Fáar borgir hafa annan eins kraft og Berlín. Endalaust er hægt að ganga um og uppgötva eitthvað nýtt og spennandi. Fara á milli staða í neðanjarðarlestinni, stoppa á hinum heimsfrægu ölstofum borgarinnar eða grípa sér bradwurtz á götuhorni. Berlín er tilvalin fyrir hópa sem vilja njóta alls hins besta í mat, drykk og menningu.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á Leonardo Royal Hotel Berlin Alexanderplatz 4★ með morgunverði, og City Tax.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn.
Ferðalýsing
BERLÍN
Það er óhætt að segja að engin Evrópuborg sé eins mörkuð af sögu tuttugustu aldarinnar og Berlín. Borgin, eins og hún er nú og hið sérstæða andrúmsloft sem þar ríkir, hefur óhjákvæmilega mótast af skiptingu hennar í tvo gjörólíka heima um þrjátíu ára skeið. En Berlín hefur alltaf haft mikla sérstöðu í hugum Þjóðverja, jafnt jákvæða sem neikvæða.
Berlín var höfuðborg ríkis sem allt fram á síðari hluta 19. aldar var samsafn sjálfstæðra ríkja og ekki voru allir jafn sáttir við höfuðborgina. Á lýðveldisárunum, milli heimsstyrjaldanna, var Berlín villtasta og einhver mest spennandi stórborg álfunnar. Eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar má segja að þessi prússneska höfuðborg þar sem regla, agi og borgaraleg gildi voru ofar öllu hafi umturnast og orðið á skömmum tíma suðupottur pólitískrar ólgu, menningarlegrar gerjunar og taumlauss skemmtana- og næturlífs. Framúrstefnan réði ríkjum í listalífinu og listamenn flykktust til borgarinnar úr öllum áttum.
VERSLUN Í BERLÍN
KURFÜRSTENDAMM
Kurfürstendamm eða “Kudamm” er aðal verslunargatan í Berlín. Þar eru margar fallegar verslanir og stórar verslunarmiðstöðvar enda gatan gjarnan álitin ein glæsilegasta verslunargata Evrópu. Þar er að finna allar helstu verslanir eins og t.d . H&M, Zara, C&A og Mango, sem og fjöldan allan af allskonar verslunum á borð við Europa Center, Innovation og KaDeWe.
ALEXANDERPLATZ
Alexanderplatz er sennilega einn af þekktustu reitum Berlínar og þar er einnig frábært að versla. Zentral Merkthalle og Tietz eru vinsæl verslunarhús með ágætis úrvali verslana. Friedrichstrasse er ein af fallegustu verslunargötum í Berlín en þar er að finna verslanir eftir fræga hönnuði eins og Gucci, Louis Vuitton, Prada og Max Mara. Frá Friedrichstrasse má ganga í 10 mínútur að Mall of Berlin, sem er risastór verslunarmiðstöð á Leipziger Platz.
ÁHUGAVERÐIR STAÐIR Í BERLÍN
BRANDENBORGARHLIÐIÐ
Frá því Brandenborgarhliðið var reist á árunum 1788-91 hafa margir herir marsérað þar í gegn. Frá falli Múrsins eru nú hlutirnir aftur komnir í eðlilegt horf og hliðið orðið að tákni borgarinnar og sameinaðs Þýskalands. Á síðari árum hefur mesti hasarinn líklega verið Love Parade sem fer þar um einu sinni á ári.
BERLIN MITTE
Berlin Mitte eða gamli miðborgarhlutinn og hverfin út frá honum, sem áður voru í mikilli niðurníðslu, iða nú af lífi og lit og eru helsta aðdráttarafl borgarinnar. Samruni þessara tveggja borga eða borgarhluta hefur haft í för með sér að í Berlín er meira framboð af “öllu” en víðast hvar annars staðar, hvort heldur er á sviði menningar, lista, skemmtanalífsins eða verslunar. Í Berlín er allt tvöfalt og gott betur.
CHECK POINT CHARLIE
Leiðin milli borgarhlutanna , Vestur- og Austur-Berlínar, á tímum kalda stríðsins lá um landamærastöðina Cuheckpoint Charlie. Af henni er lítið eftir nema endurbyggður skúr og skiltið fræga sem segir: “Þú ert núna að yfirgefa bandaríska svæðið”. Stutt frá er Haus am Checkpoint Charlie sem kallar sig fyrsta safnið til heiðurs alþjóðlegum friðsamlegum mótmælum, og segir sögu þeirra sem létust eða voru fangelsaðir þegar þeir reyndu að fara frá austri til vesturs.
