Heillandi sérferð til Egyptalands sem enginn má missa af. Hvern langar ekki að sigla á Níl, skoða pýramidana og heimsækja dal konunganna. Ferð sem prýdd er fullt af dásamlegum Egypskum perlum og í fylgd með íslenskum fararstjóra allan tímann. Nú er í boði einstakt tilboðsverð í þessa ferð – takmarkað framboð.
    Verð frá 559.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 2. – 12. nóv.

    Verð og dagsetningar

    2. – 12. nóv.  11 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.119.800 kr.
    Verð frá 559.900 kr.
    per farþega
    2. – 12. nóv.  11 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    739.900 kr.
    Verð frá 739.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 1 nótt á gisting í Luxor 5★ með morgunverði, 1 nótt á gisting í Aswan 5★ með morgunverði, 1 nótt á gisting í Cairo 5★ með morgunverði, 4 nætur á gisting í Hurghada 5★ með öllu inniföldu, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, innanlandsflug til Kairó, innanlandsflug til Aswan, allar skoðunarferðir og aðgangseyrir eins og tilgreint er í ferðaáætlun, og 5 stjörnu sigling um Níl með öllu inniföldu.
    Ekki innifalið í verði: Vegabréfsáritun sem skal greiða við komu til Kaíró, aukaferðir utan ferðalýsingar, annað sem ekki er tekið fram í ferðalýsingu, eða þjórfé.

    Ferðalýsing

    ÆVINTÝRALEG REISA

    Egyptaland er einstakt í sinni röð og hefur fóstrað háþróuð menningarríki síðustu 4.500 ár. Lífæð landsins hefur alla tíð verið stórfljótið Níl og á bökkum þess getur að líta stórkostlegar minjar um horfnar menningarþjóðir. Egyptar réðu yfir ótrúlegu verkviti og sýn­du trúarhita sinn og ótakmarkaða lotningu fyrir sínum háu herrum í gegnum stórfengleg musteri og listaverk.Ferðin hefst í Hurghada þar sem slakað er á fyrstu  dagana við Rauðahafið. Síðan er haldið til Cairó þar sem  píramídarnir miklu í Giza eru skoðaðir ásamt fleirum gersemum í Kairó, fljúgum síðan upp með Níl til Aswan, siglum með fljótaskipi niður Níl, dveljum í Luxor við Níl og endum svo aftur í  Hurghada áður en við fljúgum heim. Hvarvetna verður dvalið á góðum hótelum og víðast er innifalið fullt fæði og allar skoðunarferðir.  Íslenskur fararstjóri mun halda vel utan um hópinn ásamt innfæddum enskumælandi leiðsögumanni.

    Almennar ferðaupplýsingar:

    Bólusetningar: Best að hafa samband við heilsugæsluna og fá ráð og leiðbeiningar.

    Vegabréf: Nauðsynlegt er að hafa meðferðis vegabréf með gildistíma a.m.k. 6 mánuði fram yfir heimferðardag. Það er góð regla að kanna gildistíma vegabréfs í tíma fyrir brottför frá Íslandi. 

    Visa: Sækja þarf um vegabréfsáritun til Egyptalands. 

    Tímamunur: Tveimur klst. á undan íslensku klukkunni.

    Rafmagnsinnstungur: Sama og hér heima (220 volt).

    Ferðatími: Egyptaland er áfangastaður ferðamanna allan ársins hring. Sumur eru heit og veturnir hlýir. Gera má ráð fyrir að hitastig sé um 25 stig. Undantekningar koma þó fyrir, bæði upp og niður á við.

    Verslanir og þjónusta: Föstudagur er frídagur þannig að margar verslanir og þjónustustofnanir eru lokaðar en sumar verslanir opna um kl 14:00. Þá eru sumar verslanir einnig lokaðar á laugardögum. Stærri verslanir og kjörbúðir hafa rýmri opnunartíma. Bankar eru yfirleitt opnir 8:30-150:0 frá lau-fim.

