Þessi ferð um meginland Suð-Austur Asíu er bæði víðfem og djúp og fjölbreytileikinn mikill. Strax og komið er til Víetnam vakna upp minningar úr bókum og kvikmyndum um fjarlæga asíska staði. Trjónusniðnir basthattar, þokkafullir silkisíðkjólar, mannmergðin og ös hjóla og bíla á götunum, framandi matarlykt og margslunginn hljómur umhverfisins.
Kambódía er annar og ólíkur kafli. Hér er að finna þjóð ólíka öllum sínum nágrönnum með tungu af fjarlægum uppruna og sögu veldis sem er óviðjafnanleg um veröld alla því mannvirkin við Angkor eru engu lík og andblærinn í landinu svo hlýr og heillandi.
Svo er það Laos. Það er sko allt önnur Ella. Fólk verður yfirleitt strax hvumsa við komu því þó við vitum svo lítið um þetta landlukta ríki þá höfðum við ekki hugmynd um að Sjangríla væri í raun til og héti Laos. Staður þar sem tíminn virðist ekki líða og kyrrðin er dýpri en sumarnótt í Flatey.
Rúsínan í pylsuendanum eru svo ljúfir dagar í Bangkok þar sem sú magnaða borg er upplifuð með fararstjóra sem hefur kafað vítt og breitt í þau ævintýri sem þar leynast.
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 13 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og flogið með Emirates og Icelandair, allur akstur á milli flugvalla og gististaða eins og tilgreint er í ferðalýsingu, tilgreindar skoðunarferðir auk aðgangseyris, hálft fæði, þjónusta erlendra leiðsögumanna.
Ekki innifalið í verði:
Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum(áætlað um 100$), eða þjórfé persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan.
Ferðalýsing
Hér er boðið upp á stórkostlega ferð sem opnar undur og ævintýri, sögu og menningu þriggja skyldra en um leið gjörólíkra þjóða. Víetnam, Kambódíu og Laos. Þrjú lönd sem saman hafa oft verið nefnd Indókína og þekja austurhluta meginlands Suð-Austur Asíu.
Frakkar réðu þessum landsvæðum sem nýlendum sínum og nefndu Franska Indókína og er það viðurnefni byggt á hugmyndum sem ríktu á þeim tíma um að öll menning á þessum slóðum væri annað hvort uppruninn á Indlandi eða í Kína en meginland Suð-austur Asíu liggur á milli þessara fornu velda.
Þessi ferð er vandlega tálguð og sniðin að því að opinbera það athyglisverðasta í hverju landi. Val okkar á áfangastöðum og tilhögun allra ferða er byggð á einstakri reynslu og þekkingu Asíferðadeildar Úrval Útsýn.
Áhersla er lögð á að allur viðgjörningur sé til fyrirmyndar. Hótelin eru valin af kostgæfni m.v. staðsetningu, sjarma og þjónustu. Keppst er við að finna veitingastaði sem opinbera ekki bara einstaka matargerð hvers staðar heldur einnig þá menningu sem tengist matargerðinni og því mannlífi sem hún er sprottin úr. Matseðlar eru sérvaldir því hvert landsvæði býr yfir sínum sérkennum í mat og drykk sem kynnt verður ferðalöngum.
Vel staðsett og þrautreynd hótel krýnd fjórum stjörnum, elegans og sjarma hafa verið valin sem bækistöðvar leiðangursmanna.
Víetnam
Ferðin hefst í Hanoí, höfuðborg Víetnam, Hanoí er spennandi borg þar verður ferðast í riksjóvhjólum um miðaldarhverfið þar sem margir merkir staðir bera fyrir augu.Matarmenningu Hanoí verða gerð góð skil enda víetnamskur matur einstaklega bragðgóður. Þá má ekki gleyma því að víetnamskt kaffi er í sérflokki og ómissandi hluti af hverri heimsókn til Hanoí er að bragða hið fræga eggjakaffi.
Frá Suður-Víetnam er flogið til Mið-Víetnam og fyrsti áfangastaður er hin forna borg Hue. Við komu til borgarinnar hefst fjölbreytt skoðunarferð um Hue sem var áður höfuðstaður keisaraættar Víetnam.
Farið verður eftir bökkum Song Hong árinnar (Perfume River) í gegnum fallega garða og stöðuvötn og að grafhýsum Nguyenkeisaraættarinn. Einnig verður Thien Mu Pagóðan skoðuðu. Þaðan verður ekið að Khai Dinh og borgarvirki Nguyenkeisaraveldisins, sem réði yfir Víetnam frá 1802 til 1945. Hallarhverfið var nefnd hin Forboðna fjólubláa borg og er skemmtileg blanda af glæsileika sem bera vott um forna hirðsiði og eins er margt svo látlaust og alþýðlegt þar.
