Heilsurækt huga, líkama og sálar til Kanarí er lífstílsnámskeið og upplifun þar sem Unnur mun bjóða upp á skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar og fyrirlestra sem endurhlaða líkama, vellíðan og sál. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og fleira.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Vital Suites & Spa Hotel 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, aðgangur að spa, aðgangur að líkams- og heilsurækt, jógadýnur eru í boði fyrir alla í heilsuferðinni, og dagskráin með Unni Pálmars.
Ekki innifalið í verði:
Skoðunarferðir, eða annað sem talið er upp.
Nánari lýsing
Heilsurækt huga, líkama og sálar til Kanarí er endurnærandi heilsu- og lífstílsnámskeið og upplifun þar sem Unnur mun bjóða upp á skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar og fyrirlestra sem endurhlaða líkama, vellíðan og sál. Boðið verður upp á morgungöngur á ströndinni, Fusion Pilates, Fitness Yoga, dansfjör, Tabata æfingar, styrkur og fleira verða á boðstólnum auk fyrirlestra sem fjalla um bætt heilsufar líkama, geðræktar, sálar og huga. Í ferðinni er lögð áhersla á að njóta líðandi stundar, minnka streitu, núllstilla hugann, slökkva á farsímum, fræðast um betri lífsgæði, stunda heilsurækt undir berum himni. Ávinningur starfsmanna er endurmenntun á sviðið starfsþróunar, heilsuræktar, fræðslu og hvernig er hægt að minnka streitu í lífi og starfi. Unnið er með hvernig hægt er byggja upp líkama og sál án streitu og andlegs álags og bæta samskipti á vinnustað. Ferðin er upplögð fyrir þá sem hafa lent í kulnun á vinnustað og eru að vinna sig frá streitu, núllstilla sig. Fyrirlestrar eru fræðandi og fjalla um bætta heilsu og vellíðan til að auka fræðslu og skilning á efninu.
Það eru ýmis stéttarfélög sem veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeiðum og fræðslu/endurmenntun. Við hvetjum þig til að kynna þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það sé fyrir þessa ferð.
Dagskrá
Dagur 1, þriðjudagur, 17. október 2023
Flug með Icelandair FI588 Brottför Keflavík kl. 09:20
Koma Las Palmas kl. 15:40
Akstur til Bull Vital Suit & SPA hotel
17:30 – 18:00 Fundur með fararstjóra í sundlaugagarði Vital Suits og farið yfir dagskrá vikunnar upphafsdagur dagskrá
Dagur 2, miðvikudagur, 18. október 2023
07:30 – 10:30 Morgunverður
08:30 – 09:30 Fusion Pilates og hugleiðsla
10:30 – 11:30 Fyrirlestur ,,Heilsurækt huga, líkama og sálar.”
11:30 – 12:30 Vettvangskönnun um svæðið
Dagur 3, fimmtudagur, 19. október 2023
07:30 – 10:30: Morgunverður
09:00 – 10:00: Morganga á Dunas De Maspalomas
10:00 – 11:00: Fitness Yoga á Dunas De Maspalomas
Hádegishressing á góðum veitingastað
Dagur 4, föstudagur, 20. október 2023 — Bátsferð og skoðunarferð til Puerto De Mogán
09:00 – 15:00 Bátsferð og heimsókn til Puerto De Mogán
Við bjóðum ykkur upp á yndislega siglingu og ferð til Puerto De Mogán sem kostar aðeins 54 Evrur. Innifalið er akstur fram og tilbaka, léttir drykkir, tapas réttir og sigling. Hægt er að fá lánað snorkl græjur. Við verðum ein með bátinn ef við náum góðri þátttöku. Byrjað er á stuttri kynnisferð um fallega bæinn Puerto De Mogán. Við siglum síðan með ekta kanarískum bát, Yellow Boat sem er með mjög góð sæti og borð fyrir alla. Siglt er meðfram ströndinni að sveitaþorpinu Tasarte. Á leiðinni sjáum við klettabelti með litskrúðugum jarðlögum.
Við getum átt von á að sjá flugfiska, höfrunga og syndandi risa skjalbökur.
Þaðan er snúið við og siglt að El Perchel víkinni sem er aðeins hægt að komast að frá sjó. Þar er hægt að fara í sjóinn, snorkla fyrir þá sem vilja, en sjórinn er einstaklega tær á þessu svæði. Við víkina eru bornar fram léttar veitingar, drykkir eru í boði alla ferðina. Marta og Ruben taka vel á móti gestum, en það má til gamans geta að Marta er talin vera fyrsti kvenskipstjórinn á Gran Canaria í ferðamannaiðnaðinum. Missum ekki af spennandi ferð. Skráning og upplýsingar hjá fararstjóra.