    Fatnaður: Mælt er með léttum sumarfötum, höfuðfati, góðum skóm til léttrar göngu og nauðsynlegt er að hafa meðferðis peysu þar sem kvöldin geta verið svöl. Múslimskar konur klæðast oft fatnaði sem hylur fætur, handleggi og hár en slíkar óskráðar reglur ná ekki til vestrænna kvenna. Við stöku trúarlegar byggingar er ætlast til þess að konur hylji hár (t.d. með slæðu). Mælt er með að konur klæðist óflegnum klassískum fatnaði.

    Vatn: Er ekki drykkjarhæft og verður því að kaupa það í flöskum. 

    Þjórfé: Ekki innifalið. Fararstjóri mun gefa leiðbeiningar (sjá að neðan).

    Áfengi: Áfengi má drekka á hótelum og á sumum völdum stöðum. Leitið ráða hjá fararstjóra.

    Bænatímar: Múslimar biðja 5 sinnum á dag. Bænatímarnir eru Japji Sahib, Jaap Sahib, Twe Prasad Swaiye, Chaupai Sahib og Anand Sahib. Bænaturnar eru staðsettir all víða og kalla fólk inn til bæna 5 sinnum á dag. Óma þeir vítt og breitt um landið. Fyrsta bænin er snemma morguns og sú seinasta að kveldi. Múslimar snúa sér í átt til Mekka þegar þeir biðja og eru því örvar á flestum hótelum og stöðum sem vísa í átt til Mekka,. Þannig vita múslimar hvert þeir eiga að snúa sér þegar þeir biðja.

    Gjaldmiðill: Heitir Egypskt pund (EGP) og er 1 pund um 7 ISK . 10 pund því um 70 kr. 

    Hraðbankar: Hraðbankar eru bæði út á flugvelli og inn í borg. Ef skipta á peningum er best að skipta USD eða Evrum í pund. Óhagstæðara gengi er á flugvellinum. 

    Þjórfé: Skylda í Egyptalandi og skal miða við eftirfarandi:

    • Herbergisþerna: 5-10 EGP á nótt.
    • Þjónn í veitingasal skips: 25 EGP fyrir 3 kvöld
    • Áhöfn á fljótaskipi: 30 EGP á mann. Skal setja i umslag, merkja með káetunúmeri og skilja eftir í gestamóttöku.
    • Þjónn í hádegis-/kvöldmat: 5-10 EGP
    • Húsvörður í mosku/kirkju ef veitt er aðstoð vegna skófatnaður eða annarra hluta: 1-5 EGP
    • Klósettverðir: Ef hreint:m =1 EGP 
    • Börn sem hjálpa til með úlfalda, hesta eða asna: 5-10 EGP (eftir ferð).
    • Innlendur leiðsögumaður í heilsdagsferð: 85 EGP á mann 
    • Hálfsdagsferð: 45 EGP á mann 
    • Bílstjóri í heilsdagsferð: 50 RGP 
    • Hálfsdagsferð: 25 EGP 

    NOKKRAR STAÐREYNDIR UM EGYPTALAND

    • STÆRÐ: 1.000.450m ferkm. (næstum 10 sinnum stærra en Ísland).
    • MANNAFJÖLDI: um 114 milljónir íbúa.
    • HÖFUÐBORG: Kaíró (El Qahira), stærsta höfuðborg í Afríku.
    • STJÓRNARFAR: Forsetaþingræði.
    • FORSETI: Abdel Fattah al-Sisi (frá 2014)
    • FORSÆTISRÁÐHERRA: Mostafa Kamal Madbouly (frá júní 2018).
    • TRÚARBRÖGÐ: 90 % múslimar og 10 % kristnir.

    Dagskrá

    Dagur 1

    Flug með Neos frá Keflavík kl 08:30 til Hurghada. Frá flugvelli verður haldið á 5* hótel í Hurghada þar sem gist verður í 3 nætur við Rauða hafið og safnað þreki fyrir heillandi ævintýrin framundan.

