Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla vinsælda og Gardavatnið, sem er talið eitt fegursta stöðuvatn landsins. Náttúrufegurðin við Garda er engu lík og þar er yndislegt að dvelja. Í þessari ferð er Gardavatn og allar helstu perlur svæðisins í kring kannaðar undir dyggri leiðbeinslu reynds fararstjóra. Margar skoðunarferðir innifaldar.
Verð og dagsetningar
Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?
Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is
Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Parc Hotel in Castelnuovo – Peschiera 4★, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, Hálftfæði með morgunverðarhlaðborði og 3ja rétta kvöldverðahlaðborði, 1 drykkur við komu á hótel, 1 gala kvöldverður, aðgangur að sundlaug, og allar skoðunarferðir samkvæmt lýsingu í dagskrá.
Dagskrá
Athugið
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Brottfarartímar allra ferða er kl. 8:30 og lengd ferða um 8 tímar.