Dagskráin er mátulega mikil með Zumba og Yoga tímum á hótelinu. Í dásamlegu Yoga fá ferðafélagar góðar teygjur, aukinn styrk, meiri mýkt og dásamlega slökun. Í Zumba er dansað af gleði og innlifun í takt við frábæra tónlist. Útrás, kraftur og tær gleði. Við förum í yndislega siglingu og dagsferð til Puerto De Mogán, spilum minigolf og njótum lífsins.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Bull Eugenia Victoria 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, og aðgangur að heilsu- & líkamsrækt, aðgangur að spa, skemmti- og afþreyingardagskrá sérstaklega sniðin fyrir hópinn.
Ekki innifalið í verði:
Skoðunarferðir.
Ferðalýsing
Frábær Zumba- og Yogaferð til Kanarí þar sem áhersla er lögð á hreyfingu fyrir alla aldurshópa. Zumba er góð líkamsþjálfun sem veitir góða vellíðan og hreyfingu fyrir líkamann. Þar að auki verður í boði að dansa Zumba á og stunda jóga til að endurheimta kyrrðina í líkamanum, önduninni og huganum. Í ferðinni mun Caryna bjóða upp á skemmtilegan Zumba dans og yoga æfingar sem henta jafnt byrjendum og lengra komnum. Boðið verður upp á yoga á morgnana, Zumba dans, gönguferðir, góða samveru, mini golf, sameiginlega kvöldverði og fl. Æfingarnar henta öllum aldurshópum, hvort sem um er að ræða þol, styrk og liðleika. Ekki er hægt að byrja árið betur og koma með í heilsuferð og stefna að heilbrigðum lífsstíl árið 2023. Engin skylda er að mæta í alla dagskrána en ferðin snýst um að njóta sín og koma endurnærður heim.
Það eru ýmis stéttarfélög sem veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeiðum og fræðslu/endurmenntun. Við hvetjum þig til að kynna þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það sé fyrir þessa ferð.
Dagskrá
Dagur 1, þriðjudagur, 5. mars 2024
Flogið í beinu flugi til Kanarí með Neos
Rútuferð frá flugvelli að hóteli
Kl. 17:00 Komufundur með fararstjóra á Drago Bar á hótelinu
Dagur 2, miðvikudagur, 6. mars 2024
Kl. 07:00-10:00 Morgunverður
Kl. 10:00 Yoga og núvitund
Kl. 11:00 Zumba
Kl. 16:00 Gönguferð að Ensku ströndinni og nágrenni skoðað
Kl. 19:00 Sameiginlegur kvöldverður á Eugenia Victoria
Dagur 3, fimmtudagur, 7. mars 2024
Kl. 07:00-10:00 Morgunverður
Kl. 10:00 Yoga og teygjur
Kl. 11:00 Zumba
Kl. 13:00 Minigolf. Göngum að Yumbo Center og spilum skemmtilegt minigolf sem hentar öllum
Kl. 19:00 Kvöldverður á Eugenia Victoria
Dagur 4, föstudagur, 8. mars 2024
Kl. 09:00 – 15:00 Bátsferð og heimsókn til Puerto De Mogán
Við bjóðum ykkur upp á yndislega siglingu og ferð til Puerto De Mogán sem kostar aðeins 55 Evrur. Innifalið er akstur fram og tilbaka, léttir drykkir, tapas réttir og sigling. Hægt er að fá lánað snorkl græjur. Við verðum ein með bátinn ef við náum góðri þátttöku. Byrjað er á stuttri kynnisferð um fallega bæinn Puerto De Mogán. Við siglum síðan með ekta kanarískum bát, Yellow Boat sem er með mjög góð sæti og borð fyrir alla. Siglt er meðfram ströndinni að sveitaþorpinu Tasarte. Á leiðinni sjáum við klettabelti með litskrúðugum jarðlögum. Við getum átt von á að sjá flugfiska, höfrunga og syndandi risa skjalbökur. Þaðan er snúið við og siglt að El Perchel víkinni sem er aðeins hægt að komast að frá sjó. Þar er hægt að fara í sjóinn, snorkla fyrir þá sem vilja, en sjórinn er einstaklega tær á þessu svæði. Við víkina eru bornar fram léttar veitingar, drykkir eru í boði alla ferðina. Marta og Ruben taka vel á móti gestum, en það má til gamans geta að Marta er talin vera fyrsti kvenskipstjórinn á Gran Canaria í ferðamannaiðnaðinum. Missum ekki af spennandi ferð. Skráning og upplýsingar hjá fararstjóra.
