Golfvöllurinn er einn sá allra glæsilegasti í Egyptalandi – 18 holu championship-völlur hannaður með fjölbreytt landslag, breiðar brautir, vatnshindranir og sandbunkera sem krefja kylfinga af öllum getustigum. Ágætis æfingaaðstaða er á svæðinu með driving range og púttflötum. Hurghada býður einnig upp á ýmsa spennandi möguleika í frítímanum: köfun, siglingar, markaði, spa-meðferðir og skoðunarferðir inn í eyðimörkina – fullkomin viðbót við golfupplifunina.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 10 nætur á Steigenberger Makadi 5★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, 7 golfhringir á El Gouna Golf Club, flutningur á golfsetti, afnot af golfbíl, og akstur til og frá flugvelli.
Gistingar í boði
Athugið
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.