Friðsæld, fallegt landslag og fjölbreyttur gróður ásamt afar mildu veðurfari, heillar og laðar til sín ferðamenn víða að. Madeira er frekar lítil portúgölsk eyja, tæplega 800 ferkílómetrar, en saga hennar er afar forvitnileg. Eyjan sjálf og nálægu eyjarnar Porto Santo og Desertas eyjar voru mikilvæg bækistöð hins mikla landkönnunar- og nýlenduveldis Portúgala fyrr á öldum og drógu að sér sæfara og drekkhlaðin kaupskip sunnan úr heimi.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 14 nætur á Hotel Vidamar Madeira Resort 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, og akstur til og frá flugvelli.
Gistingar í boði
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Lokagreiðslan berist eigi síður en 12 vikum fyrir brottför