Úrval Útsýn býður upp á glæsilega golfferð til La Gomera. Spilað verður á hinum stórbrotna Tecina golfvelli, 18 holu meistaramótsvelli með einstöku útsýni yfir Atlantshafið og Tenerife.
Jörundur er fæddur á Akureyri en býr nú í Hafnarfirði og á Jótlandi og er þar í Holsterbru golfklúbbi. Jörundur, hafði forgöngu um stofnun GVS, ásamt Andrési Guðmundssyni, var fyrsti formaður GVS og var í stjórn þar í tólf ár. Hann er núna meðlimur í Keili og hefur spilað golf víða um heim, t.d. á La Gomera þar sem hann bjó í tæp þrjú ár. Jörundur er með 13,5 í forgjöf.
Verð og dagsetningar
3. – 10. okt.
8 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
679.800 kr. |
Verð frá
339.900 kr.
per farþega | |
3. – 10. okt.
8 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
409.900 kr. |
Verð frá
409.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Hotel Jardín Tecina 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, 6 golfhringir á Tecina Golf, flutningur á golfsetti, ferðataska og handfarangur, hálft fæði, 6 hringir á Tecina, og Sigling frá Tenerife yfir til La Gomera og til baka.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.





