Stingum af úr myrkri Íslands á miðjum vetri í exótík og dásemd við miðbauginn þar sem veðrið er hlýtt og sólin trygg. Höldum á vit ævintýra Taílands þar sem framandleikinn er samt svo blíður og þægilegur. Hér er létt og ljúf en þó innihaldsrík lúxusreisa um strandbæinn Hua Hin og höfuðborgina Bangkok. 8 dagar í vellystingum í Hua Hin og 2 dagar í einni ævintýralegustu borg heims. Einstaklega þægilegt flug sem færir ykkur 7 tímabelti austar yfir álfur og höf á meginland Suð-Austur Asíu. Flogið með Icelandair og Thai Airways flugfélaginu á tryggan máta á einum flugmiða sem gefur kost á innritun alla leið frá Keflavík til Bangkok.
    Sæki dagsetningar...

    Verð og dagsetningar

    Sæki verð...
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, flug með Icelandair og Thai Airways, gisting í tvíbýli með morgunmat í tilgreindum hótelum, allur akstur á milli flugvalla og gististaða eins og tilgreint er í ferðalýsingu, tilgreindar skoðunarferðir auk aðgangseyris, og íslensk fararstjórn og þjónusta erlendra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, eða þjórfé persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega.

    Ferðalýsing

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • 16. Janúar er flogið með Icelandair kl 07:35 frá Keflavík og lent 11:45 í Stokkhólmi
    • 16. Janúar er flogið áfram með Thai Airways frá Stokkhólmi kl 13:30 og lent í Bangkok 05:45 eftir næturflug
    • 28. janúar er flogið með Thai Air frá Bangkok kl 01.25 eftir miðnætti (farið á flugvöll að kvöldi 27.) og lent 06:55 í Stokkhólmi.
    • 28. Janúar er svo flogið áfram heim með Icelandair; 12:50-15:15