        Dagur 2

        Frjáls dagur í Hurghada. Gist í Hurghada.
        Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

            Dagur 3

            Snorkl skoðunarferð. Gist í Hurghada.
            Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

                Dagur 4

                Flogið til Cairó um morguninn og tékkað inn á 5* hótel og gist í eina nótt.

                Heillandi skoðunarferð um Cairo.
                Í dag skoðum við Giza píramídana , eitt af sjö undrum veraldar og það eina sem enn stendur. Giza píramídarnir eru í raun þyrping nokkurra píramída og annarra bygginga sem eru taldar byggðar um 2.400 árum f. Kr. Helstu minjarnar eru þrír stórir og sex litlir píramídar, hinn mikli Sphinx og Grafar-hofið. Stærsti pýramídinn og sá elsti er 147 metra hár, í honum eru 2,3 milljónir tilhöggnir steinar og bygging hans tók um 20 ár. Sphinx, ljónið með mannshöfuðið, er höggvin út í kalkklett og er ein stærsta stytta heims. Grafarhofið var meðal annars notað til að breyta búkum látinna konunga í múmíur.
                Ferðin heldur síðan áfram að Sakkara píramídanum sem er talinn vera elsta stórframkvæmd forn Egypta og var byggður á tíma Djesre konungs um 2.700 árum f. Kr. Píramídinn er tröppulaga með sex lögum hvert ofan á öðru og er um 62 metra hár.
                Innifalið: Morgunverður og hádegisverður.

                    Dagur 5

                    Þennan dag verður haldið á vit leyndardóma Kairóborgar og munum við meðal annars skoða gamla hlutann af borginni “Old Cairo” og egypska safnið þar sem til sýnis eru yfir 120.000 hlutir og minjar frá síðustu 5000 árum. Þar má m.a. skoða múmíur, styttur og muni af margvíslegu tagi og ein deild safnsins er tileinkuð Tutankhamun faraó sem lá í grafhýsi sínu í 3.500 ár ásamt fjársjóði, gulli og skartgripum.
                    Einnig munum við kíkja á Khan El Khalili basarinn sem er elsti og frægasti markaður Mið-Austurlanda (settur á stofn árið 970) og þótt víðar væri leitað. Hér má gera reyfarakaup og rétt verð ræðst af sannfæringarkrafti viðskiptavina og kaupmanna.
                    Í lok dags verður flogið til Aswan og gist eina nótt.

                    Innifalið: Morgunverður og hádegisverður.

                        Dagur 6 — Spennandi skoðunarferð um Aswan fyrir hádegi

                        Helsta kennileitið eru hinar tvær geysistóru Aswan stíflur sem byggðar voru við efstu flúðir Nílar. Fyrstu ráðagerðir um stíflugerðina voru undir lok 19. aldar og Bretar reistu fyrstu stífluna árið 1902. Hún reyndist allt of lág og var hún hækkuð í tvígang án árangurs. Þá var ákveðið að reisa aðra stíflu ofar í ánni. Eftir byltingu Nassers 1952 virtust þær áætlanir í sjónmáli og Bandaríkjamenn og Bretar buðu lán til verksins. Erjur á svæðinu urðu til þess að Bretar og Bandaríkjamenn drógu lánsloforð sitt til baka. Nasser ákvað þá að þjóðnýta Súez-skurðinn, sem dró dilk á eftir sér, en tekjurnar af honum nýttu egypsk stjórnvöld þó til að ýta framkvæmdum úr vör. Sovétmenn komu síðan Egyptum til hjálpar með myndarlegri peningagjöf og stíflan varð að lokum hönnuð af Kremlarbúum.
                        Framkvæmdir hófust árið 1960 og miðlunarlónið náði fullri hæð árið 1976. Tilgangurinn með stíflugerðinni var að jafna vatnsmagnið í Níl og binda endi á flóð- og þurrkatímabil, auk þess að framleiða rafmagn og veita vatni í áveitukerfi til jarðræktar. Við skoðum þessa miklu framkvæmd sem hefur haft mikil jákvæð áhrif á egypskt samfélag.
                        Þá heimsækjum við Unfinished Obelisk og sjáum ókláraða steinsúlu (obelisk) sem fannst fyrir um 100 árum. Súlan er tileinkuð Hatshepsut drotningu sem var uppi fyrir um 3500 árum síðan.
                        Síðan skoðum við Philae hofin sem eru um 12 km frá Aswan.
                        Philae hofin eru tileinkuð gyðjunni Isis, sem hafði mörg hlutverk, m.a. stýringu helgisiða sem tengdust dauða, hún lífgaði framliðna, læknaði veika og var fyrirmynd móðurhlutverksins. Hofin hafa þá einstöku sögu að þangað komu pílagrímar um margra alda skeið; Egyptar, Grikkir og Býsans-búar frá Aust-rómverska keisaradæminu ( 395-1453 e. Kr.). Til að koma í veg fyrir að hofin færu á kaf við stíflugerðina í Níl voru þau hlutuð sundur og flutt ofar þar sem þau voru reist óbreytt, stein fyrir stein. Verkið var framkvæmt og kostað af UNESCO, Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna.
                        Um hádegi er innritað í fljótabátinn fyrir siglingu á Níl, hádegisverður um borð.
                        Gist í 3 nætur í 5* fljótabát á Níl.
                        Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