Dagur 5, laugardagur, 9. mars 2024
Kl. 07:00-10:00 Morgunverður
Kl. 10:00 Yoga og núvitund
Kl. 11:00 Zumba
Kl. 16:00 Spa og dekur fyrir hópinn á Eugenia Victoria
Dagur 6, sunnudagur, 10. mars 2024
Kl. 07:00-10:00 Morgunverður
Hvíldardagur – upplagt að fara á ströndina og njóta lífsins
Dagur 7, mánudagur, 11. mars 2024
Kl. 07:00-10:00 Morgunverður
Kl. 10:00 Yoga og núvitund
Kl. 11:00 Zumba
Kl. 19:00 Lokahóf ferðarinnar sameiginlegur kvöldverður á vel völdum veitingastað
Dagur 8, þriðjudagur, 12. mars 2024
Akstur frá hóteli að flugvelli – nánari tímasetning hjá fararstjóra
Flogið til Keflavíkur með Neos
Gistingar í boði
Vel staðsett 3ja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Verslanir, veitingastaðir og barir í næsta nágrenni. Einstaklega fallegur og rúmgóður sundlaugagarður með snarlbar.
AÐSTAÐA
Garðurinn er stór og umlukinn fallegum gróðri, þar er góð sólbaðsaðstaða, stór sundlaug og barnalaug.
GISTING
Herbergin eru rúmgóð með gervihnattasjónvarpi, útvarpi, hárblásara, öryggishólfi og litlum ísskáp. Hægt er að fá barnarúm (þarf að panta) og á svölum eru húsgögn. Hægt er að biðja um einstaklingsherbergi með svölum. Sé óskað eftir því að vera á 6 hæð eða ofar þarf að bóka sérstök superior herbergi.
AÐSTAÐA
Stórgóður garður, umlukinn fallegum gróðri með sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstöðu.
AFÞREYING
Stór og glæsileg heilsurækt er á hótelinu og hafa gestir aðgangað henni án endurgjalds. Þar er stór sundlaug, nuddpottar, gufubað, tyrkneskt bað og hvíldarherbergi. Í boði eru margar tegundir af nuddi og snyrtingu gegn gjaldi. Reglulega er lifandi tónlist á hótelinu.
VEITINGAR
Á aðalveitingastað hótelsins er boðið upp á hlaðborð með réttum frá öllum heimshornum, snakk er í á daginn á sundlaugarbarnum. Bariri með skemmtun eins og karaoke, diskó og lifandi tónlist. Á daginn er mikið um að vera í garðinum, starfsfólk hótelsins sér um margs konar leiki og keppnir fyrir gestina. Hægt að velja um hálft fæði eða allt innifalið. Gestir sem velja „allt innifalið“ fá morgun-, hádegis- og kvöldverð á hótelinu ásamt völdum innlendum drykkjum.
FYRIR BÖRNIN
Á hótelinu er barnadagskrá, leikjaherbergi og tölvuherbergi.
STAÐSETNING
Hótel Eugenia Victoria er vel staðsett á hinni frægu Ensku strönd á Kanarí.
AÐBÚNAÐUR Á EUGENIA VICTORIA
Útisundlaug
Sólbekkir
Líkamsrækt
Leikjaherbergi
Barnadagskrá
Skemmtidagskrá
Heilsulind
Lifandi tónlist
Leikjaherbergi
Veitingastaður
Bar
Frítt internet
Bílastæði
Sólarhringsmóttaka
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar.
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
Kanarí / Gran Canaria
Áratugum saman hafa íslendingar sótt í dásamlegar strendur Gran Canaria og hefur eyjan verið einn vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar. Ungir sem aldnir finna varla betri stað fyrir sólarfrí. Stöðugt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla!
Úrval Útsýn býður íslendingum fjölda áfangastaða á Gran Canaria. Gisting er fjölbreytt og úrval er mikið af gæða gistingu á góðu verði.
Skemmtigarðar
Aqualand
Palmitos Park
Sioux City
Cocodrilo Park
Holiday World
Go Kart
Hangar 37
Angry Birds
Verslunarmiðstöðvar
Las Arenas
El Mirador
El Tablero
Atlanrico
Bellavista
El Faro
Afþreying
Hjólabátur
Bananabátur
Jetski
Fallhlíf úr báti
Kafbátur
Bátur með glergólfi
Fallhlífastökk
Enska ströndin (20 mín frá flugvelli)
Playa del Ingles er vinsæll ferðamannastaður en nafnið á bæði við um ströndina og bæinn. Ströndin teygir sig til San Augustin í austri og Maspalomas í vestri. Góð aðstaða er fyrir gönguferðir og hlaup við vitann í Maspalomas og sandöldurnar freista margra. Flestir þekkja verslunarkjarnana Yumbo Center, Kasbah, Cita og Faro 2.
