des. – 5. jan.  22 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.179.800 kr.
    Verð frá 589.900 kr.
    per farþega
    18. des. – 2. jan.  16 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.197.800 kr.
    Verð frá 598.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, morgunmatur, allur akstur á milli flugvalla og gististaða einsog tilgreint er í ferðalýsingunni, kynningarferð um Hua Hin og Bangkok við komu á staðina, og þjónusta erlendra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, "late/early check-in/out" - snemm-innritun eða síð-útskráning af hótelum, eða þjórfé, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega.

    Ferðalýsing

    Stingum af úr myrkri Íslands á miðjum vetri í exótík og dásemd við miðbauginn þar sem veðrið er hlýtt og sólin trygg. Höldum á vit ævintýra Taílands þar sem framandleikinn er samt svo blíður og þægilegur.

    Flogið að morgni með Icelandair til Kaupmannahafnar eða Osló og lent þar að hádegi og rúmum tveimur tímum síðar – eftir smörrebröd og öl – er haldið áfram með Emirates flugfélaginu til Dúbaí þar sem millilent áður en síðasti leggurinn er floginn til Bangkok þar sem lent er á hádeig þar sem klukkan er 7 stundum á undan Íslandi.

    Farþegar eru sóttir út á flugvöll og ekið til strandbæjarins Hua Hin. Við komu er bærinn kynntur í stuttri ferð um helstu staði, svo farþegum gefist kostur á að ná áttum og kynnast því sem í boði er.

    Í boði eru þrjár ferðir:

    28 daga ferð frá 13. desember til 9. janúar. 3 vikur í Hua Hin/Cha Am(14/12-4/1) og 4 nætur í Bangkok(4.-8. janúar).

    22 daga ferð frá 15. desember til 5. janúar. 15 nætur í Hua Hin(16. til 31. desember) og 4 nætur í Bangkok(31/12-4/1).

    16 daga ferð frá 18. desember til 2. janúar. 10 nætur í Hua Hin(19. til 29. desember) og 3 nætur í Bangkok(29/12-1/1)

    Sökum langrar sögu sem strandstaður og afdrep Bangkokbúa er Hua Hin ólíkur öðrum strandstöðum Taílands.

    Þetta er myndarlegur bær með gömlum bæjarkjarna auk dæmigerðar strandgötu þar sem veitingastaðir og barir standa. Sjávarréttarstaðirnir niður við hafnarsvæðið eru jafnt vinsælir af heimamönnum sem ferðafólki. Frá gömlu höfninni hlykkjast götur þar sem barir, næturklúbbar, götusalar, markaðir og veitingastaðir standa hver við annan. Við ströndina er alltaf eitthvað við að vera og boðið upp á úrval afþreyingar s.s. hestaferðir, skútusiglingar og bátaleigu. Margir af bestu golfvöllum landsins eru í næsta nágrenni, inn á milli lítilla fiskibæja og sveitaaþorpa.

    Fyrir náttúruunnendur eru tveir spennandi þjóðgarðar skammt undan. Kaeng Krachan þjóðgarðurinn með sitt fjölskrúðuga fuglalíf og Khao Sam Roi Yot sem státar t.d. af glæsilegum kalksteinsklettum.

    Eftir góða daga og jólahald í Hua Hin er ekið til Bangkok þar sem önnur ævintýri bíða farþega í þessum skrautlegu og skemmtilegu borg þar sem veitingar, skemmtun og verslunarmöguleikar eru óþrjótandi. Dvalið verður 3-4 nætur í Bangkok á vel staðsettum og vönduðum hótelum og áfram fylgir íslenskur fararstjóri hópnum eftir og veitir ráð um veitingar, skemmtun og verslunarmöguleika auk þess að bjóða uppá fjölda valfrjálsra ferða.

    Bangkok er algjör andstæða Hua Hin, hér er ys og þys og borgin sefur aldrei enda alvöru asísk megaborg. Maturinn er eitthvað sem enginn má missa af en það er varla þverfótað fyrir litlum götuveitingastöðum þar sem hugsanlega finnast bestu máltíðir ferðarinnar.

    Síðasti dagurinn í Taílandi er drjúgur því ekki er flogið fyrr en eftir miðnætti og því hægt að nýta daginn í ýmiss erindi og skemmtun í Bangkok. Flogið eftir miðnætti og farin sama leið, um Dúbaí og Kaupmannahöfn og lent undir miðnætti í Keflavík. Flogið er með Icelandair og Qatar og farþegar bókaðir alla leið til Keflavíkur sem þýðir að ekki þarf að hafa áhyggjur af innritun farangurs við millilendingu.

    Á meðan á ferðinni stendur er íslenskur fararstjóri Úrval Útsýn ávallt til taks með ráðleggingar og aðstoð við farþega auk þess sem innlendur leiðsögumaður er til aðstoðar.

    Fjöldi valfrjálsra ferða er í boði bæði í Hua Hin og Bangkok sem fararstjóri kynnir farþegum og aðstoðar við bókun.

    Undirbúningur

    Undirbúningur fyrir ferðina er einfaldur. Helst þarf að gæta að þrennu tímanlega:

    • Vegabréfum
    • Ferðatryggingum 
    • Bólusetningum

    Vegabréf þurfa að gilda minnst 6 mánuðum umfram áætlaða heimkomu og íslendingar fá 30 daga landvistarleyfi í Taílandi við komu án nokkurra formála. 

    Farþegar þurfa að gæta að því að vera með gildar ferðatryggingar sem flestir hafa innifaldar í greiðslukortatryggingum eða heimilistryggingum.

    Farþegum er bent á að hafa samband við næstu heilsugæslu eða leita til Ferðaverndar (ferdavernd.is) og kanna hvaða bólusetningar eru gildar og fá ráð um hvort þörf sé á frekari bólusetningum m.v. áfangastaðinn.

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Flug með Icelandair og Qatar
    • Dagskrá geti breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna eða góðra ástæðna/hugmynda.
    • Almennir skilmálar Ferðaskrifstofu Íslands ehf / Úrval Útsýn gilda
    • Gætið tímanlega að bólusetningum, gildistíma vegabréfs og ferðatryggingum