Þetta er ferð fyrir metnaðarfulla ferðalanga sem vilja kafa dýpra og kynnast meiru en þeirri dásemd sem bíður allra á ströndum Balí. Í þessari ferð verður menningin krufin, komist í góða snertingu við mannlífi og fólkið í landinu og hinni iðagrænu og fallegu náttúru leyft að umlykja sig.
Frábær hótel, tálgað ferðaplan, fróðir leiðsögumenn og íslensk fararstjórn er góður grunnur að fullkominni ferð.
Dvalið er 4 nætur í fjallabænum Úbúd, 3 nætur í Candidasa á vesturhlutanum og alls 6 nætur við ströndina í Sanúr – bæði í upphafi og enda ferðarinnar.
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 13 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og flug með Emirates og Icelandair, gisting í tvíbýli með morgunmat í tilgreindum hótelum. Allur akstur á milli flugvalla og gististaða eins og tilgreint er í ferðalýsingu. Tilgreindar skoðunarferðir auk aðgangseyris. Kvöldverður við komu og hádegisverðir í öllum skoðunarferðum – alls 6 hádegisverðir. Íslensk fararstjórn og þjónusta erlendra leiðsögumanna..
Ekki innifalið í verði:
Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, þjórfé eða persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega í ferðalýsingu..
Ferðalýsing
Á Balí má kynnast dularfullri og seiðandi menningu eyjarskeggja, sjá dans barongskrímslanna, hlusta á bambus-sílófóna, láta dáleiðast af þokkafullum fingrum og stjörfum augum legong-dansaranna eða færa hindúaguðinum Visnú fórnir.
Náttúrufegurð Balí er stórkostleg, þar skiptast á tignarleg fjöll og grösugir dalir, beljandi ár og sindrandi lækir, kraumandi eldstöðvar og tær fjallavötn, hvítar strendur og háir sjávarhamrar. Landslagið er því að nokkru leyti kunnuglegt Íslendingum en veðrið og menning íbúanna af framandi toga. Í þessu fagra umhverfi er margt hægt að gera sér til skemmtunar og dægradvalar.
Á Balí má stunda margs konar æsandi útiveru með leiðsögn fagmanna svo sem köfun, brimbrettabrun, fjallaklifur, fljótasiglingar, kajakadól, skútusiglingar, hjólreiðar, stórfiskaveiðar og margt margt fleira.
Við komu til Balí er ekið til strandbæjarins Sanúr við austurströnd Badungtanga og á þeim dögum er suðurhluti eyjunnar skoðaðu auk þess sem bærinn sjálfur og nágrenni er kannað.
Eftir langt flug þar sem farið er austur um átta tímabelti og suður fyrir miðbaug er líka nauðsynlegt að eiga rólega daga og venjast ólíku loftslagi og fá tækifæri til að setja sig inn í þann framandi heim sem bíður ferðalanga á Balí og byrjar ferðin því rólega.
Strandbærinn Sanúr hefur sérstöðu á Balí. Daglegt líf og þarfir ferðamanna fara þægilega saman við hið skrautlega trúarlíf Balíbúa. Fólk af erlendum uppruna sem flust hefur til Balí hefur margt fundið sér heimili í þessum viðfeðma en látlausa bæ. Það setur einnig sinn svip á mannlífið og þann fínlega tón sem er að finna á ýmsum veitingastöðum og í þjónustu.
Á Sanúr eru fleiri músíkbarir en diskótek og gott úrval af látlausum og rómantískum veitingastöðum í stað þeirra smartheita sem finnast á Seminyak og Kutaströndinni hinum megin á Badungtanganum. Ströndin er aðgrunn með fallegu útsýni að Lembongan Penida eyjunum. Austurströndin gegnir líka mikilvægu trúarlegu hlutverki og nefnist Mata Hari í hindúískum fræðum enda ekki óvænt að rekast á trúarathafnir og samkomur heimamanna við strandlengjuna.
Eftir góða daga við ströndina er haldið til fjalla þar sem dvalið er í hinum mistíska og framandi Úbúdbæ sem hefur mest aðdráttarafl allra staða á Balí fyrir þá sem vilja kynnast sérstæðri menningu, listum og trúarsiðum íbúa Balí. Frá Úbúd er stutt til flestra fegurstu og forvitnilegustu staða á Balí og verður farið í dagsferðir þaðan auk þess sem gengið verður um bæinn með leiðsögumanninum og nágrennið kannað á varfærin og náin hátt.
Það er einhver útópískur hljómur í Úbúd sem fer ekki fram hjá neinum. Bærinn hefur verið þekktur sem miðja handverks og lista í gegnum tíðina og sl. áratugi hefur sú menning eflst með komu erlendra listamanna. Úbúd er víðfeðmur bær sem liggur um hæðir og dali Giyaniar konungsdæmisins. Kjarninn er við gamla markaðinn og konungshöllina þar sem stiginn er barong dans á hverju kvöldi og gammalan tónlist hljómar. Hvergi á Balí er eins auðvelt að nálgast og kynnast arfleifð og menningu eyjarskeggja en í Úbúd. Einstakt handverk jafnt í gömlum tréskurði, silfurverki og steinhöggi sem nútímalegum málverkum og skúlptúr. Þarna eru reyktir blúsbarir og djassbúllur, hippaleg kaffihús í bland við smarta veitingastaði og glæsilega vínbari. Allt er bútík og flott. Það er einhver hönnun og stæll á öllu þarna þó svo að allt sé svo gamalt og rótgróið.