Snæddur er hádegisverður af matseðli konunganna, en í Hue hefur varðveiðst einstök matargerð, en þó eru engir geldingar lengur til staðar til að prufa réttina til að tryggja að þeir séu óeitraðir, líkt og konungarnir gerðu til forna.Næst er haldið að bænum Hoí An þar sem við tekur þriggja daga sæld. Hoí An er draumkenndur staður. Gamall og vel varðveittur bær sem ber vitni um dvöl Japana og Kínverja sem stunduðu verslun við heimamenn í bænum. Kyrrlát stræti, fallegt handverk sem selt er í gömlum verslunarhúsum og fjölbreytt úrval öndvegis matsölustaða einkennir Hoí An.
Rétt við Hoi An eru menjar um dýrlega menningu Chamfólksins sem byggðu þetta svæði á miðöldum. My Son nefnist safn hofa og grafhýsa sem reist voru á 4. til 14. öld og tilheyrðu því ríki sem nefnt hefur verið Champa. Því miður hafa margar byggingarnar mikið látið á sjá af tímans tönn en ekki síður af völdum bandaríkjamanna sem vörpuðu feykilegu magni sprengja á svæðið í Ameríska(Víetnam)stríðinu.
En Hoí An státar ekki bara af menningu og bæjarsjarma, því þar er einnig að finna góða baðströnd. Dvalið er í hóteli skammt frá ströndinni þaðan sem stutt er í bæinn. Frá Hoi An er flogið til Kambódíu þar sem allt annar heimur bíður leiðangursmanna.
Kambódía
Í Kambódíu mætum við Angkor. Hvar skal byrja ef lýsa á þeim undrum? Enn í dag hefur hvergi í heiminum verið reist stærri trúarleg bygging en Angkor Wat. Hofið var byggt í upphafi 12. aldar – fyrir um 900 árum. Stórkostleg er saga veldis Khmera sem stóð yfir um 600 ár og náði yfir stóran hluta af meginlandi Suðaustur-Asíu. Hagsæld khmeranna byggðist mikið upp á vatni, þá með snjöllu áveitukerfi og uppistöðulónum sem gerðu mönnum kleift að rækta hrísgrjón allt árið um kring. Í þessu blómlega og öfluga ríki voru reist hof og hallir sem eiga sér enga hliðstæðu í víðri veröld. Steinlagðir vegir lágu til Taílands með ríkisgistiheimilum og sjúkrahúsum. Turnar hofanna voru gullhúðaðir eða steyptir í kopar og að hirðinni safnaðist óviðjafnanlegur auður í gulli og dýrgripum. Fjölmennt var í ríkinu og þegar hæst stóð bjuggu um ein milljón manna í Angkor-borginni, en á sama tíma voru 50.000 manns í Lundúnum. Kröftugur her varði ríkið og haslaði sér völl til stranda Víetnam, inn til fjalla Laos og vestur að landamærum Búrma um Taíland.
Bækistöð leiðangursmanna við skoðun á Angkor verður í bænum Siem Reap, rétt við verndarsvæði Angkor. Sá bær er mikið ævintýri út af fyrir sig, með skrautlegum næturmörkuðum, gömlum miðbæ í frönskum nýlendustíl, fjölbreyttri flóru veitingastaða og litríku næturlífi.
Laos
Meðal landa í álfunni lætur Laos ekki mikið yfir sér. En mitt í geysilegri náttúrufegurð frumskóga og fjalllendis leynist gimsteinn sem verðskuldar svo sannarlega sess sinn á Heimsminjaskrá UNESCO. Það er hin seiðmagnaða borg Luang Prabang, en heimsókn þangað lætur engan ósnortinn. Þar eru á hverju strái minjar um ævaforna sögu, menningu, búddisma og byggingarlist líkt og tíminn hafi staðið í stað öldum saman.
Óvíða er að finna eins vel varðveitta og kjarngóða samsuðu menningararfs og myndrænna mustera — að ekki sé minnst á minnisvarða um nýlenduveldi Frakka í Indókína. Það er lýsandi fyrir þennan samhljóm ólíkra menningarheima að á milli heimsókna í hof og musteri bregður maður sér inn í ekta franskt bakarí og gæðir sér á ferskri bagettu. Útkoman er ekki bara sannkölluð veisla fyrir skilningarvitin heldur er afslappað andrúmsloftið, auðmjúkt viðmót og lífsgleði innfæddra líka nærandi fyrir æði og anda aðkomumanna.
