Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Labranda Suites Costa Adeje 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, og akstur til og frá flugvelli.
Dagskrá
Dagur 1, miðvikudagur, 2. nóvember 2022
06:20 – 11:40:
NO3924 Keflavík – Tenerife
Akstur til hótelsins, fundur með fararstjóra – farið yfir dagskrá vikunnar
Dagur 2, fimmtudagur, 3. nóvember 2022
Létt ganga meðfram ströndinni að litla fiskiþorpinu El Puertito sem fengið hefur að standa án áreitis ferðamennskunnar. Gengið er um klettótta strandlengju með fallegum bergmyndunum úr sandsteini með útsýni yfir hafið. Farið er í gegnum dásamlega þorpið La Caleta sem þekkt er fyrir góða fiskiveitingastaði og næst er ströndin Los Morteros eða hippaströndin þar sem fólk býr meðal annars í tjöldum. Áður en komið er að El Puertito verður ströndin Diego Hernandez einnig á vegi okkar með hvítri strönd ef sjávarföllin bjóða upp á fjöru. Tilvalið er að hafa handklæði með í bakpokanum því líklegt er að tilfinningin um að dýfa tánum í tært grænblátt hafið komi sterklega yfir okkur á leiðinni. Tökum svo bíl til baka, fyrir þá sem vilja.
10:00 – 13:00:
La Caleta — Costa Adeje — 10 km. strandganga u.þ.b. 3 klst
Dagur 3, föstudagur, 4. nóvember 2022
Guaza er um 400 m hátt eldfjall sem stendur nálægt sjónum syðst á Tenerife, ekki langt frá Ensku ströndinni, hægra megin við Los Cristianos. Á toppi þess eru tveir gígar með sömu miðju. Hraun sem rann úr eldfjallinu í átt til sjávar myndaði hina þekktu Guaza-hásléttu og klettavegg sem liggur að sjó. Fjallið og útlínur hraunsins sjást vel á landakortum og loftmyndum. Á svæðinu eru einnig merkar fornleifar í formi hella og kofa og ófullgerðir steingerfingar af útdauðum tegundum. Þarna vaxa ýmsar tegundir af kaktusum og hefur verið varpsvæði fyrir ýmsa sjófugla og finkur. Heildarhækkun 460 m.
09:00 – 12:30:
Montana de Guaza — 9 km 3,5 klst
Dagur 4, laugardagur, 5. nóvember 2022
Frjáls dagur.
Dagur 5, sunnudagur, 6. nóvember 2022
Skemmtileg gönguleið um fjöllin milli smábæjanna Ifonche og Vilaflor í gegnum skóglendi stundum nokkuð grýtt landslag. Ifonche er í rúmlega 1040 m hæð yfir sjávarmáli, þaðan liggja nokkrar gönguleiðir og því vinsæll upphafspunktur göngufólks. Það sama má segja um Vilaflor. Það er staðsett í 1500 metra hæð yfir sjávarmáli og það sveitarfélag sem liggur hæst á gjörvöllum Spáni. Furuskógur umkringir bæinn, strætin eru blómleg og þar er mikið ræktað af kartöflum og vínviði. Allra fyrsta hótelið á suðurströndinni var staðsett í bænum. Heildarhækkun 732 m.
Þessi gönguleið er rétt fyrir ofan Adeje-svæðið og liggur upp stórbrotið gil að litlum fossi. Nokkuð er um gróður á leiðinni og klettótt landslagið stórbrotið. Þetta er vinsæl gönguleið og falleg en aðeins á fótinn. Heildarhækkun er um 500 m.
09:00 – 12:00:
Barranco del Infierno — 8 km, u.þ.b. 3 klst.
19:00 – 22:00:
Sameignlegur kvöldverður fyrir þá sem vilja
Dagur 8, miðvikudagur, 9. nóvember 2022 — Heimferð
12:30 – 12:45:
Akstur á flugvöll
15:05 – 20:40:
NO3925 — Tenerife — Keflavík
Labranda Suites Costa Adeje Adults ★★★★
Labranda Suites er fallegt 4 stjörnu hótel staðsett á hinu vinsæla Costa Adeje svæði, aðeins 400 metra frá Bláfána ströndinni Playa Fanabe. Hotelið er fyrir 18 ára og eldri
Útisundlaug, þakbar og veitingastaðir.. Nálægt hótelinu eru verslanir og veitingastaðir og Siam Park er aðeins í 1.5 km fjarlægð frá hótelinu.