EAST SIDE GALLERY
Eftir að hluti Múrsins var nýtur til vegalagningar og í minjagripi fyrir ferðamenn er ekki mikið eftir af hinum alræmda Berlínarmúr sem féll í beinni útsendingu í nóvember 1989. Lengsti hluti hans sem enn stendur er 1,3 km langur og gengur undir nafninu East Side Gallery. Eftir að 118 listamenn frá öllum heimshornum mættu á staðinn með pensla og málningu árið 1990 telst galleríið vera stærsta safn heims undir berum himni. (Minnistæðasta myndin er örugglega af sögufrægum kossi kommúnistaleiðtoganna Honeckers og Brezhnevs.) Frá 1990 hefur hins vegar margt annað sett mark sitt á galleríið, til dæmis hefur það verið vinsælt viðfang fólks með tússpenna og spreybrúsa.
MAUERPARK FLÓAMARKAÐURINN
Mauerpark er opinn alla sunnudaga. Þar eru ýmsir sölubásar með vintage vörum, mat, drykk og fleiru. Markaðurinn er einnig frægur fyrir að halda, ef að vel viðrar, opið karaoke sem byrjar kl. 15:00. Þar fá allir tækifæri til að koma fram fyrir hóp fólks sem sem gjarnan telur fá ein hundruð.
PARK INN BY RADISSON BERLIN ALEXANDERPLATZ
Flott fjögurra stjörnu hótel í hjarta Berlínar og við sjálft Alexanderplatz. Þetta er hæsta hótelbygging Berlínar og býður gott útsýni yfir borgina.
Rúmgóð herbergi með wifi, sjónvarpi, loftræstingu og sér baðherbergi. Á hótelinu eru einnig Spa og líkamsrækt og þrír mismunandi veitingastaðir. Á efstu hæð hótelsins er bar, tilvalinn fyrir drykk og ómótstæðilegt útsýni.
Dagskrá
Dagur 1, fimmtudagur, 28. júlí 2022
Flug frá Keflavík til Berlínar með Icelandair kl.07:40, lent í Berlín kl.13.10.
Rúta bíður og keyrir hópinn á Leonardo Royal Hotel Alexanderplatz.
Dagur 2, föstudagur, 29. júlí 2022
Kl.14:00
Brot af því besta – skoðunarferð með Berlínum. Í þessari ferð sem tekur aðeins tvær til tvær og hálfa klukkustund er stiklað á stóru um stórbrotna sögu borgarinnar. Farið er gangandi frá aðalbrautarstöðinni (Hauptbahnhof) til Potsdamer Platz og er ferðin ekki nema ca. 2,5 km. Efni ferðarinnar er margbrotið og hoppað á milli tímabila um leið og gestir fá innsýn inn í hversdagsleikann í stórborginni.
Þetta er tilvalin ferð þegar ná á yfirsýn yfir sögu borgarinnar á stuttum tíma.
Íslenskur leiðsögumaður frá Berlínum.
Ath. skoðunarferðin greiðist sérstaklega.
Dagur 3, laugardagur, 30. júlí 2022
Engin dagskrá. Tilvalið að skella sér í hjólaferð eða í Hop on Hop off strætó, nú eða bara njóta mannlífsins.
Dagur 4, sunnudagur, 31. júlí 2022
Múrtúr – með Berlínum. Í ferðinni er farið yfir stórbrotna sögu aðskilnaðar Berlínar í austur- og vesturhluta á árunum 1961 til 1989. Í Múrtúr er gengið meðfram rústum Berlínarmúrsins og fjallað um aðdragandann að skiptingu Þýskalands, hversdaginn í Austurþýskalandi, eftirlitsríkið og hvað varð til þess að múrinn féll.
Berlínur hafa kafað djúpt í söguna og fengið flótta- og reynslusögur upp úr vinum og vandamönnum. Leiðsögnin einkennist því af raunverulegum aðstæðum og endurspeglar hversu átakanlegar aðstæður einkenndu líf alltof margra.
Íslenskur leiðsögumaður frá Berlínum.
ATH. skoðunarferðin greiðist sérstaklega.
Dagur 5, mánudagur, 1. ágúst 2022
Kl.13:30 sækir rúta hópinn á hótelið og keyrir út á flugvöll. Brottför með Icelandair kl.17:30 að staðartíma, lent í Keflavík kl.19:00 að íslenskum tíma.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 40.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.