Meloneras svæðið (30 mín frá flugvelli)
Meloneras svæðið er orðið sambyggt Ensku ströndinni að vestan. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Meloneras svæðinu, með áherslu á tengingu við náttúruna. Ströndin á Maspalomas er stór og þekkt fyrir mikla og sérstæða sandhóla sem gerir ströndina sérlega skemmtilega til fjölbreyttrar útiveru. Við vitann Boulevard El Faro er að finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum.
Puerto Rico – smábátahöfn (30 mín frá flugvelli)
Puerto Rico er afar sjarmerandi og fallegur bær á suðvesturhluta eyjunnar Gran Canaria. Bærinn hefur að mestu leyti byggst upp í kringum smábáthafnirnar en í dag eru þær orðnar tvær og við aðra þeirra er að finna ströndina Playa de Puerto Rico. Þar er að finna fallega veitingastaði við sjóinn sem og góða sólbaðsaðstöðu. Bærinn hefur byggst upp í kringum tvær víkur eða tvo dali og rísa hæðirnar í kring tignarlegar yfir svæðið. Í dalbotninum er svo að finna skemmtilegt svæði með verslunum, verslunarmiðstöðum, veitingastöðum og leiksvæðinu „Angry Bird’s“ sem hentar fyrir ungu kynslóðina. Rétt utan við bæinn er svo hin nýja og fagra strönd „Playa de Amadores“ þar sem hægt er að sóla sig á hvítum sandi allan daginn. Fagurblár sjór, veitingastaðir og verslanir eru við ströndina, en þar er einnig að finna Amadores Beach Club sem býður upp á bekki og veitingar í fallegu umhverfi. Playa de Puerto Rico státar af einu besta loftslagi sem fyrirfinnst á öllum Kanaríeyjunum allt árið um kring. Við mælum með að fólk leigi sér bíl og keyri meðfram strandlengjunni eða taki stræisvagna sem ganga á milli allra bæjanna á suðurhlutanum, því stutt er yfir til Puerto de Mogan og Playa del Ingles svæðanna. Við bjóðum upp á 5 ólíkar gistingar á þessu skemmtilega svæði. Sem dæmi er að finna falleg íbúðarhótel við smábátahöfnina sem hafa allt til alls og henta fólki sem kýs meiri “lúxus” og vill vera miðsvæðis. Fyrir þá sem þora og geta erum við einnig með gistingar í hlíðunum fyrir ofan svæðið en þaðan er ótrúlega fallegt útsýni yfir bæinn, smábátahöfnina og Atlantshafið. Þessar gistingar henta ekki þeim sem eiga erfitt með gang. Til að komast niður í bæinn er hægt að taka leigubíl sem tekur um 5 mínútur og kostar hvor leið um 5 evrur.
Puerto de Mogan — „litlu Feneyjar“ (45 mín frá flugvelli)
Einn af fallegustu bæjum eyjunnar er Puerto de Mogan, sem er staðsettur á suð-vestur hluta Gran Canaria. Puerto de Mogan er stundum kallaður “litlu Feneyjar” enda ekki skrýtið þar sem hafnarsvæðið er allt byggt upp í kringum lítil síki með fallegum veitingastöðum og skemmtilegum gönguleiðum milli húsanna. Þessi einstaki hafnarbær hefur að geyma ótrúlega fallegt og róandi andrúmsloft sem krefst þess að maður slaki á, njóti og nái algerri hvíld. Falleg strönd er við höfnina með veitingastöðum og börum. Þar fyrir ofan eru svo verslanir og útivistarsvæði. Gistingarnar okkar á svæðinu eru glæsilegar og hannaðar til að gefa fólki tækifæri á að slaka á og njóta hverrar sekúndu í fallegum vistarverum og görðum sem umlykja hótelin. Þetta svæði hentar öllum sem vilja “lúxus” og endurnæringu á líkama og sál.
Las Palmas – höfuðborg Gran Canaria (20 mín frá flugvelli)
Las Palmas er höfuðborg Gran Canaria og um leið Austurhéraðs Kanaríeyja, en eyjarnar eru tvö héruð af sautján héruðum Spánar. Í Las Palmas býr um helmingur allra íbúa Austurhéraðs. Þar er að finna fjölbreytilegt menningar- og mannlíf jafnt að nóttu sem degi, sérstaklega í gamla borgarhlutanum. Kaffihús eru þar á hverju strái sem og einstök flóra veitingastaða og öldurhúsa þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
ATH. Dagskráin getur breyst án fyrirvara
Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.