Það er dásamlegt að koma til Berlínar þegar jólaljósin ljóma og borgin skartar sínum fegurstu jólaskreytingum og hinir þekktu Berlínar- jólamarkaðir út um alla borg.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, flogið með Icelandair, og farangursheimild og flugvallarskattar.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, skoðunarferðir, city tax (sem greiðist beint á hótelinu), eða akstur.
Ferðalýsing
Berlín
Það er óhætt að segja að engin borg í Evrópu, og þótt víðar væri leitað, sé eins mörkuð af sögu tuttugustu aldarinnar og Berlín. Borgin, eins og hún er nú og hið sérstæða andrúmsloft sem þar ríkir, hefur óhjákvæmilega mótast af skiptingu hennar í tvo gjörólíka heima um þrjátíu ára skeið. En Berlín hefur alltaf verið sérstök og haft mikla sérstöðu í hugum Þjóðverja, jafnt jákvæða sem neikvæða.
Berlín var höfuðborg ríkis sem allt fram á síðari hluta 19. aldar var samsafn sjálfstæðra ríkja og ekki voru allir jafn sáttir við höfuðborgina. Á lýðveldisárunum, milli heimsstyrjaldanna, var Berlín villtasta og einhver mest spennandi stórborg álfunnar. Eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar má segja að þessi prússneska höfuðborg þar sem regla, agi og borgaraleg gildi voru ofar öllu hafi umturnast og orðið á skömmum tíma suðupottur pólitískrar ólgu, menningarlegrar gerjunar og taumlauss skemmtana- og næturlífs. Framúrstefnan réði ríkjum í listalífinu og listamenn flykktust til borgarinnar úr öllum áttum.
Verslun í Berlín
Kurfürstendamm
Kurfürstendamm eða “Kudamm” er ein vinsælasta verslunargatan í Berlín. Þar eru margar fallegar verslanir og stór verslunarhús. Gatan hefur verið álitin ein glæsilegasta verslunargata Evrópu. Þar er að finna allar helstu verslanir eins og td H&M, Zara, C&A og Mango, sem og fjöldan allan af verslunahúsum, Europa Center, Innovation og KaDeWe.
Alexanderplatz
Alexanderplatz er sennilega einn af þekktustu reitum í Berlín og þar er einnig frábært að versla. Zentral Merkthalle og Tietz eru vinsæl verslunarhús með ágætis úrvali verslanna. Friedrichstrasse er ein af fallegustu verslunargötum í Berlín en þar er að finna verlsanir eftir fræga hönnuði eins og Gucci, Louis Vuitton, Prada og Max Mara. Frá Friedrichstrasse er hægt að ganga í 10 mínútur að Mall of Berlin, sem er risastór verslunarmiðstöð á Leipziger Platz.
Áhugaverðir staðir í Berlín
Brandenborgarhliðið
Frá því að Brandenborgarhliðið var reist á árunum 1788-91 hafa margir herir marsérað þar í gegn. En frá því múrinn féll árið 1989 hefur mesti hasarinn líklega verið þegar Love Parade fer um einu sinni á ári. Hlutirnir eru nú aftur komnir í eðlilegt horf og hliðið er aftur orðið að tákni borgarinnar og sameinaðs Þýskalands.
Berlin Mitte
Berlin Mitte eða gamli miðborgarhlutinn og hverfin út frá honum, sem áður voru í mikilli niðurníðslu, iða nú af lífi og lit og eru nú helsta aðdráttarafl borgarinnar. En samruni þessara tveggja borga eða borgarhluta hefur það í för með sér að í Berlín er meira framboð af öllu en víðast hvar annars staðar, hvort heldur er á sviði menningar, lista, skemmtanalífsins eða verslunar. Í Berlín er allt tvöfalt og gott betur.
Check Point Charlie
Ef þú þurftir að fara milli Vestur- og Austur-Berlínar meðan á kalda stríðinu stóð þurftirðu að fara um landamærastöðina Checkpoint Charlie. Það er lítið eftir af henni núna nema endurbyggður skúr og skiltið fræga sem segir: “Þú ert núna að yfirgefa bandaríska svæðið”. Stutt frá er líka Haus am Checkpoint Charlie sem kallar sig fyrsta safnið til heiðurs alþjóðlegum friðsamlegum mótmælum, og segir sögu þeirra sem dóu eða voru fangelsaðir þegar þeir reyndu að fara frá austri til vesturs.
East Side Gallery
Eftir að búið er að nota annan hlutann til að leggja vegi og selja ferðamönnum hinn er ekki mikið eftir af Berlínarmúrnum sem féll í beinni útsendingu í nóvember 1989. Lengsti hluti hans sem ennþá er í heilu lagi er 1,3 km langur og gengur undir nafninu East Side Gallery. Eftir að 118 listamenn alls staðar að úr heiminum mættu á staðinn með pensla og málningu árið 1990 telst galleríið vera stærsta safn heims undir beru lofti. (Besta myndin er örugglega af sögufrægum kossikommúnistaleiðtoganna Honeckers og Brezhnevs). Frá 1990 hefur hins vegar margt annað sett mark sitt á galleríið, til dæmis hefur það verið vinsælt meðal fólks með tússpenna og spreybrúsa.
Mauerpark flóaamarkaðurinn
Mauerpark er opinn alla sunnudaga. Þar eru ýmsir sölubásar með vintage vörum, mat, drykk og fleiru. Markaðurinn er einnig frægur fyrir að halda opið karaoke, ef að vel viðrar, sem byrjar kl. 15:00. Þar fá allir tækifæri til að koma fram fyrir hundruði einstaklinga.
Veitingastaðir
Í borginni eru veitingastaðir frá flestum heimshornum. Auðvelt er að finna veitingastaði, sem bjóða ekta þýskar pylsur, “Frankfurter” og súrkál á afar hagstæðu verði. Ítalskir staðir eru víða, eins austurlenskir og hvað annað, sem getur kitlað bragðlaukana. Við Kurfurstendamm eru nýtískulegir barir sem yngra fólk sækir. Má þá einnig benda á hverfin í Austur-Berlín, eins og Nicolai Viertel og Oranienburgerstrasse.
Athugið
Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.