Efnismeiri ferð er erfitt að finna en Grand Indókína. Ferðin er bæði víðfeðm og djúp og fjölbreytileikinn mikill. Strax og komið er til Víetnam vakna upp minningar úr bókum og kvikmyndum um fjarlæga asíska staði. Trjónusniðnir basthattar, þokkafullir silkisíðkjólar, mannmergðin og ös hjóla og bíla á götunum, framandi matarlykt og margslunginn hljómur umhverfisins.
Kambódía er annar og ólíkur kafli. Hér er að finna þjóð ólíka öllum sínum nágrönnum með tungu af fjarlægum uppruna og sögu veldis sem er óviðjafnanleg um veröld alla því mannvirkin við Angkor eru engu lík og andblærinn í landinu svo hlýr og heillandi.
Svo er það Laos. Það er sko allt önnur Ella. Fólk verður yfirleitt strax hvumsa við komu því þó við vitum svo lítið um þetta landlukta ríki þá höfðum við ekki hugmynd um að Sjangríla væri í raun til og héti Laos. Staður þar sem tíminn virðist ekki líða og kyrrðin er dýpri en sumarnótt í Flatey.
Þegar frakkar réðu Indókína sögðu þeir:
Víetnamar sá hrísgrjónum
Kambódíumenn horfa á þau vaxa
Laosbúar hlusta á þau vaxa
Velkomin til Indókína!
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 21 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og flogið með Emirates og Icelandair, allur akstur á milli flugvalla og gististaða eins og tilgreint er í ferðalýsingu, tilgreindar skoðunarferðir auk aðgangseyris, hálft fæði eða 14 hádegisverðir og 7 kvöldverðir, íslensk fararstjórn og þjónusta erlendra leiðsögumanna.
Ekki innifalið í verði:
Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, þjórfé, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega í ferðalýsingu.
Ferðalýsing
Hér er boðið upp á stórkostlega ferð sem opnar undur og ævintýri, sögu og menningu þriggja skyldra en um leið gjörólíkra þjóða. Víetnam, Kambódíu og Laos. Þrjú lönd sem saman hafa oft verið nefnd Indókína og þekja austurhluta meginlands Suð-Austur Asíu.
Frakkar réðu þessum landsvæðum sem nýlendum sínum og nefndu Franska Indókína og er það viðurnefni byggt á hugmyndum sem ríktu á þeim tíma um að öll menning á þessum slóðum væri annað hvort uppruninn á Indlandi eða í Kína en meginland Suð-austur Asíu liggur á milli þessara fornu velda.
Þessi ferð er vandlega tálguð og sniðin að því að opinbera það athyglisverðasta í hverju landi. Val okkar á áfangastöðum og tilhögun allra ferða er byggð á einstakri reynslu og þekkingu Asíferðadeildar Úrval Útsýn.
Áhersla er lögð á að allur viðgjörningur sé til fyrirmyndar. Hótelin eru valin af kostgæfni m.v. staðsetningu, sjarma og þjónustu. Keppst er við að finna veitingastaði sem opinbera ekki bara einstaka matargerð hvers staðar heldur einnig þá menningu sem tengist matargerðinni og því mannlífi sem hún er sprottin úr. Matseðlar eru sérvaldir því hvert landsvæði býr yfir sínum sérkennum í mat og drykk sem kynnt verður ferðalöngum.
Vel staðsett og þrautreynd hótel krýnd fjórum stjörnum, elegans og sjarma hafa verið valin sem bækistöðvar leiðangursmanna. Og ekki bara fansí og fín hótel heldur einnig listisnekkja þar sem dvalið verður á í 2 nætur og 3 daga þegar siglt er um Halongflóa í Víetnam.
Víetnam
Ferðin hefst í Saígon, borg sem státar af einstakri blöndu af hraðri uppbyggingu og rómantískum nýlendutíma. Hún er heillandi og margslungin borg, með breiðstræti og borgarmynd sem minnir á viðveru Frakka er þeir gerðu Saígon að höfuðstað Franska-Indókína.
Görótt og fornt kínahverfi, Notre Dame-kirkjan og óperuhús hannað af Alberti Eiffel, götumarkaðir um öngstræti og urmull veitingastaða og verslana eru meðal helstu einkenna Saígon-borgar.
Frá Suður-Víetnam er flogið til Mið-Víetnam að bænum Hoí An þar sem við tekur fjögurra daga sæld. Hoí An er draumkenndur staður. Gamall og vel varðveittur bær sem ber vitni um dvöl Japana og Kínverja sem stunduðu verslun við heimamenn í bænum. Kyrrlát stræti, fallegt handverk sem selt er í gömlum verslunarhúsum og fjölbreytt úrval öndvegis matsölustaða einkennir Hoí An.
