BETT sýningin fyrir fræðslu, tækni og nýjungar í London á nýju ári. BETT er stór skólasýning sem haldin er árlega í London. Helstu fagaðilar sem tengjast skólamálum kynna þar nýjungar í skólastarfi, vörur og kennsluefni. Á sýningunni er einnig fjölbreytt dagskrá fyrirlestra um menntamál og örnámskeiða í þeim nýjungum sem verið er að kynna. Þátttakan nýtist skólum í starfi kennara og stjórnenda sem fá hugmyndir og aðgang að kennsluefni, kennslubúnaði og nýjungum í tækni, sem og til að mynda tengingar við alþjóðanet fagaðila í skólastarfi. Það eru ýmis stéttarfélög sem veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeiðum og fræðslu/endurmenntun. Við hvetjum þig til að kynna þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það sé fyrir þessa ferð. Íslensk fararstjórn verður í þessari ferð.
    Sæki dagsetningar...

    Verð og dagsetningar

    Sæki verð...
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og akstur til og frá flugvelli.
    Ekki innifalið í verði: Þjórfé, eða city tax.

    Ferðatilhögun

    Gistingar í boði

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
    • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
    • Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.