Sameinaðu frí, fjarvinnu og heilsueflingu við eina mestu veðursæld veraldar og frábæran aðbúnað á glænýju hóteli sem býður aðskilda fullorðins- og fjölskylduhluta.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 10 nætur á Iberostar Grand Mencey 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, námskeið með Sigursteini Mássyni, yoga, og teygjur og morguníhugun.
Ferðalýsing
Sameinaðu frí, fjarvinnu og heilsueflingu við eina bestu veðursæld um víða veröld og á glænýju hóteli sem býður upp á aðskilda fullorðins- og fjölskylduhluta.
Við lifum í breyttum heimi með nýjum áskorunum og tækifærum sem Úrval Útsýn í samvinnu við Sigurstein Másson mætir með nýstárlegri ferð sem sameinar gott vinnuumhverfi, frábært frí og heilsueflingu. Hvort sem þú vilt vinna í stuttum eða löngum lotum henta þessar aðstæður afar vel. Þú stjórnar þínum degi og hve mikið og hve oft þú nýtir það sem er í boði.
Farþegum í þessari ferð býðst t.a.m. að stunda jóga á morgnanna í viku og að taka þátt í hugleiðslu-morgunstund og teygjum einu sinni í viku. Þessa sömu morgna býðst gestum okkar að taka þátt í námskeiðum með Sigursteini Mássyni þar sem farið er yfir vinnu og velferð með áherslu á góða geðheilsu, fjarvinnu sem svar við kulnun og vinnukvíða, vinnuskipulag, frítíma í fjarvinnu, reglusemi og heilsusamlega rútínu.
Boðið er upp á vikulegar upplifunarferðir þar sem snætt verður úti í sveit með einstöku útsýni og kynnum af frábærum mat og vínum sem framleidd eru á ævintýraeyjunni Tenerife.
Dagskrá
Dagur 1, miðvikudagur, 30. mars 2022 — Brottför
06:20 – 11:40:
NO3924 — Keflavík — Tenerife
Akstur til hótelsins
Fundur með gestgjafa – farið yfir dagskrá vikunnar og kynning á St. Cruz og nágrenni
Dagur 2, fimmtudagur, 31. mars 2022
08:00 – 09:00:
Yoga í hótelgarðinum
09:40 – 10:30:
Frí, fjarvinnu og heilsuefling — námskeiðið „Leiðir til að sameina fjarvinnu og frí“
Dagur 3, föstudagur, 1. apríl 2022
08:00 – 09:00:
Morguníhugun og teygjur í hótelgarðinum
09:40 – 10:30:
Frí, fjarvinnu og heilsuefling-námskeið ,,Síestan og spænskur vinndagur
13:00 – 18:00:
Gönguferð um Anaga þjóðgarðinn
Dagur 4, laugardagur, 2. apríl 2022
Hvíld og slökun
Dagur 5, sunnudagur, 3. apríl 2022
Hvíld og slökun
Dagur 6, mánudagur, 4. apríl 2022
18:00 – 22:00:
Ferð og kvöldverður á bóndabæ að kynnast mörgu því besta sem ræktað er á eyjunni
Dagur 7, þriðjudagur, 5. apríl 2022
08:00 – 09:00:
Yoga í hótelgarðinum
09:40 – 10:30:
Námskeið: „Ný verkfæri og hugarfar um heilbrigt samband frítíma og vinnu. Hvernig afstýrum við kulnun?“
Dagur 8, miðvikudagur, 6. apríl 2022
08:00 – 09:00:
Morguníhugun og teygjur í hótelgarðinum
Dagur 9, fimmtudagur, 7. apríl 2022
08:00 – 09:00:
Yoga í hótelgarðinum
Dagur 10, föstudagur, 8. apríl 2022
Hvíld og slökun
Dagur 11, laugardagur, 9. apríl 2022 — Heimför
08:20 – 14:40:
NO3924 — Tenerife — Keflavík
Iberostar Grand Hotel Mencey ★★★★★
Iberostar Mencey Grand Hotel er 5 stjörnu hótel og jafnframt eitt glæsilegasta hótel Tenerife. Hótelið er staðsett í höfuðborginni Santa Cruz og er hótel sem á langa og glæsilega sögu. Hótelið var fyrst opnað fyrir gestum árið 1950 og hefur síðan átt hug og hjarta gesta og íbúa eyjunnar, enda byggt innan veggja eins flottasta herraseturs eyjunnar sem gefur hótelinu sérstakan sjarma. Hótelið hefur hægt og rólega, verið gert upp í fallegum nútímalegri stíl og engu til sparað við endurbygginguna, án þess þó að hótelið tapi hinu upprunanlegu útliti og sjarma byggingarinnar. Fullkomið hótel fyrir pör sem vilja slaka á í fallegu umhverfi og njóta há-klassa þjónustu.
