Verið velkomin í viku RAF hjólaferð til einnar af elstu borgum Evrópu, Verona. Við munum einnig heimsækja þekktustu svæðin við Gardavatn. Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla vinsælda og Verona sem er oft kölluð borg ástarinnar. Í þessari ævintýralegu hjólaferð verður hjólað í Verona og við Gardavatnið.

    Verð og dagsetningar

    Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

    Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

    Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Hótel Villa Malaspinal 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, ítalskur leiðsögumaður þegar við á, leiga á rafhjólum, ein vínsmökkun, einn hádegisverður, eitt heimatilbúið snarl að hætti heimamanna, og fimm skoðunarferðir.
    Ekki innifalið í verði: Ferðamannaskattur, drykkir með kvöldverði, eða þjórfé.

    Ferðalýsing

    Dagskrá

    Athugið

    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
    • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
    • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
    • Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.