Komdu með til Alicante í golfkennslu og golf með Böðvari Valgeirssyni, gist í viku á El Plantio Resort, íbúðarhótel með morgunverði staðsettur við golfvöllinn. Golfkennsla á morgnana, síðan spilað 9 holu par 3 völlinn eftir hádegið. 8 nætur með 6 dögum af golfkennslu og golfi.
Í golfskólanum eru mest 12 nemendur og því er kennslan mjög persónuleg. Hvort sem kylfingar eru með lága forgjöf eða eru að stíga sín fyrstu skref þá hentar skólinn öllum og allir fá verkefni við sitt getustig. Kennt er í 6 daga, kennsla er að lágmarki í tvær klukkustundir á skóladögum og inniheldur kennslan eftirfarandi.
Eftir að skóla líkur að morgni og hádegisverð þá eiga allir kylfingar rástíma á golfvellinum, þeir sem eru að byrja fara með Böðvari á 9 holu par 3 völl sem hentar mjög vel til að læra fyrstu skref íþróttarinnar.
Böðvar er menntaður PGA golfkennari sem leggur áherslu á að hjálpa kylfingum að bæta leik sinn og byggja upp sjálfstraust á vellinum ⛳️ Hann starfar í dag sem golfþjálfari fyrir börn og unglinga auk þess að kenna bæði hóp- og einkatíma fyrir kylfinga á öllum getustigum. Böðvar leggur áherslu á skýr samskipti, hagnýtar framfarir og að skapa skemmtilega upplifun í golfi. Böðvar hefur einnig starfað sem leiðbeinandi í golfferðum á Spáni og þekkir svæðið einstaklega vel. Fjölskylda hans hefur átt hús á Spáni síðan 1998 og því hefur hann sterka tengingu við spænska menningu, matargerð og golfmenningu ☀️🇪🇸
Verð og dagsetningar
28. sept. – 6. okt.
9 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
669.800 kr. |
Verð frá
334.900 kr.
per farþega | |
28. sept. – 6. okt.
9 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
389.900 kr. |
Verð frá
389.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 9 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og golfskóli með Böðvari Valgeirssyni.
Ekki innifalið í verði:
Golfhringir á komu- og brottfarardegi.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.