BANGKOK
Á ferðinni um gamla Franska Indókína hafa þátttakendur kynnst þremur mjög ólíkum borgum; Hanoí, Siem Reap og Luang Prabang. Fjórða borgin sem ferðalangar kynnast í þessari stórbrotnu ferð er Bangkok, borg englanna. Þar blandast saman í eina ómótstæðilega ringulreið musterin, markaðirnir, tuk-tuk, veitingastaðirnir, nuddstofurnar, Muai-Thai-boxkeppnirnar og klæðskerarnir. Eins og Murray Head söng hér um árið, þá finnurðu guði (og gyðjur) í gylltum klaustrunum, en sætu stelpurnar eru ekki alltaf allar þar sem þær eru séðar – og það er bara hluti af göldrunum. Kínahverfið verður rannsakað að kvöldi ásamt því að prufa ævintýralegar kræsingar hjá völdum götusölum og daginn eftir verða helstu og merkustu kennileiti borgarinnar skoðuð s.s. konungshöll Chakrifjölskyldunnar, Arúnhofið auk þess sem siglt verður á langhalabát um borgarsíkin en eitt sinn var Bangkok nefnd Feneyjar austursins.
Um ferðatilhögun; flug, hótel og veitingar
Þegar flogið er um 7 tímabelti austur um hálfan hnött í langflugum er mikilvægt að velja sem besta flugleið og flugfélög. Við kjósum að fljúga með Icelandair og Emirates flugfélaginu sem er talið eitt allra best flugfélag í heimi. Farið er um Kaupmannahöfn og Dúbaí á leiðinni til Hanoí. Lagt af stað að morgni mánudagsins 10. nóvember eða kl 07:35. Eftir stutt stopp í Köben er flogið kl. 14:45 áfram austur og stoppað stutt í Dúbaí á miðnætti áður en síðasti leggurinn er farinn og lent er í Víetnam kl 12:40 daginn eftir.Heimflugið er frá Bangkok uppúr miðnætti laugardagsins 29. nóvember og sama leið er farin um Dúbaí og lent í Köben á hádegi og síðasti leggurinn til Keflavíkur er svo með kvöldvélinni frá Köben. Lent heima á miðnætti.
Flugin eru á einum flugmiða svo tengingar eru á ábyrgð Emirate og hægt er að innrita farangur alla leið. Leyfður er 23 kg farangur auk handfarangurs.
Innan Asíu er flogið með traustum og góðum flugfélögum og eru allir flugleggir stutti eða um klukkustund. Mottó ferðarinnar er að opna fólki þessi fjarlægu lönd með öllum sínum sérkennum, sjarma og framandleika hvort heldur í mat eða drykk hvað menningu og náttúru varðar eða mannlíf og sögu áhrærir.
Öll löndin bjóða upp á ævintýralega matarmenningu ekki eru það bara hinar asísku kræsingar sem bíða ykkar heldur einnig hinn franski keimur sem víða finnst eftir langa veru nýlenduherranna í Franska Indókína. Lögð verður áherslu á að ferðalangar fari hvergi á mis við hið stóra ævintýri sem hægt er að finna á diskum heimamann. Fö súpan kröftuga í Víetnam verður margreynd, hinar fersku hrísgrjónapappírsrúllur með grænmeti eða skelfisk og krassandi dýfum er spennandi og algengt lostæti eða grillréttir og ferskt sjávarfang bæði á einföldum alþýðustöðum eða uppdubbuðum hefðarstöðum.
Í Kambódíu leitum við að best Amok fisknum eða Lok Lak nautaréttinum og í Laos munum við njóta Káníjá-grónanna, Nam Tok nautakjöts eða fersks Som Tam salats. Frönsk rauðvín og calvados, foi gras og duck confit frá fransmönnum eða buffalógrill norðanmanna allt er þetta í boði. Hvað sem það verður þá verður það allt upplifun og ævintýri.
Við skipulag ferðarinnar höfum við keppst við að finna gististaði sem eru ekki bara náttstaður heldur líka upplifun og ævintýri útaf fyrir sig. Vel staðsett hótel veita ferðalöngum tækifæri til að njóta ævintýra hvers staðar vel á eigin nótum.
Valin hótel
Hanoi
The Q Hotel
Ninh Binh
Hidden Charm Hotel & Resort
Hoi An
Delicacy Hotel
Siem Reap
Angkor Village Hotel
Luang Prabang
Choasis Hotel
Bangkok
Montien Surawong Hotel
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.