En Hoí An státar ekki bara af menningu og bæjarsjarma, því þar er einnig að finna góða baðströnd. Dvalið er á hóteli skammt frá ströndinni þaðan sem stutt er í bæinn.
Frá Hoi An er flogið til Hanoí, höfuðborgar Víetnam. Stefnan er sett á Halongflóa þar sem 3ja daga sigling bíður ferðalanga. En Hanoí er spennandi borg þar sverður ferðast um í riksjóvhjólum um miðaldarhverfið þar sem margir merkir staðir bera fyrir augu.
Matarmenningu Hanoí verða gerð góð skil enda víetnamskur matur einstaklega bragðgóður. Þá má ekki gleyma því að víetnamskt kaffi er í sérflokki og ómissandi hluti af hverri heimsókn til Hanoí er að bragða hið fræga eggjakaffi.
Halongflói er sagður einn fallegasti staður á plánetunni Jörð. Tignarlegir kalksteinsklettar rísa úr sæ með grænum skógarskúf umlukið fagurgrænum sjó. Siglt er um og búið í vönduðum timburbátum sem eru nýsmíði eftir fornri kínverskri fyrirmynd sem nefnd er júnka. Gist er í þægilegum káetum og kræsilegar máltíðar snæddar í elegant veislusölum. Frá morgni til kvölds er boðið upp á fjölbreytta skemmti- og skoðunardagskrá. Ankerum er kastað við litlar eyar þangað sem siglt er á smábátum til skoðunar, rennt er fyrir fisk og boðið uppá Thai Chi æfingar og matreiðslunámskeið um borð – svo eitthvað sé nefnt.
Laos
Meðal landa í álfunni lætur Laos ekki mikið yfir sér. En mitt í geysilegri náttúrufegurð frumskóga og fjalllendis leynist gimsteinn sem verðskuldar svo sannarlega sess sinn á Heimsminjaskrá UNESCO. Það er hin seiðmagnaða borg Luang Prabang, en heimsókn þangað lætur engan ósnortinn. Þar eru á hverju strái minjar um ævaforna sögu, menningu, búddisma og byggingarlist líkt og tíminn hafi staðið í stað öldum saman.
Óvíða er að finna eins vel varðveitta og kjarngóða samsuðu menningararfs og myndrænna mustera — að ekki sé minnst á minnisvarða um nýlenduveldi Frakka í Indókína. Það er lýsandi fyrir þennan samhljóm ólíkra menningarheima að á milli heimsókna í hof og musteri bregður maður sér inn í ekta franskt bakarí og gæðir sér á ferskri bagettu. Útkoman er ekki bara sannkölluð veisla fyrir skilningarvitin heldur er afslappað andrúmsloftið, auðmjúkt viðmót og lífsgleði innfæddra líka nærandi fyrir æði og anda aðkomumanna.
Kambódía
Í Kambódíu mætum við Angkor. Hvar skal byrja ef lýsa á þeim undrum? Enn í dag hefur hvergi í heiminum verið reist stærri trúarleg bygging en Angkor Wat. Hofið var byggt í upphafi 12. aldar – fyrir um 900 árum. Stórkostleg er saga veldis Khmera sem stóð yfir um 600 ár og náði yfir stóran hluta af meginlandi Suðaustur-Asíu. Hagsæld khmeranna byggðist mikið upp á vatni, þá með snjöllu áveitukerfi og uppistöðulónum sem gerðu mönnum kleift að rækta hrísgrjón allt árið um kring. Í þessu blómlega og öfluga ríki voru reist hof og hallir sem eiga sér enga hliðstæðu í víðri veröld. Steinlagðir vegir lágu til Taílands með ríkisgistiheimilum og sjúkrahúsum. Turnar hofanna voru gullhúðaðir eða steyptir í kopar og að hirðinni safnaðist óviðjafnanlegur auður í gulli og dýrgripum. Fjölmennt var í ríkinu og þegar hæst stóð bjuggu um ein milljón manna í Angkor-borginni, en á sama tíma voru 50.000 manns í Lundúnum. Kröftugur her varði ríkið og haslaði sér völl til stranda Víetnam, inn til fjalla Laos og vestur að landamærum Búrma um Taíland.
Bækistöð leiðangursmanna við skoðun á Angkor verður í bænum Siem Reap, rétt við verndarsvæði Angkor. Sá bær er mikið ævintýri út af fyrir sig, með skrautlegum næturmörkuðum, gömlum miðbæ í frönskum nýlendustíl, fjölbreyttri flóru veitingastaða og litríku næturlífi.
