Frábær ferð fyrir golfara á öllu getustigi og fyrir þá sem langar að læra golf. Boðið verður upp á kennslu og ótakmarkað golf fyrir alla. Dvalið verður á Alicante Golf og allar unaðssemdir nágrenisins og Alicante-borgar aðgengilegar eftir hentugleika - og undir leiðsögn fararstjóra.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Alicante Golf 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, afnot af golfbíl, golf alla daga, og golfkennsla (3 x 30 mín).
Ekki innifalið í verði:
City tax, þjórfé, eða skoðunarferðir.
Alicante Golf ★★★★
Hótelið stendur við glæsilegan 18 holu golfvöll sem er hannaður af Severiano Ballesteros. Við hliðina á golfvellinum og hótelinu er kjarni þar sem finna má skemmitlega bari, kaffihús og matsölustaði. Um helgar er fjörugt diskó/dans líf á torginu. Auk þess eru þar apótek, lítil verslun og hraðbanki. Frá hótelinu er um 10 mínútna akstur til miðborgar Alicante þar sem er að finna fjörugt næturlíf og spennandi og fjölbreytta flóru veitingastaða. Það er um 10 mínútna gangur frá hótelinu á fallega strönd. Á leiðinni á ströndina eru skemmtilegar ekta spánskar verslanir og veitingahús. Í Alicante er fjöldinn allur af spennandi verslunum sem vert er að kíkja í fyrir þá sem vilja gera góð kaup. Stærsti verslunarkjarninn (Mall) Plaza Mar 2 er ekki langt frá Husa, þar eru allar helstu verslanirnar. Í Alicante búa 300.000 manns. Borgin er full af iðandi mannlífi og kemur alltaf skemmtilega á óvart, enda er stundum sagt að Alicante sé eitt best geymda leyndarmál Spánar.
Alicante
Borgin Alicante er staðsett í hjarta Costa Blanca á Spáni og er höfuðborg héraðsins. Borgin er gullfalleg gömul, spænsk borg með heillandi miðbæ sem iðar af mannlífi. Þar ríkir mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingastaða borgarinnar.
Í Alicante er að finna fjölda áhugaverðra safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Næturlíf borgarinnar er alþekkt og geta skemmtanaþyrstir ferðalangar valið á milli aragrúa af börum, öldurhúsum og diskótekum.
Ekki spillir fyrir að við borgina er frábær 7 km löng strönd og hótelin okkar eru staðsett nálægt ströndinni. Ferð til Alicante borgar sameinar því sólar- og borgarferð sem inniheldur strandlíf og slökun ásamt því að njóta alls þess er borgin hefur upp á að bjóða.
GAMALL SJARMERANDI BÆR
Svæðið í kringum Alicante hefur verið heimili mannsins í yfir 7000 ár. Leifar af elstu byggðum er m.a. að finna í hlíðum Mount Benacantil en kastalinn Santa Barbara stendur í hlíðum fjallsins. Kastalinn er upprunalega frá 9. öld en honum hefur verið viðhaldið og endurbyggður í aldanna rás. Árið 1963 var kastalinn opnaður almenningi og í dag er hægt að taka lyftu upp í 166 m hæð, skoða kastalann og njóta útsýnisins.
FORNMINJAR OG SPENNANDI MARKAÐIR
Í Alicanteborg gefst tækifæri til að skoða margar fallegar minjar frá tímum máranna en Dómkirkjan San Nicolas er mjög falleg og vel þess virði að leggja leið sína þangað meðan á dvölinni stendur. Einnig eru forvitnilegir handverksmarkaðir í borginni og rétt við höfnina er mikið um götusala.
FALLEGAR STRENDUR
Strendur Alicante eru fallegar og þar er mannlífið litríkt. Við höfnina er fjöldi bara og veitingastaðir í röðum.
Alicante
VERSLUNARMÖGULEIKAR
Mikið úrval verslana er að finna á göngugötunni, Rambla, til dæmis El Corte Ingles, Zara og H&M. Einnig er þar mikið úrval veitingastaða, s.s. tapas sem og spænskir, kínverskir og mexíkanskir staðir.
SKEMMTILEGT SVÆÐI Í KRING
Ef farþegar ákveða að taka bílaleigubíl eru margir fallegir staðir í kringum Alicante sem vert er að skoða. Má þar nefna bæinn Alcoy sem er mjög fallegur. Þar er hátíð mára og kristinna haldin í apríl ár hvert. Einnig er bærinn Altea mjög fallegur og algjörlega þess virði að gera sér ferð þangað.
Athugið
Staðfestingargjald er 40.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.