GISTING
Herbergin eru öll glæsilega innréttuð, í nútíma hönnun, og hægt er að velja um garð- eða borgarútsýni. Þar er að finna öll helstu þægindi til að gera dvölina sem notalegasta. Glæsilegt baðherbergi með baðkari og sturtu, loftkæling, sjónvarp. Svalir eða verönd með garðhúsgögnum.
Ef að gestir vilja gera sérstaklega vel við sig geta þeir valið hinar svokölluðu „Junior svítur“. Junior svíturnar eru einstaklega vel búnar og rúmgóðar svítur með setuaðstöðu, stóru baðherbergi með baðkari og sturtu og rúmgóðum svölum.
Frítt, þráðlaust internet er á öllum herbergjum.
AÐSTAÐA
Hótelið er einstaklega fallega hannað og ró ríkir yfir öllu. Í garðinum er lítil og sjarmerandi sundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu. Á hótelinu er að finna öll nútíma þægindi eins og líkamsræktarstöð sem gestir geta nýtt sér að kostnaðarlausu, en einnig er að finna þar heilsulind, sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara, gegn vægu gjaldi.
VEITINGAR
Á hótelinu er einnig að finna frábæran veitingastað og chill out bar, þar sem framreiddir eru dýrindis réttir að hætti hótelsins og í kjallaranum er svo stærsta Casino eyjunnar, og er innagegnt frá hótelinu.
STAÐSETNING
Grand Hotel Mencey er staðsett í afar fallegu hverfi borgarinnar, steinsnar frá iðandi lífi og verslunum auk frábærra veitningastaða og kaffihúsa, en um 15 mínútna gangur er niður í gamla bæinn og á aðal göngu og verslunar götu borgarinnar. Við hótelið er svo hinn fallegi listigarður Parque Garcia Sanabria, sem oft er kallaður Lunga höfuðborgarinnar.
AÐBÚNAÐUR Á GRAND HOTEL MENCEY
Útisundlaug
Sundlaugarbar
Garður
Heilsulind
Nudd
Líkamsræktaraðstaða
Casino
Tvíbýli
Junior svítur
Baðkar
Sturta
Svalir/verönd
Skrifborð
Loftkæling
Frítt internet
Mini-bar
Hárblásari
Veitingastaður
Snarlbar
Töskugeymsla
Sólarhringsmóttaka
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar.
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
Tenerife
Tenerife hefur allt það að bjóða sem bestu sólarstaðir státa af. Eyjan er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Fjölskyldur geta notið alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða og í boði er fjöldi gististaða fyrir allar fjölskyldustærðir – allt frá íbúðum upp í stórglæsileg hótel. Bókaðu í tíma til að tryggja gistingu sem hentar þér og þinni fjölskyldustærð.
Ekki má gleyma að á Tenerife er flottasti vatnsrennibrautagarður heims, „Siam Park“, ásamt hinum stórglæsilega dýragarði „Loro Parque“.
Það skemmta sér allir vel á paradísareyjunni Tenerife!
Skemmtigarðar
Siam Park
Aqualand
Loro Park
Bubble Soccer
Arona Beach Park
Verslunarmiðstöðvar:
Siam Mall
Parque Santiago
Safari Center
Bahaia del Duque
Oasis
Afþreying:
Vatnasport
Gönguferðir
Verslanir
Frábærir veitingastaðir
Leikhús
TENERIFE SUR – SUÐURHLUTINN
Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Úrval Útsýn býður upp á gistingu á suðurhlutanum í Playa de las Américas, Los Cristianos og Costa Adeje. Allir þessir staðir hafa sinn sjarma og sitt einstaka andrúmsloft. Í Los Cristianos slær hjarta suðurhlutans þar sem ferðamannaiðnaðurinn byrjaði. Á því svæði búa eyjaskeggjar Tenerife en gamli bærinn er afar sjarmerandi með litlum þröngum göngugötum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana. Playa de Las Americas hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” en þar er frábært úrval verslana og veitingastaða á heimsmælikvarða. Costa Adeje svæðið er svo yndislegt og rólegt, með fallegum ströndum og stórglæsilegum gistingum.