Svo er það höfuðborgin Phnom Penh. Þangað förum við til að skoða spennandi borg sem er á hraðri leið inni þann nútíma sem við þekkjum en fyrir rétt um 40 árum var þarna árið 0 og allt samfélagið tekið aftur í myrkur fornaldar með valdaráni rauðu khmeranna sem settu allt á annan endann í Kambódíu og murkuðu lífið úr þriðjungi þjóðarinnar á stuttum en hræðilegum valdatíma.
Við munum fara á Drápsvellina, Killing Fields, og í S21 fangabúðirnar og kynnast á þessum stöðum og þeim voðaverkum sem framin voru á tíma Rauðu Khmeranna. En dvölin í Phnom Penh er ekki bara dramatík og tregi því borgin er fjörug og falleg, einhverntíman svo fín að hún var nefnd París austurlanda. Með vel staðsettu hóteli gefst leiðangursmönnum tækifæri til að njóta veitinga og skemmtunar niður við Bassacfljótið auk þess sem við skoðum Silfurpagóðuna og höll konungsins sem situr þar aleinn og saknar sjálfsagt áranna sem hann dansaði ballett í París.
Um ferðatilhögun; flug, hótel og veitingar
Þegar flogið er um 7 tímabelti austur um hálfan hnött í langflugum er mikilvægt að velja sem besta flugleið og flugfélög. Við kjósum að fljúga með Icelandair og Emirates flugfélaginu frá Dúbaí sem er talið eitt allra best flugfélag í heimi.
Farið er um Amsterdam og Dúbaí á leiðinni til Saígon. Lagt af stað síðdegis 25. Febrúar eða kl 16:10. Eftir stutt stopp á Schipholflugvelli er flogið kl. 22:00 áfram austur og stoppað í morgunsárið í Dúbaí áður en síðasti leggurinn er farinn á milli 09:40 og 19:35 þegar lent er í Víetnam.
Heimflugið er einnig með mátulegum stoppum á milli fluga og lagt af stað uppúr miðnætti frá Hanoí og einnig stoppað í morgunsárið í Dúbaí áður en flogið er til Oslóar. Heimflugið er svo uppúr hádegi þegar flogið er 13:00 til Keflavíkur þar sem lent er 15:05.
Flugin eru á einum flugmiða svo tengingar eru á ábyrgð Emirates og hægt er að innrita farangur alla leið. Leyfður er 23 kg farangur auk handfarangurs.
Innan Asíu er flogið með traustum og góðum flugfélögum og eru allir flugleggir stuttir eða um klukkustund.
Mottó ferðarinnar er að opna fólki þessi fjarlægu lönd með öllum sínum sérkennum, sjarma og framandleika, hvort heldur í mat eða drykk, hvað menningu og náttúru varðar eða mannlíf og sögu áhrærir.
Öll löndin bjóða upp á ævintýralega matarmenningu, ekki eru það bara hinar asísku kræsingar sem bíða ykkar, heldur einnig hinn franski keimur sem víða finnst eftir langa veru nýlenduherranna í Franska Indókína.
Lögð verður áherslu á að ferðalangar fari hvergi á mis við hið stóra ævintýri sem hægt er að finna á diskum heimamann. Fö súpan kröftuga í Víetnam verður margreynd, hinar fersku hrísgrjónapappírsrúllur með grænmeti eða skelfisk og krassandi dýfum er spennandi og algengt lostæti eða grillréttir og ferskt sjávarfang bæði á einföldum alþýðustöðum eða uppdubbuðum hefðarstöðum. Í Kambódíu leitum við að best Amok fisknum eða Lok Lak nautaréttinum og í Laos munum við njóta Káníjá-grónanna, Nam Tok nautakjöts eða fersks Som Tam salats.
Frönsk rauðvín og calvados, foi gras og duck confit frá fransmönnum eða Saígon andasteik og buffalógrill norðanmanna, allt er þetta í boði.
Hvað sem það verður þá verður það allt upplifun og ævintýri.
Við skipulag ferðarinnar höfum við keppst við að finna gististaði sem eru ekki bara náttstaður heldur líka upplifun og ævintýri útaf fyrir sig. Vel staðsett hótel veita ferðalöngum tækifæri til að njóta vel á eigin nótum.