                            Dagur 7 — Kom Ombo hofið

                            Fyrsti viðkomustaður á siglingunni verða Kom Ombo hofin, sem standa á Nílarbökkum.
                            Kom Ombo hofin eru í yngra lagi og voru byggð 180-47 f. Kr. Þau eru einstök að því leyti að þau eru tvöföld og spegilmynd hvors annars, þ.e. salir, gangar, helgistaðir og aðrir íverustaðir voru eins byggðir í tveimur einingum og hvor um sig var tileinkuð einum guði. Önnur byggingin var musteri krókódílaguðsins Sobek, frjósemisguði og skapara heimsins. Hin byggingin var helgihús fálkaguðsins Hórusar, sonar Isis og Ósíris en þau voru systkin. Hlutverk Hórusar breyttist eftir því sem tímar liðu en helst er hann kenndur við himinhvolfið. Sannarlega kyngimagnaður staður!

                            Eftir heimsóknina í Kom Ombo heldur siglingin áfram til Edfu
                            Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

                                Dagur 8 — Skoðunarferð til Edfu Temple fyrir hádegi

                                Edfu hofið er eitt best varðveitta musteri forn-Egypta. Það var byggt á árunum 237-57 f. Kr. þegar Grikkir og nágrannar þeirra, Makedóníumenn, og enn seinna Rómverjar, höfðu erft Egyptaland eftir fráfall Alexanders mikla árið 323 f. Kr. Upphaflega var hofið tileinkað egypska guðinum Hórusi en fljótlega tók gríski guðinn Apollo hofið yfir, en Grikkir samsömuðu Apollo við Hórus. Á veggjum hofsins eru margar áritanir sem lýsa í smáatriðum byggingu þess og gefa margskonar upplýsingar um tungumál, trúarbrögð og dulmögn í Egyptalandi á tímum Grikkja. Tilbeiðsla í Edfu rann út í sandinn þegar Þeódósíus Rómarkeisari bannaði öll önnur trúarbrögð en Kristni á 4. öld e. Kr. Sú var raunin um mörg þau musteri sem voru enn við lýði í Egyptalandi og kristinn múgur rústaði fjölmörgum öðrum tilbreiðslum fornra trúarbragða. Af einhverjum ástæðum var musterunum í Edfu hlíft og þau féllu í gleymskunnar dá uns þau fundust á ný í sandinum árið 1860.
                                Siglt áleiðis til Luxor.
                                Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

