Alicante Golf er þægilega staðsett, 15 mínútum frá miðborg Alicante og 10 mínútum frá bænum San Juan. Stutt er í verslun og á ströndina og nokkur skref á golfvöllinn. Á Alicante Golf er sex par 3 holur, sex par 4 holur og 6 par 5 holur sem gerir hringinn fjölbreyttan og skemmtilegan. Severiano Ballesteros hannaði þennan frábæra golfvöll, en völlurinn var opnaður 23 janúar 1998. Vallarmetið á Pepín Rivero sem var liðsmaður Ryder liðs Evrópu frá 1985-1987, en vallarmetið féll á fyrsta keppnisdegi spænskra meistaramótsins árið 2003, 62 högg.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, flutningur á golfsetti, afnot af golfbíl, ótakmarkað golf, og þjónustufulltrúi á staðnum.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn.
Athugið
- Staðfestingargjald er 40.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.