Verið velkomin í aðventuferð til höfuðborgar Lettlands, Riga, sem er stærsta borg Eystrasaltsríkjanna. Riga er falleg borg sem er vert er að skoða og einnig gott að versla og njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Gott er að fylgjast með mannlífinu frá einu af fјölmörgum kaffi- og veitingahúsum miðbæjarins og versla í spennandi verslunum. Íbúar borgarinnar eru um 700.000 eða þriðjungur íbúa landsins. Leiðtogi Hanseveldisins, Albert von Buxthoven, stofnaði Riga árið 1201 og útvíkkað þá verslunarveldi Hansakaupmanna til austurs. Gamli bærinn í borginni er aldagamall og er á heimsminjaskrá UNESCO.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, og Beint flug með Air Baltic.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, skoðunarferðir, Þjórfé, City tax, eða máltíðir aðrar en morgunmatur.
Ferðalýsing
Riga er falleg borg sem er vert er að skoða og einnig gott að versla og njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Gott er að fylgjast með mannlífinu frá einu af fјölmörgum kaffi- og veitingahúsum miðbæjarins og versla í spennandi verslunum. Íbúar borgarinnar eru um 700.000 eða þriðjungur íbúa landsins. Leiðtogi Hanseveldisins, Albert von Buxthoven, stofnaði Riga árið 1201 og útvíkkað þá verslunarveldi Hansakaupmanna til austurs. Gamli bærinn í borginni er aldagamall og er á heimsminjaskrá UNESCO.
Á undanförnum árum hafa flott kaffihús sprottið upp í miðbæ borgarinnar, norræn matargerð rutt sér til rúms og hundruð húsa og bygginga endurbætt. Riga bar titilinn menningarborg Evrópu árið 2014.
Verð á fatnaði í Riga er mjög hagstætt og má finna vel unna latneska hönnun þar sem verð er sérstaklega hagstætt. Meðal heimamanna er vinsælt að versla föt á flóa mörkuðum og verslunum með notaðan fatnað (second hand) t.d. Humana og RDA.
Verslunarmiðstöðvar eru margar, t.a.m. Sky & More, Alfa og Galleri Riga. Í Gallerí eru þekkt merki á borð við Ecco, H&M, Mango og fleiri, ásamt latneskum tískuverslunum.
Einnig er skemmtilegt og vinsælt að versla í gamla hluta Riga; á Kalku götu, Elizabetes stræti og Terbatas stræti. Á horni Elizabetes og Marijas er Berga Bazar þar sem þar má finna þekkt vörumerki, kaffihús og veitingahús.
Fyrir bjóráhugamenn er tilvalið að kíkja á bari á borð við Labietis Alus Darbnica þar í boði er sér-bruggaður bjór og barsnakk með. Fullyrða má að góður bjór í Riga er snöggtum ódýrari en heima á Íslandi!
Þeir sem eru fyrir sætindi ættu að heimsækja Martina Bekerja og fá sér karamellufyllt sætabrauð.
Folklubs Ala Pagrabs er með þekktustu næturklúbbum Riga, með lifandi tónlist fimm sinnum í viku. Veitingarnar eru af ýmsum toga, Upplagt er að reyna Black Balsam sem
má segja að sé þjóðarlíkjör Letta.
VERT AÐ SJÁ:
Gamli bærinn er aldagamall og á heimsminjaskrá UNESCO. Þar svífa einnig yfir vötnum áhrif Art -Nouveau-stefnunnar í byggingalist. Gamla miðborgin er umkringd nýrri byg gingum með hverskyns þjónustu og fjölda verslana.
Í gamla hlutanum eru margar steinlagðar götur og torg. Þar má finna sögufrægar byggingar, til að mynda Hús Blackheads, Sænska hliðið sem svíar byggðu árið 1698 og Kattar-húsið. Útlit margra húsa er afar skrautlegt þar sem framhliðin er þakin bláu kóbalti með mannsandlitum, páfuglum og mynstrum. Rozena-stræti er þrengsta gatan þar sem auðvelt er að leggja hendur samtímis á veggina sitt hvoru megin.
Kastalinn við Daugava ána er einn af stærstu kastölum Lettlands og á sér langa og spennandi sögu. Kastalinn hefur verið endurbyggður
í þrígang en í dag hefur hann sex turna og veggirnir eru þrír metrar
að þykkt. Undir kastalanum hafa fundist leynigöng sem liggja í mismunandi áttir frá kastalanum sem er til merkis um válegt ástand á fyrri tíð.
Full ástæða er að horfa yfir Riga frá afmælistertu Stalíns sem er 107 metra há bygging með 766 herbergjum en þar er nú Vísindaháskóli Lettlands.
Á jarðhæðinni er tónleikasalur þar sem oft má njóta tónleika og leiksýninga.
Lettar lýstu yfir sjálfstæði árið 1991 í kjölfar upplausnar Sovétríkjanna. Frelsis-minnis merkið var hinsvegar afhjúpað árið 1935 og táknar baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði: Stúlka heldur á lofti þremur stjörnum sem merkja söng, vinnu og baráttu fyrir frelsi.
Lattneska óperu og ballet höllin er glæsileg bygging frá 1882, staðsett í hjarta Riga. Þar eru yfir 200 óperu- og ballet-sýningar frá september til júní. Hægt er að skoða höllina með leiðsögumanni og fara m.a. um baksviðið.