Dagur 6, sunnudagur, 22. október 2023 — Njótið dagsins
Frjáls dagur.
Dagur 7, mánudagur, 23. október 2023
07:30 – 10:30: Morgunverður
08:30 – 09:30: Fusion Pilates – Styrkur og hugleiðsla
11:00 – 12:00: Fyrirlestur ,,Sjálfstraust & sigurvissa”
12:00 – 13:00 Stöðvaþjálfun í tækjasal og DanceFitness
19:00 – 22:00: Lokahóf ferðarinnar. Kvöldverður og gleði.
Dagur 8, þriðjudagur, 24. október 2023
Heimferð með Icelandair
07:30 – 10:30: Morgunverður
Akstur á flugvöll nánari upplýsingar gefur fararstjóri
Athugið að dagskráin getur breyst án fyrirvara
Þátttaka í dagskránni er frjáls, engin skyldumæting er
Bull Vital Suites & Spa Sérferð ★★★★
Bull Vital Suites er góð 4ra stjörnu gisting rétt hjá Maspalomas Golf golfvellinum. Hótelið er tilvalið fyrir þá sem vilja spila golf. Hótelið er staðsett á friðsælum stað nálagt Maspalomas sandöldunum. Í nágrenni við hótelið eru ótal góðir veitingastaðir og barir og hin fræga Enska strönd er í 1 km fjarlægð frá hótelinu.
GISTING
Á þessu hóteli eru einungis rúmgóðar svítur sem samanstanda af einu svefnherbergi með hjónarúmi, stofu með svefnsófa og baðherbergi með baðkari. Svíturnar eru loftkældar og þar er að finna sjónvarp, síma, mini-bar, öryggishólf (gegn gjaldi). Öllum junior svítum fylgja svalir eða verönd.
AÐSTAÐA
Gróðursæll, fallegur garður með sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstöðu er við hótelið. Þar er einnig að finna Bali rúm til þess að slaka á í. Heilsulind hótelsins býður upp á nudd og margskonar snyrtimeðferðir ásamt líkamsræktaraðstöðu. Frítt internet er í gestamóttöku.
AFÞREYING
Góð setustofa þar sem gestir geta kælt sig niður og fengið sér fordrykk eða slakað á eftir góða máltíð. Hótelið er staðsett rétt hjá Maspalomas Golf og einungis 15 mínútna akstur er í aðra góða golfvelli.
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaðurinn El Capricco sem er hlaðborðsveitingastaður sem sérhæfir sig í Miðjarðarhafsmatseld og fjölbreyttum alþjóðlegum mat. Hann er opinn á morgnana og á kvöldin. Á hótelinu er einnig sundlaugarbar. Þeir sem eru með hálft fæði velja af matseðli forrétt, aðalrétt og eftirrétt svokallaður "Set Menu".
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett rét hjá Maspalomas Golf golfvellinum og hentar því kylfingum vel.
AÐBÚNAÐUR Á VITAL SUITES
Útisundlaug
Sólbekkir
Sundlaugabar
Stutt á stöndina
Líkamsrækt
Heilsulind
Gufubað
Nudd
Veitingastaður
Bar
Lifandi tónlist
Þvottahús
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar.
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
Kanarí / Gran Canaria
Áratugum saman hafa íslendingar sótt í dásamlegar strendur Gran Canaria og hefur eyjan verið einn vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar. Ungir sem aldnir finna varla betri stað fyrir sólarfrí. Stöðugt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla!
Úrval Útsýn býður íslendingum fjölda áfangastaða á Gran Canaria. Gisting er fjölbreytt og úrval er mikið af gæða gistingu á góðu verði.
Skemmtigarðar
Aqualand
Palmitos Park
Sioux City
Cocodrilo Park
Holiday World
Go Kart
Hangar 37
Angry Birds
Verslunarmiðstöðvar
Las Arenas
El Mirador
El Tablero
Atlanrico
Bellavista
El Faro
Afþreying
Hjólabátur
Bananabátur
Jetski
Fallhlíf úr báti
Kafbátur
Bátur með glergólfi
Fallhlífastökk
Enska ströndin (20 mín frá flugvelli)
Playa del Ingles er vinsæll ferðamannastaður en nafnið á bæði við um ströndina og bæinn. Ströndin teygir sig til San Augustin í austri og Maspalomas í vestri. Góð aðstaða er fyrir gönguferðir og hlaup við vitann í Maspalomas og sandöldurnar freista margra. Flestir þekkja verslunarkjarnana Yumbo Center, Kasbah, Cita og Faro 2.
