Hacienda del Alamo hótelið er glæsilegt 4 stjörnu hótel í El Corralón sem er stutt frá Murcia og liggur upp við einn af bestu keppnisvöllum Spánar. Íslenska landsliðið æfir á vellinum enda er æfingasvæðið og Hacienda golfvöllurinn í sérflokki.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, flutningur á golfsetti, morgunmatur, og einn golfbíll á bókun.
Athugið
- Staðfestingargjald er 40.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.