GISTING
Svíturnar eru með stofu og svefnherbergi, stærð þeirra er um 38 fm. og stærð á svölum er um 5 fm., hámarksfjöldi í svítu eru 3 gestir. Junior deluxe svíturnar með sjávarsýn, sjónvarp bæði í svefnherbergi og stofu. baðherbergi með baðkar og sturtu, straujárn og strauborð og kaffivél. Allar svíturnar eru með öryggishólf,síma, hárþurrku og kæliskáp. Herbergin eru öll reyklaus. Ath að hægt er að óska eftir herbergi fyrir hreyfihamlaða.
VEITINGAR
La Costa er hlaðborðsveitingastaðurinn, athuga að gestir sem eru með allt innifalið geta farið í gestamóttöku hótels og óskað eftir að skipta út hlaðborði og borðað á "La Cucina di Luige" á la carte veitingastaðnum gegn aukagjaldi..
Barir: Tuqouoise sundlaugarbarinn, The Sail bar, þar sem ljúf tónlisthl´jomar, og Sunset Champagne Lounge þakbarinn sem býður upp á ljúft andrúmsloft, góða drykki og dásamlegt útsýni.
AFÞREYING
Balenesian sólbekkir, ljósabekkir og sundlaug, garðsvæði, verslunarsvæði er ekki langt frá og aðeins 400 metrar niður að Fanabe ströndinni þar sem hægt er að stunda vatnasport.
Tenerife
Tenerife hefur allt það að bjóða sem bestu sólarstaðir státa af. Eyjan er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Fjölskyldur geta notið alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða og í boði er fjöldi gististaða fyrir allar fjölskyldustærðir – allt frá íbúðum upp í stórglæsileg hótel. Bókaðu í tíma til að tryggja gistingu sem hentar þér og þinni fjölskyldustærð.
Ekki má gleyma að á Tenerife er flottasti vatnsrennibrautagarður heims, „Siam Park“, ásamt hinum stórglæsilega dýragarði „Loro Parque“.
Það skemmta sér allir vel á paradísareyjunni Tenerife!
Skemmtigarðar
Siam Park
Aqualand
Loro Park
Bubble Soccer
Arona Beach Park
Verslunarmiðstöðvar:
Siam Mall
Parque Santiago
Safari Center
Bahaia del Duque
Oasis
Afþreying:
Vatnasport
Gönguferðir
Verslanir
Frábærir veitingastaðir
Leikhús
TENERIFE SUR – SUÐURHLUTINN
Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Úrval Útsýn býður upp á gistingu á suðurhlutanum í Playa de las Américas, Los Cristianos og Costa Adeje. Allir þessir staðir hafa sinn sjarma og sitt einstaka andrúmsloft. Í Los Cristianos slær hjarta suðurhlutans þar sem ferðamannaiðnaðurinn byrjaði. Á því svæði búa eyjaskeggjar Tenerife en gamli bærinn er afar sjarmerandi með litlum þröngum göngugötum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana. Playa de Las Americas hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” en þar er frábært úrval verslana og veitingastaða á heimsmælikvarða. Costa Adeje svæðið er svo yndislegt og rólegt, með fallegum ströndum og stórglæsilegum gistingum.
SANTA CRUZ – HÖFUÐBORGIN
Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett við sjávarsíðuna á norð-austur hluta eyjunnar, undir fjöllum Anaga tangans. Þetta er glaðleg heimsborg, full af orku, og litast af persónuleika eyjaskeggja. Í borginni, sem er samvaxin La Laguna, er ótal margt að skoða en samanlagt búa þar yfir 400 þúsund manns sem gerir þær að stærsta þéttbýlissvæði Kanaríeyja. Borgin hentar sérstaklega vel til gönguferða. Hún er þakin fallegum görðum, flottum verslunargötum og býður upp á alla þá kosti sem stórar heimsborgir státa af. Hér er að finna mjög áhugaverðan byggingarstíl gömlu tímanna, samofinn nýjum stefnum og straumum arkítektúrs 21. aldarinnar. Santa Cruz er sú borg Spánar sem státar af flestum nútíma byggingum á litlu svæði.
