Vikulöng sigling þar sem stoppað verður í Bari á Ítalíu, á eyjunum Mykonos og Santorini og Katakolon í Grikklandi áður en endað verður í Feneyjum í 3 nætur. Íslensk fararstjórn.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á Hotel Cavalleto e Doge Orseolo 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, allur akstur og bátsferðir milli staða, 7 nátta sigling með Costa Cruise um gríska eyjahafið með fullu fæði um borð ásamt drykkjarpakka sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, bjór, víni og fleiru, hafnargjöld í siglingu, þjónstugjald/þjórfé (hotel service fee) í siglingu, skoðunarferð í Feneyjum ásamt aðgangi að Markúsardómkirkjunni, og heilsdagsskoðunarferð til Murano & Burano eyja.
Ekki innifalið í verði:
Gistináttaskattur (4,5 eur á mann hverja nótt í Feneyjum), aðrar máltíðir en taldar eru upp í lýsingu, vatnsflöskur sem eru stærri en 0,5 l flöskurnar sem fylgja í drykkjarpakka, vín eða kampavín í flöskum (allt í glösum er innifalið), dýrari og fínni tegundir af koníaki, whisky og vínum, námskeið um borð, máltíðir á veitingastöðum og börum um borð í skipinu sem sér rekstraraðilar reka, eða skoðunarferðir í landi á siglingunni.
Dagskrá
Gistingar í boði
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.