                                    Dagur 9

                                    Eftir morgunverð tékkar hópurinn sig út af Nile Cruise fljótabátnum og þá liggur leiðin til Luxor sem er stútfull af forvitnilegum og glæsilegum fornminjum.
                                    Við byrjum á að skoða Karnak hofrústir. Þær eru staðsettar skammt norður af Luxor og eru líklega einar tilkomumestu, fjölbreyttustu og sannarlega stærstu rústir hins forna Egyptalands. Hofsvæðið samanstendur af fjórum musterum sem teygja sig yfir um 250 ekrur lands (1 ekra = ca. 4.000 ferm.) og er afrakstur uppbyggingar fjölmargra kynslóða í yfir 1700 ár, u.þ.b. frá 2050-300 f. Kr. Nú er aðeins einn hluti svæðisins opinn fyrir gestum og sá er tileinkaður sólguðinum Amon-Ra. Karnak er næst vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í Egyptalandi (næst á eftir Giza-píramídunum).
                                    Þá heimsækjum við Dal konunganna. Hér voru teknar steingrafir í tveimur dölum, eystri og vestari, á tímabilinu 16.-11. öld f.Kr. fyrir látna faraóa og æðstu embættismenn. Þegar síðustu (að talið er) grafir fundust árið 2008 hvíla hér jarðneskar leifar 63 forn-Egypta. Hinar konunglegu grafir eru skreyttar hvelfingar þar sem m.a. fundust ýmsir hlutir og tól sem gott var fyrir faraóanna að hafa með sér yfir móðuna miklu. Illu heilli hafa grafarræningjar gert sig heimakomna í flestum grafanna en þær gefa þó góða mynd af grafsiðum fornra tíma.
                                    Næst liggur leið að grafhýsi Hatseput faraós en hún var önnur af tveimur konum sem komust til æðstu metorða. Hatseput var faraó um hálfrar aldar skeið 1507-1458 f. Kr. en hafði í raun stjórnað ríkinu í umboði barnungs sonar síns, Tútmosar III, nokkur ár á undan. Faðir hans, Tútmos II , var eiginmaður og jafnframt hálfbróðir Hatseputar . Sérfræðingar í sögu forn-Egypta telja að Hatseput hafi verið einn farsælasti faraó Forn-Egypta og margir benda einnig á að hún sé fyrsta nafngreinda kona mannkynssögunnar. Stjórnarár Hatsputar voru miklir framkvæmdartímar í Egyptalandi og m.a. reisti hún sér stórt og tignarlegt minningarhof skammt frá Dal konunganna sem haldist hefur í ótrúlega góðu ásigkomulagi, þótt skrautgarðar á hverjum stalli séu fyrir bí.
                                    Frá minningarhofi Hatseputar liggur leiðin að risastyttum Memnons sem reistar voru á valdatíma Amenhoteps III faraós um 1350 f. Kr. og voru hluti af minningarhofi hans. Memnon var ein af hetjum Trójustríðsins og var konungur í Eþíópíu sem leiddi her sinn alla leið til Tróju á strönd Tyrklands í dag til að verja borgina fyrir árás Grikkja. Stytturnar, sem eru um 18 m. háar og vega hvor um sig 720 tonn, voru mótaðar í steinnámu nærri Cairó og fluttar landleiðina um 700 km leið því þær voru of þungar til að hægt væri að fleyta þeim upp Níl. Stytturnar hafa látið á sjá en Rómverjar reyndu að lagfæra þær og því sýnast stytturnar ekki vera gerðar úr einni steinblokk sem var raunin í upphafi.

                                    Gist á 5* hóteli í eina nótt í Luxor.
                                    Innifalið: Morgunverður og hádegisverður.

                                        Dagur 10

                                        Ekið til Hurghada og gist á á 5* hóteli í eina nótt.
                                        Frjáls dagur í Hurghada.
                                        Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

                                            Dagur 11

                                            Ekið á flugvöll í Hurghada eftir morgunverð.
                                            Innifalið: Morgunverður.

                                                Athugið

                                                • Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                • athugið að ef til þess kemur að Úrval Útsýn þurfi að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
                                                • athugið við bókun að gefa upp nafn eins og það er í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                • lokagreiðsla skal fara fram 12 vikum fyrir brottför
                                                • senda skal Úrval-Útsýn afrit af myndaopnu vegabréfs a.m.k. 30 dögum fyrir brottför.
                                                • kynningarfundur verður haldinn 4-6 vikum fyrir brottför.
                                                • ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.