Í ferðunum eru mis 6, 10 eða 14 golfhringir (utan ferðadaga) eftir lengd dvalar. Hægt er að bóka golfbíl gegn gjaldi. El Plantio er frábær áfangastaður fyrir kylfinga sem vilja dvelja í flottum íbúðum og spila á góðum keppnisvelli sem er stutt frá flugvelli. Íbúðahótelið er rúmgott og er staðsett við hliðina á golfvellinum. Golfvöllurinn er 18 holur sem býður upp á skemmtilegan 9 holu par 3 völl og gott æfingasvæði. Miðborg Alicante er svo aðeins í 10 mínútna fjarlægð með úrval góðra veitingastaða. El Plantio hefur verið einn vinsælasti áfangastaður íslenskra kylfinga til margra ára.
    Sæki dagsetningar...

    Verð og dagsetningar

    Sæki verð...
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, fararstjórn, flutningur á golfsetti, morgunmatur, gisting á El Plantio Resort með morgunverð, þjónustufulltrúi á staðnum, og 6 golfhringir (utan ferðadaga).

    Ferðalýsing

    El Plantio

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.