Á Ítalíu finnur þú bestu pizzur, pasta og risotto á jörðu og eftirrétti og vín í heimsklassa. Þaðan fer enginn svangur heim og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Ítalir eru þekktir fyrir sína einstöku gestrisni og mælum við því hiklaust með því að stoppa þar í dágóðan tíma og ferðast um alla helstu staði, njóta menningar og borða góðan mat. Hver vill ekki borða gómsætan pastarétt með hringleikahúsið Colosseum í augsýn, smakka bestu pizzur í heimi í Napólí, smjatta á gómsætum sjávarréttum á Amalfi ströndinni og dreypa á unaðslegu víni í Toskana héraðinu?
TYRKLAND
Tyrkir eru sérfræðingar í kebab og þar finnur þú bestu kebab-rétti í heimi. Þeir eru einnig vel þekktir fyrir Lahmacun sem er tyrknesk útgáfa af pizza. Þær eru allt öðruvísi en þessar ítölsku; þunnar og stökkar, bornar fram með sítrónu og steinselju, áður en þeim er rúllað upp. Í Tyrklandi er margt að skoða, til að mynda fallegar strendur, forvitnileg þorp og bæi, smábátahafnir, flottar fornminjar og áhugaverð söfn.
INDLAND
Indland er á heimavelli þegar kemur að bragðmiklum og safaríkum mat. Þar mælum við með því að prófa forréttinn Samosas; djúpsteikt lítil hveitihorn með sterkri fyllingu í forrétt. Tandoori kjúklingurinn mun kveikja á öllum bragðlaukum og eftir máltíðina er óvíst hvort þú munir einhvern tíma vilja líta við bragðminni rétti. Hið ljúffenga indverska brauð Naan, er tilvalið viðbit með matnum. Sé maturinn of sterkur mælum við með því að panta Raita en það er jógúrtréttur sem slær á og mildar bragðið. Á Indlandi er nauðsynlegt að skoða Taj Mahal sem er á minjaskrá UNESCO.
SRÍ LANKA
Eyríkið Srí Lanka er þekkt fyrir góðan mat þar sem kókoshnetur er kjölfestan; kókosolían er notuð til steikingar, kókosmjólkin notuð í alls kyns rétti og auk þess sem kókos er mikið notaður í sætindi. Kryddflóran er fjölbreytt og mörg þeirra bragðmikil. Við mælum með Pol Roti sem eru kókoshnetu flatbrauð, Kukulmas Mirisata sem er sterkur kjúklinga karrýréttur og loks rækjukarrýrétti. Úr nógu er að velja og sérstaklega mælum við með því að prófa veitingastaði og matsölustaði sem heimamenn sækja. Á Srí Lanka er tilvalið að heimsækja friðaðan fílagarð og skella sér á brimbretti.
THAILAND
Í Thailandi er mikið úrval af frábærum mat á ótrúlega góðu verði. Efst á listanum er Pad Thai, sem er unaðslega góður núðluréttur með þykkum núðlum. Velja má á milli þess að fá rækjur, kjúkling eða tofu í réttinn og á sumum stöðum kostar hann minna en dollar. Tom Yum súpan með alls kyns bragðmiklum kryddjurtum er fullkomin á rigningardegi. Ef súpan er of sterk er hægt að fá hana án sterkra kryddjurta og fá hana lagaða að óskum hvers og eins. Í Thailandi eru margir áhugaverðir staðir sem vert er að skoða, til dæmis Gullna hofið og konungshöllina í Bangkok. Við mælum einnig með því að fara á ströndina en í Thailandi er fjöldi gullfallegra hvítra sandstranda og magnaðir þjóðgarðar.
KÍNA
Í Kína er heill heimur af sælkeraréttum. Upp í hugann koma súrsætt svínakjöt, Ma Po Tofu, sem er um 100 ára gamall réttur og einn sá vinsælasti í kínverska eldhúsinu, Wonton súpa og Dumplings sem eru deigkökur með fyllingu. Í Kína mælum við með því að þú kíkir á Kínamúrinn og forboðnu borgina í Beijing.
JAPAN
Í Japan er sushi afar vinsælt en við mælum auk þess með því að prófa Tempura (djúpsteiktan sjávarrétt) og grænmeti sem bráðnar í munninum. Ramen núðlusúpan er einnig mjög vinsæl og hentar sérlega vel á blautum degi. Í Japan er gaman að nýta tímann og skoða Hitsujiyama Park sem er einstaklega fallegur skrautgarður þegar hann er í blóma, auk þess sem heimsókn í Buddha-hofið í Kamakura er mögnuð upplifun. Ekki síður er áhrifamikið að sækja heim borgirnar Hiroshima og Nagasaki.
Verð frá 420.603 kr á mann
Athugið
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.