Il Picciolo Etna Golf Resort er einstakur dvalarstaður staðsettur við rætur eldfjallsins Etna á Sikiley, umvafinn náttúrufegurð og ró.
Þetta er fyrsti 18 holu golfvöllurinn sem opnaður var á eyjunni, og hann liggur í stórbrotnu landslagi þar sem vínekrur, kastaníutrjágarðar og hraunmyndaðar hæðir skapa töfrandi umhverfi.
Hótelið býður upp á rúmgóð og hlýleg herbergi, með klassískri hönnun og útsýni yfir náttúruna. Þar er einnig glæsileg heilsulind með innilaug, gufu, sauna og fjölbreyttu úrvali meðferða sem stuðla að vellíðan og slökun.
Á veitingastað hótelsins má njóta hefðbundinnar sikileyskrar matargerðar, sem byggir á ferskum, staðbundnum hráefnum. Þar að auki er vínekra í nágrenninu kjörin fyrir vínsmakkanir og matarupplifanir.
Verð og dagsetningar
22. – 26. okt.
5 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
559.800 kr. |
Verð frá
279.900 kr.
per farþega | |
22. – 26. okt.
5 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
489.900 kr. |
Verð frá
489.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með hálfu fæði, 5 golfhringir á Il Piccolo, flutningur á golfsetti, akstur til og frá flugvelli, hálft fæði, Drykkur við komu, Aðgangur að heilsulind tvisvar per mann, og 5 x golfhringir.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, ekki spilað golf á komu eða brottfara degi, eða golfbíll.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.