Valin hótel
Saigon
Paragon Saigon Hotel
Deluxe Room
Hoian
La Siesta Hoi An Resort
Standard Room
Halong
Athena Luxury Cruise
Private Cabin
Phnom Penh
Sun & Moon Urban
Deluxe Room
Siem Reap
Angkor Village Hotel
Garden View Room
Luang Prabang
The Grand Hotel
Deluxe Room
Halong
Hanoí La Siesta
Deluxe Room
Ha Noi
Paradise Elegance Cruise
Private Cabin
Vinsamlegast hafið samband við asiuferdir@uu.is og óskið eftir að fá nánari upplýsingabækling sendann.
Dagskrá
Dagur 1, sunnudagur, 25. febrúar 2024
Flogið 16:10 frá Íslandi til Amsterdam með Icelandair. Lent 20:25 og flogið áfram 22:00.
Dagur 2, mánudagur, 26. febrúar 2024
Lent 19:35 í Saígon. Móttaka. Ekið á hótel. Sameiginlegur kvöldverður (innifalinn) og kvöldvaka.
Dagur 3, þriðjudagur, 27. febrúar 2024
Eftir morgunverð er farið víða um Saígon og nágrenni. Cholon kínahverfið o.fl. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 4, miðvikudagur, 28. febrúar 2024
Ferðast um árósa Mekongfljótsins. Chu Chi göngin og Cao Dai hofin. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 5, fimmtudagur, 29. febrúar 2024
Flogið til Hua. Gamla höfuðborgin skoðuð; grafhýsi konunganna, forboðna borgin o.fl.. Ekið til Hoi An. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 6, föstudagur, 1. mars 2024
Dagsferð um nágrenni Hoi An. Rústir Champaveldisins við My Son o.fl. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 7, laugardagur, 2. mars 2024
Frjáls dagur við ströndina.
Dagur 8, sunnudagur, 3. mars 2024
Flogið til Kambódíu eftir morgunverð. Síðdegis er farið að Toul Sleng og Killing Fields. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 9, mánudagur, 4. mars 2024
Eftir morgunverð er farið víða um Phnom Penh og nágrenni. Konungshöllin, Silfurpagóðan o.fl. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 10, þriðjudagur, 5. mars 2024
Flogið til Siem Reap eftir morgunverð. Síðdegis er farið að Angkor Wat hofinu og notið sólseturs. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 11, miðvikudagur, 6. mars 2024
Heilsdags ferð um Angkor. Höfuðborgin Angkor Thom, frumskógarhofið Ta Promh o.fl. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 12, fimmtudagur, 7. mars 2024
Frjáls dagur – fjöldi valfrjálsra ferða í boði.
Dagur 13, föstudagur, 8. mars 2024
Ferð um Tonle Sap vatnið sem er fisksælasta vatn í heimi og var grunnurinn að veldi Angkor. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 14, laugardagur, 9. mars 2024
Heilsdags ferð um hof í nágrenni Angkor. Bantey Srei og Beng Melea. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 15, sunnudagur, 10. mars 2024
Eftir morgunverð er flogið til Luang Prabang í Laos. Gönguferð um gömlu borgina að kvöldi. Hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 16, mánudagur, 11. mars 2024
Eldsnemma er munkunum gefin ölmusa síðan er farið víða um gömlu borgina og siglt á Mekongfljóti. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 17, þriðjudagur, 12. mars 2024
Farið að Kuangsi fossunum og víðar í nágrenni borgarinnar. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 18, miðvikudagur, 13. mars 2024
Frjáls dagur í Luang Prabang. Val um fjölbreyttar valfrjálsar ferðir.
Dagur 19, fimmtudagur, 14. mars 2024
Morgun í Luang Prabang. Ekið á flugvöll eftir hádegi og flogið til Hanoí. Komið um kvöldmat. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 20, föstudagur, 15. mars 2024
Ferð um markverðustu staði höfuðborgar Víetnam. Einnar súlu pagóðan, grafhýsi Ho Chi Minh o.fl. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 21, laugardagur, 16. mars 2024
Að morgni er ekið til Halong þar sem sigling um flóan hefst. Fjölbreytt dagskrá. Hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 22, sunnudagur, 17. mars 2024
Áframhaldandi fjölbreytt dagskrá í draumkenndri siglingu um Halongflóa. Hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 23, mánudagur, 18. mars 2024
Sigling endar. Ekið til Hanoí. Farþegar hafa hótelherbergi til afnota fram að brottför að kvöld. Hádegisverður innifalinn.
Dagur 24, þriðjudagur, 19. mars 2024
Flogið frá Hanoí kl 00:40. Lent í Keflavík kl. 15:05 eftir millilendingu í Dúbaí og Osló.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.