SANTA CRUZ – HÖFUÐBORGIN
Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett við sjávarsíðuna á norð-austur hluta eyjunnar, undir fjöllum Anaga tangans. Þetta er glaðleg heimsborg, full af orku, og litast af persónuleika eyjaskeggja. Í borginni, sem er samvaxin La Laguna, er ótal margt að skoða en samanlagt búa þar yfir 400 þúsund manns sem gerir þær að stærsta þéttbýlissvæði Kanaríeyja. Borgin hentar sérstaklega vel til gönguferða. Hún er þakin fallegum görðum, flottum verslunargötum og býður upp á alla þá kosti sem stórar heimsborgir státa af. Hér er að finna mjög áhugaverðan byggingarstíl gömlu tímanna, samofinn nýjum stefnum og straumum arkítektúrs 21. aldarinnar. Santa Cruz er sú borg Spánar sem státar af flestum nútíma byggingum á litlu svæði.
Menningarlíf borgarinnar er talið einstakt enda mikið af áhugaverðum söfnum og listsýningum á heimsmælikvarða. Fyrir tónlistarunnendur er sinfóníuhljómsveit borgarinnar í fremstu röð Evrópuþjóða. Borgin er byggð upp við fallegar breiðgötur, svo kallaðar „Ramblas“. Í borginni er skemmtilegt andrúmsloft, sem er bæði róandi og seiðandi, án þess að missa hið skemmtilega yfirbragð lítillar heimsborgar. Hér eru frábærar verslanir, verslunarmiðstöðar, veitingastaðir og kaffihús. Í næsta nágrenni er einnig stærsta og glæsilegasta strönd eyjunnar „Las Teresitas“. Í einungis 15 mínútna ferð með sporvagni er komið til hinnar þekktu 500 ára gömlu fyrrverandi höfuðborgar Tenerife, La Laguna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstaka sögu og fallegar byggingar.
PUERTO DE LA CRUZ – NORÐURHLUTINN
Puerto de la Cruz er staðsett á norðurhluta eyjunnar og er einna þekktust fyrir að hýsa einn glæsilegasta dýragarð Evrópu, Loro Parque. Ferðalangar hafa heimsótt þessa einstöku borg frá Evrópu síðan um miðja 19. öld og er fyrsti eiginlegi sumarleyfisdvalarstaður Kanaríeyja. Borgin hefur yfir sér rólegt yfirbragð þar sem gamli og nýi tíminn mætast á mjög sjarmerandi máta.
Gamli bærinn státar af afar fallegum gömlum byggingum og höfnin sem er í lykilhlutverki þjónaði vínútflutningi frá La Orotava dalnum í nokkur hundruð ár. Bærinn La Orotava er verðugur áningastaður þar sem eru stórglæsileg hús og hallir ásamt kirkjum sem skreyta bæinn. Við sjávarsíðuna er svo að finna afar fallegan sundlauga- og lystigarð, Lago Martiánes, sem þjónar borginni sem einskonar strandgarður, því fáar baðstrendur eru við borgina.
Í Puerto de la Cruz er einnig að finna mikið af skemmtilegum verslunum, en til að mynda er þar stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar, La Villa sem er staðsett rétt fyrir utan bæinn. Einnig er þar elsti skrúðgarður (Botanical Garden) Tenerife. Fallegar göngugötur, torg og garðar toppa svo þessa fallegu borg. Hér er mikið úrval af glæsilegum veitingastöðum, börum og kaffihúsum, bæði í gamla bænum sem og í næsta nágrenni hans.
Puerto De La Cruz er klárlega staður sem vert að skoða!
AFÞREYING Á TENERIFE
Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast enda nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Gaman er að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park, þar sem þú getur meðal annars rennt þér niður 28 metra rennibraut nánast í frjálsu falli sem endar með ferð í gegnum hákarlabúr! Eða farið á stærstu go-kart braut Evrópu.
Við nánast hverja strönd á Tenerife er mikið úrval vatnaíþrótta -> sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun svo eitthvað sé nefnt.
VERSLUN Á TENERIFE
Á Tenerife er fjöldi verslana og verslunarmiðstöðva með þekktum vörumerkjum. Tvær nýlegar eru: Parque Santiago 6 og Siam mall . Fararstjórar bjóða líka upp á mjög skemmtilega verslunarferð til höfuðborgarinnar Santa Cruz á mánudögum þar sem er meðal annars hægt að fara í stóra HM -verslun og í Primark.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.