Menningarlíf borgarinnar er talið einstakt enda mikið af áhugaverðum söfnum og listsýningum á heimsmælikvarða. Fyrir tónlistarunnendur er sinfóníuhljómsveit borgarinnar í fremstu röð Evrópuþjóða. Borgin er byggð upp við fallegar breiðgötur, svo kallaðar „Ramblas“. Í borginni er skemmtilegt andrúmsloft, sem er bæði róandi og seiðandi, án þess að missa hið skemmtilega yfirbragð lítillar heimsborgar. Hér eru frábærar verslanir, verslunarmiðstöðar, veitingastaðir og kaffihús. Í næsta nágrenni er einnig stærsta og glæsilegasta strönd eyjunnar „Las Teresitas“. Í einungis 15 mínútna ferð með sporvagni er komið til hinnar þekktu 500 ára gömlu fyrrverandi höfuðborgar Tenerife, La Laguna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstaka sögu og fallegar byggingar.
PUERTO DE LA CRUZ – NORÐURHLUTINN
Puerto de la Cruz er staðsett á norðurhluta eyjunnar og er einna þekktust fyrir að hýsa einn glæsilegasta dýragarð Evrópu, Loro Parque. Ferðalangar hafa heimsótt þessa einstöku borg frá Evrópu síðan um miðja 19. öld og er fyrsti eiginlegi sumarleyfisdvalarstaður Kanaríeyja. Borgin hefur yfir sér rólegt yfirbragð þar sem gamli og nýi tíminn mætast á mjög sjarmerandi máta.
Gamli bærinn státar af afar fallegum gömlum byggingum og höfnin sem er í lykilhlutverki þjónaði vínútflutningi frá La Orotava dalnum í nokkur hundruð ár. Bærinn La Orotava er verðugur áningastaður þar sem eru stórglæsileg hús og hallir ásamt kirkjum sem skreyta bæinn. Við sjávarsíðuna er svo að finna afar fallegan sundlauga- og lystigarð, Lago Martiánes, sem þjónar borginni sem einskonar strandgarður, því fáar baðstrendur eru við borgina.
Í Puerto de la Cruz er einnig að finna mikið af skemmtilegum verslunum, en til að mynda er þar stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar, La Villa sem er staðsett rétt fyrir utan bæinn. Einnig er þar elsti skrúðgarður (Botanical Garden) Tenerife. Fallegar göngugötur, torg og garðar toppa svo þessa fallegu borg. Hér er mikið úrval af glæsilegum veitingastöðum, börum og kaffihúsum, bæði í gamla bænum sem og í næsta nágrenni hans.
Puerto De La Cruz er klárlega staður sem vert að skoða!
AFÞREYING Á TENERIFE
Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast enda nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Gaman er að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park, þar sem þú getur meðal annars rennt þér niður 28 metra rennibraut nánast í frjálsu falli sem endar með ferð í gegnum hákarlabúr! Eða farið á stærstu go-kart braut Evrópu.
Við nánast hverja strönd á Tenerife er mikið úrval vatnaíþrótta -> sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun svo eitthvað sé nefnt.
VERSLUN Á TENERIFE
Á Tenerife er fjöldi verslana og verslunarmiðstöðva með þekktum vörumerkjum. Tvær nýlegar eru: Parque Santiago 6 og Siam mall . Fararstjórar bjóða líka upp á mjög skemmtilega verslunarferð til höfuðborgarinnar Santa Cruz á mánudögum þar sem er meðal annars hægt að fara í stóra HM -verslun og í Primark.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
Athugið að dagskráin getur breyst án fyrirvara.
Fararstjórar áskilja sér rétt til að færa til gönguleðir og breyta eftir veðri og færð í samráði við gönguleiðsögumenn.
Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.