Ferðaævintýri á vit fegurðar og ógleymanlegrar upplifunar. Prag er oft talin fegursta borg Evrópu, heillandi áfangastaður sem fær hjörtun til að slá af hrifningu og gleði. Fagrar byggingar, rætur gamallar sögu, sérstætt umhverfi, freistandi veitingastaðir og líflegar krár, allt þetta skapar seiðandi andrúmsloft sem laðar til sín ferðamenn allstaðar að úr heiminum.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 3 nætur á 3–4 stjörnu gistingu með morgunverði, og City Tax.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, Skoðunarferðir, flugvallarakstur, eða máltíðir aðrir en morgunverður.
Prag eða Praha á tékknesku, borg hinna 100 turna, hefur oft verið talin falinn gimsteinn þar sem leiðir lágu frekar til stóru borganna í vestur Evrópu. Eftir fall austantjaldsins jókst ásókn í fegurðina sem Prag hefur að geyma og nú er hún með blómlegustu og vinsælustu ferðamannaborgum Evrópu. Borgin á sína miklu sögu en frá árinu 870 hafa íbúar upplifað innrásir og yfirtöku hinna ýmsu valdhafa ásamt flóðum og borgarbruna og því þekkt fyrir úthald og varðveislu sem gefur borginni vissan karakter og gerir hana sjarmerandi og spennandi.
Prag er þekkt fyrir gömlu miðborgina með sínum þröngu strætum og fallegu torgum en hún er á heimsminjaskrá UNESCO, þar á meðal Kastalahæðin Hradcany og gamla borgin, Stáre Mesto, brúarhverfið Malá Strana og nýja borgin Nové Mesto. Hverfin í Prag hafa hvert sinn sérstaka sjarma og stemmningu en borgin er margbreytileg, forn og nútímaleg, rómantísk og farsæl og umfram allt heimsborg sem er vön að taka á móti ferðamönnum og komin tími til að kynnast.
Prag er einnig þekkt fyrir mat og drykk og mikið úrval veitingastaða sem bjóða upp á þjóðlegan sem og alþjóðlegan mat. Brugghúsin í Prag eru nú 35, sum ný en önnur sem byggja á eldri grunni. Kaffihúsin eru aðlaðandi og gott að slappa af og horfa á mannlífið og gaman að kíkja í listagallerí, verslanir og söfn. Hinn frægi tékkneski kristall er víða til sýnis og alltaf gaman að skoða. Þeir sem hafa áhuga á tónlist verða ekki sviknir því víða eru tónleikar í boði og einnig fyrir þá sem langar aðeins að hlusta á góða tónlist í smástund.
Áhugaverðir staðir
Vinsælir staðir að heimsækja eru án efa Stjörnuúrið, einnig kallað Postulaklukka staðsett við ráðhúsið, og gamla borgartorgið. Hún er ævagömul, byggð 1410 og hringir á heila tímanum frá kl. 9.-23 og sýnir þá postulana 12 í gluggum klukkunnar.
Karlsbrúin er einkenni borgarinnar Prag. Hún er elsta nústandandi brú yfir Moldá fljótið og ein elsta steinbrú Evrópu. Brúin tengir miðborgina við kastalahæðina og eru turnar með hliðum við sinnhvort endann.
Kastalinn í Prag (Pražský hrad) er stærsta kastalasamstæða heims. Hann var áður aðsetur konunga Bæheims og nokkurra keisara þýska ríkisins. Í dag er hann opinbert aðsetur forseta landsins. Í kastalanum eru tékknesku krúnudjásnin geymd.
Vítusarkirkjan er hluti af kastalasamstæðunni í Prag. Hún er dómkirkja og stærsta kirkja landsins. Í henni voru konungar Bæheims krýndir.
Vysehrad-kastalinn er eldri af tveimur kastölum í Prag, en elsti hluti hans er frá 10. öld. Á lóðinni er kirkja Péturs og Páls.
Teynkirkjan (einnig kölluð Frúarkirkjan) stendur við torg í gömlu borginni. Hún er frá 14. öld og skartar tveimur misháum turnum, kallaðir Adam og Eva. Í kirkjunni er elsta pípuorgel Tékklands. Þar hvílir einnig danski stjörnufræðingurinn Tycho Brahe.
Gyðingahverfið með sín hlykkjóttu stræti, þekkt úr bókum Franz Kafka, hefur laðað til sín margan ferðamanninn og vert er að skoða. Þar eru samkunduhús (High synagogue og fleiri), söfn (Jewish Museum) og Gamli-gyðingakirkjugarðurinn.
Svona mætti lengi telja en borgin er einnig þekkt fyrir arkitektúr frá hinum ýmsu tímabilum, gotnesk, endurreisn, barokk, rómanskt, art nouveau og funkis svo eitthvað sé nefnt.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.