Frá fjöllum Úbúd er svo haldið austur í hin fornfrægu konungsdæmi Karangasem og Klungkung en áður en hollendingar lögðu Balí undir var Balí skipt upp í átta konungsdæmi og enn gætir mikilla áhrifa þeirra t.d. eru konungsfjölskyldurnar enn með völd í trúarlegum efnum og búa í sínum höllum sem nefnast Puri. Dvalið verður í strandbænum Candidasa í þrjár nætur og dómshúsið Kerta Gosa í Klungkung skoðað með sínum einstæðu málverkum sem eru í svokölluðum wayang stíl og öll eru verkin stef við trúarhefð heimamanna.
Frumbyggjar Balí nefnast Balí Aga og búa þeir í einangruðum þorpum og halda sínum venjum og hefðum óbreyttum frá fornri tíð. Við heimsækjum þorpið Tenganan þar sem okkur gefst kostur á að kynnast menningu þeirra sem er að flestu leiti ólík því sem annarsstaðar finnst á eyjunni.
Á leið frá Candidasa og aftur til Sanúr þegar eftir eru þrjár nætur á Balí verður komið við í Goa Lawah hofinu sem er í helli þar sem þúsundir leðurblaka halda til.
Á síðustu dögunum á Balí verður aftur dvalið á ströndum Sanúr og alla frídaga eru ótal valfrjálsar ferðir í boði.
Flugleiðin til Balí
Það er ekki stutt leiðin frá okkar norrænu eyju suður til hinnar suðrænu eyju nánast hinum megin á hnettinum. Því höfum við valið sérlega þægileg flug með Emirates og Icelandair. Einn flugmiði alla leið sem gefur fólki möguleika á að innrita farangur alla leið frá Keflavík til Denpasar á Balí og um leið að hafa tengiflugin tryggð.
Hótelin á Balí
Dvalið verður á afbragðs hótelum á þremur stöðum á eyjunni:
Á ströndum Sanúr verður gist á Puri Santrian hótelinu sem er eitt af elstu og traustustu hótelum í Sanúr og hefur verið uppáhald fjölda gesta sem snúa þangað aftur og aftur til að njóta strandarinnar og þeirra tengsla sem hótelið hefur við lista- og menningarlíf bæjarins. Sérlega vel staðsett með fjölda veitingastaða rétt við. Þarna er góð heilsulind, öndvegis veitingastaðir og barir.
Í fjallabænum Úbúd verður dvalið á The Ubud Village sem er einfaldlega best staðsetta hótelið í bænum á miðri Monkey Forest götunni umvafið veitingastöðum, verslunum, listagalleríum og allri mögulegri þjónustu.
Á vesturlandinu verður dvalið á Ramayana í Candidasa sem er dýrindis höll niður við ströndina þar sem rúmgóð og vel útbúin herbergi og afbragðs veitingastaðir gera grunn að paradísarvist. Og að sjálfsögðu er heilsulind og nudd á staðnum og stöndin hrein dásemd.
Hafðu samband við asiuferdir@uu.is og við sendum nánari upplýsingar um ferðina.
Dagskrá
Dagur 1, þriðjudagur, 12. mars 2024
Flogið frá Keflavík kl. 07:50. Lent í Oslói 11:35. Áfram til Asíu 14:10. Næturflug.
Dagur 2, miðvikudagur, 13. mars 2024
Lent 16:30 eftir millilendingu í Arabíu. Móttaka. Ekið á hótel. Sameiginlegur kvöldverður.
Dagur 3, fimmtudagur, 14. mars 2024
Ferð um suður Balí. Frumkynning á menningu og náttúru eyjunnar.
Dagur 4, föstudagur, 15. mars 2024
Morgunganga við sólarupprás á strönd Sanúr. Dagurinn frjáls. Fjöldi valfrjálsra ferða í boði.
Dagur 5, laugardagur, 16. mars 2024
Dagur á eigin vegum við ströndina áður en lagt er af stað í hringferð um eyjuna.
Dagur 6, sunnudagur, 17. mars 2024
Eftir morgunverð er ekið til fjalla Giyanar með viðkomu á athyglisverðum stöðum.
Dagur 7, mánudagur, 18. mars 2024
Dagsferð um nágrenni Úbúd þar sem hof og hallir eru skoðuð.
Dagur 8, þriðjudagur, 19. mars 2024
Morgunganga um Úbúd. Það sem eftir lifir dags er frjáls.
Dagur 9, miðvikudagur, 20. mars 2024
Dagur á eigin vegum: fjöldi valfrjálsra ferða í boði.
Dagur 10, fimmtudagur, 21. mars 2024
Ekið vestur til Klungkung. Kerta Gosa dómhúsið, Besakih hofið o.fl. á dagskrá.
Dagur 11, föstudagur, 22. mars 2024
Ferð um Taman Ujing og Tirtagangga auk þess að skoða þorp frumbyggja Balí.
Dagur 12, laugardagur, 23. mars 2024
Dvalið á strönd Candidasa í rólegheitum.
Dagur 13, sunnudagur, 24. mars 2024
Ekið vestur til Sanúr að morgni. Skoðunarferðir á leiðinni.
Dagur 14, mánudagur, 25. mars 2024
Rólegheit á ströndinni. Fjöldi valfrjálsra ferða í boði.
Dagur 15, þriðjudagur, 26. mars 2024
Síðasti dagurinn á Balí er drjúgur. Flogið áleiðs heim á miðnætti.
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
Dagskrá getur breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna/góðra hugmynda. Gætið að sóttvörnum, gildistíma vegabréfs og tryggingum tímanlega.