Meloneras svæðið (30 mín frá flugvelli)
Meloneras svæðið er orðið sambyggt Ensku ströndinni að vestan. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Meloneras svæðinu, með áherslu á tengingu við náttúruna. Ströndin á Maspalomas er stór og þekkt fyrir mikla og sérstæða sandhóla sem gerir ströndina sérlega skemmtilega til fjölbreyttrar útiveru. Við vitann Boulevard El Faro er að finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum.
Puerto Rico – smábátahöfn (30 mín frá flugvelli)
Puerto Rico er afar sjarmerandi og fallegur bær á suðvesturhluta eyjunnar Gran Canaria. Bærinn hefur að mestu leyti byggst upp í kringum smábáthafnirnar en í dag eru þær orðnar tvær og við aðra þeirra er að finna ströndina Playa de Puerto Rico. Þar er að finna fallega veitingastaði við sjóinn sem og góða sólbaðsaðstöðu. Bærinn hefur byggst upp í kringum tvær víkur eða tvo dali og rísa hæðirnar í kring tignarlegar yfir svæðið. Í dalbotninum er svo að finna skemmtilegt svæði með verslunum, verslunarmiðstöðum, veitingastöðum og leiksvæðinu „Angry Bird’s“ sem hentar fyrir ungu kynslóðina. Rétt utan við bæinn er svo hin nýja og fagra strönd „Playa de Amadores“ þar sem hægt er að sóla sig á hvítum sandi allan daginn. Fagurblár sjór, veitingastaðir og verslanir eru við ströndina, en þar er einnig að finna Amadores Beach Club sem býður upp á bekki og veitingar í fallegu umhverfi. Playa de Puerto Rico státar af einu besta loftslagi sem fyrirfinnst á öllum Kanaríeyjunum allt árið um kring. Við mælum með að fólk leigi sér bíl og keyri meðfram strandlengjunni eða taki stræisvagna sem ganga á milli allra bæjanna á suðurhlutanum, því stutt er yfir til Puerto de Mogan og Playa del Ingles svæðanna. Við bjóðum upp á 5 ólíkar gistingar á þessu skemmtilega svæði. Sem dæmi er að finna falleg íbúðarhótel við smábátahöfnina sem hafa allt til alls og henta fólki sem kýs meiri “lúxus” og vill vera miðsvæðis. Fyrir þá sem þora og geta erum við einnig með gistingar í hlíðunum fyrir ofan svæðið en þaðan er ótrúlega fallegt útsýni yfir bæinn, smábátahöfnina og Atlantshafið. Þessar gistingar henta ekki þeim sem eiga erfitt með gang. Til að komast niður í bæinn er hægt að taka leigubíl sem tekur um 5 mínútur og kostar hvor leið um 5 evrur.
Puerto de Mogan — „litlu Feneyjar“ (45 mín frá flugvelli)
Einn af fallegustu bæjum eyjunnar er Puerto de Mogan, sem er staðsettur á suð-vestur hluta Gran Canaria. Puerto de Mogan er stundum kallaður “litlu Feneyjar” enda ekki skrýtið þar sem hafnarsvæðið er allt byggt upp í kringum lítil síki með fallegum veitingastöðum og skemmtilegum gönguleiðum milli húsanna. Þessi einstaki hafnarbær hefur að geyma ótrúlega fallegt og róandi andrúmsloft sem krefst þess að maður slaki á, njóti og nái algerri hvíld. Falleg strönd er við höfnina með veitingastöðum og börum. Þar fyrir ofan eru svo verslanir og útivistarsvæði. Gistingarnar okkar á svæðinu eru glæsilegar og hannaðar til að gefa fólki tækifæri á að slaka á og njóta hverrar sekúndu í fallegum vistarverum og görðum sem umlykja hótelin. Þetta svæði hentar öllum sem vilja “lúxus” og endurnæringu á líkama og sál.
Las Palmas – höfuðborg Gran Canaria (20 mín frá flugvelli)
Las Palmas er höfuðborg Gran Canaria og um leið Austurhéraðs Kanaríeyja, en eyjarnar eru tvö héruð af sautján héruðum Spánar. Í Las Palmas býr um helmingur allra íbúa Austurhéraðs. Þar er að finna fjölbreytilegt menningar- og mannlíf jafnt að nóttu sem degi, sérstaklega í gamla borgarhlutanum. Kaffihús eru þar á hverju strái sem og einstök flóra veitingastaða og öldurhúsa þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.