Rómarborg sjálf er eins og eitt stórt lifandi safn hvert sem augum er litið. Kvöldin í Róm eru engu lík, iðandi mannlíf við tröppur og torg og á veitingastöðum bíða ilmandi réttir sem Ítalir elda eins og þeim einum er lagið. Fátt er betra en að tylla sér á kaffihús einhversstaðar í þröngum götum gömlu borgarinnar og fá sér rómverska köku með ítölsku kaffi eða glas af einhverju köldu og freyðandi.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á gisting 4★ með morgunverði, og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið í verði:
Akstur milli flugvallar og hótels, skoðunarferðir, city tax (see greiðist beint á hótelinu), flugvallarakstur (valkvæður), eða máltíðir aðrar en morgunverður.
Gistingar í boði
Skoðunarferðir
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.